Tíminn - 25.01.1980, Side 4
4
Föstudagur 25. janúar 1980
l II*
í spegli tímans
Hundurinn hans Karls
ætti bara að vita....
Amanda Knatchbull
Eini kossanauturinn á almannafæri.
Nú er Karl Bretaprins
orðinn 31 árs gamall, og
þrátt fyrir, að slúður-
dálkahöfundar hafa um
langan aldur verið önnum
kafnir viö að bendla hann
við hinar og þessar konur,
jafnvel hefur Margaret
Trudeau komiö þar við
sögu, hