Tíminn - 25.01.1980, Síða 3
Föstudagur 25. janúar 1980
3
Guðmundar- og Geirfinnsmálin:
Hugarflug og ímyndunarafl
1701*1 on H O ITlÍ Iri Ti ~ saSöi Þórður Bjömsson ríkissaksóknari
V C1J Cliua lllllVlU í seinni ræðu sinni
Þóröur Björnsson ríkíssaksóknari I Hæstarétti. TfmamyndGE
FRI — Eftir að hafa getið um
snilli, skarpleika og hugarflug
verjenda i Guðmundar-og Geir-
finnsmálunum, sagði Þórður
Björnsson i seinni ræðu sinni að
það væri ekki rétt, sem fram
hefur komið, að hann hefði slitið
orð úr samhengi og haldið ein-
göngu þvi fram er væri hagstætt
ákæruvaldinu. Þórður kvaðst
þvert á móti hafa haldið fram
atriðum er væru hinum ákærðu i
hag.
1 ræðu sinni sagði Þórður að
það væri áberandi i máli verj-
enda, að þeim þætti hverjum
fyrir sig sem hlutur skjól-
stæðings sins væri minnstur.
Verjandi Sævarssegði að hlutur
hans væri minnstur, verjandi
Erlu að hennar hlutur væri
minnstur o.s.frv.
Þórður sagði einnig að það
fengist ekki staðist er verjendur
héldufram að um slys hefði ver-
ið að ræða. Samkvæmt fram-
burðum ákærðu i Geirfinnsmál-
inu kæmi það ljóslega fram að
um hatramma árás hefði verið
að ræða.
Ný timasetning
IræðusinnilagðiÞórður fram
skýrslu frá rannsóknarlög-
reglunni en RLR mun hafa
fengið mann frá vegagerðinni i
lið með sér og endurtekið tima-
mælingu þá er leiðir rök að þvi
að hin ákærðu i málinu hafi i
raun verið i Keflavik um kl.
22.10 kvöldið er Geirfinnur
hvarf. Segir hann að meðal-
hraðinn á Keflavikurveginum
hafi verið 84,2 km/klst en innan-
bæjar um 40 km/klst.
Þórður kvað einnig að vitnið
V. Knudseai, er sá þau Sævar og
Erlu á Kjarvalsstöðum umrætt
kvöld og talaði við Sævar, hefði
minnst á það við yfirheyrslur að
Sævar hefði jafnvel talað um að
hann mundi fara til Keflavikur
þetta kvöld.
Þórður greindi einnig frá þvi
sem hann kallaði listaverk
Sævars Marinós en það eru
teikningar af atburðum, er
Sævar mun hafa lagt mikla
vinnu i að gera og merkt sér.
Hnökrar á rannsókn
Þórður sagði i ræðu sinni að
ekki væri hægt að lita framhjá
þvi að hnökrar væru á rannsókn
málsins en árásir verjenda á
rannsóknarmenn þá er unnu að
málinu væru með öllu ómakleg-
ar. Þarna hefðu unnið að þessu
máli hæfustu einstaklingar er
við hefðum, bæði hvað varðar
lögreglu og dómara.
Er Þórður fjallaði um hinar
röngu sakagiftir er leiddu til
varðhalds saklausra manna,
sagði hann að það væri gott að
veravitur eftir á. ,,Það var ekki
hægt að gera ráð fyrir þeirri
mannvonsku er fólst i þessum
ásökunum”.
Mörg orð hefðu fallið um
rannsóknaraðila þessa máls um
að þeir hefðu ekki ávallt staðið
sig sem skyldi og sagði Þórður
að Karl Schutz hefði ekki farið
varhluta af þvi. Þvi hefði jafn-
vel verið haldið fram að Karl
hefði ekki mátt taka lögreglu-
skýrslur. Karl hefði hins vegar
haft vottorð frá dómsmálaráðu-
neytinu er gerði þessi orð dauð
og ómerk.
Leita þarf langt
I lokaorðum sinum sagði
Þórður að það þyrfti áð leita
langt aftur i timann eða um 150
ár til að finna mál þar sem sak-
fellt hefði verið fyrir dráp á
tveim mönnum. En það var
þegar Friðrik og Agnes voru
dæmd fyrir dráp Natans og ann-
ars manns. Og fara þyrfti til
ársins 1700 til að finna mál þar
sem þrír væru sakaðir um
manndráp.
Engin dæmi fyndust i sögu Is-
lands þar sem rangar sakagiftir
heföu leitt til langs varðhalds
saklausra manna. Auk þess
væru hótanir við vitni óþekkt
hérlendis.
Aö lokum sagöi Þtírður m.a.,
að ef hin ákærðu væru sýknuð i
þessumáli, þá væri þar kominn
leiðarvísir að þvi hvernig ætti
að fremja manndráp á Islandi
og komast upp með það.
aðeins skýrslur málsins”
sagöi einn af verjendum í málinu er þeir gerðu stuttar
athugasemdir við seinni ræðu saksóknara
FRI— Fyrstur af hálfu varnar-
innar gerði Páll A. Pálsson hdl.
athugasemdir við seinni ræðu
rikissaksóknara. Hann sagði að
játningum hinna ákærðu bæri
að taka með varúð, sérstaklega
i þessum málum, og spurning
væri hvort ákæruvaldið hefði
sýnt fram á sekt hinna ákærðu,
sem ekki væri hægt að véfengja
meö skynsamlegum rökum.
Engin áþreifanleg sönnunar-
gögn væru fyrir hendi og likur
hefðu verið leiddar að þvi, að
rannsóknaraðilar málsins hefðu
fengið fram i rannsókn þau nöfn
er þeir vildu fá með þrýstingi.
Jón Oddsson hrl. sagði að
verjendur hefðu ekki þurft á
hugarflugi sinu að halda, þeir
hefðu aðeins þurft að lesa
skýrslur málsins. Að þvi er
teikningarSævars varöaði, taldi
Jón þær þýðingarlausar, þar
sem búið hefði verið aö segja
honum frá atvikum og fara með
hann i dráttarbrautina. Þá
sagði Jón að lif Sævars hefði
breytst mikið eftir aö hann hitti
Guðjón Skarphéðinsson og þá
hefði farið að bera á vandræð-
um i hegðun hans. Auk þess
kvað Jón að það skini i gegn
hvað Sævar væri fús að taka á
sig meiri sakir og hlifa öðrum.
Hilmar Ingimundarson hrl.
sagði að ekki lægi fyrir i málinu
að Tryggvi Rúnar hefði veriö að
Hamarsbraut 11 er Guðmundur
var myrtur. Hann hefur sagt að
hann hefði veriö i einhverju
húsi. Auk þess benti Hilmar á að
framburður Erlu væri m.a. lög-
full sönnun þess aö Tryggvi
hefði ekki verið staddur að
Hamarsbraut 11 er Guömundur
var myrtur.
örn Clausen sagöi að hann
hefði aldrei vitað til þess á 22
ára ferli sinum, að rannsóknar-
menn hefðu sýnt annað en heið-
arleika i störfum sinum ef frá
væru taldir vissir Suðurnesja-
menn. Hann sagði ennfremur að
fyfjagjafir heföu ekki haft áhrif
á framburð Alberts Klahn, þar
sem honum heföu ekki veriö
gefin lyf 1975 fyrir utan eitt
skipti. Hann sagði ennfremur að
atvik væru meö þeim hætti I
Guðmundarmálinu að ákærðu
hefðu ekki séð fyrir afleiöingar
gerða sinna og væri réttlætinu
þvi fullnægt með þvi að beita
Framhald á bls. 19
Fjöltefli
Jón L. Árnason teflir fjöltefli i Fellahelli
laugardaginn 26. janúar kl. 1.00.
Þátttökugjald kr. 1000.00. Takið með
ykkur töfl. Allir velkomnir
Skákfélagið Mjölnir.
Vegna hagstæðra innkaupa getum við nú boðið nokkrar
samstæður af þessum vinsælu norsku veggskápum á
lækkuðu verði.
Húsgögn og
. , . J Suðurlandsbraut 18;
mnrettmgar Sími 86-900
^ ^ 4 ■ _ .
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M/S Hekla
fer frá Reykjavlk fimmtu-
daginn 31. þ.m. austur um
land til Seyðisfjarðar og
tekur vörur á eftirtaldar
hafnir.
Vestmannaeyjar, Horna-
fjörð, Djúpavog, Breiðdais-
vlk, Stöðvarfjörð, Reyðar-
fjörð, Eskifjörð, Neskaup-
stað og Seyðisfjörö.
Vörumóttaka aila virka daga
til 30. þ.m.
M/S Esja
fer frá Reykjavik föstudag-
inn 1. febrúar vestur um land
i hringferð og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir:
Patreksfjörð, (Táiknafjörð,
og Rildudal um Patreks-
fjörð), Þingeyri, lsafjörö,
(Flateyri, Súgandafjörð og
Boiungarvik um isafjörð),
Noröurf jörð, Siglufjörð,
Ólafsfjörð, Akureyri, Húsa-
vlk, Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkafjörð, Vopnafjörð og
Borgarfjörö eystri. Vöru-
móttaka alla virka daga til
31. þ.m.
Góð jörð — framtíð
Jörð á Suðvesturlandi er til leigu eða sölu
ef um semst. Bú getur fylgt. útihús eru
nothæf en ibúð rýr.
Fyrirspurnir skulu sendar Timanum
merktar .»góð jörð — framtiðarbúskap
ur”.
öllum verður svarað.
Oskað er eftir konu
til að sjá um heimili fyrir ekkjumann með
2 börn á skólaaldri, aðhlynning barna er
mikilvægasti þáttur starfsins.
Upplýsingar gefnar i sima 74544 fyrir há-
degi.
1*1 Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W
Asparfelli 12.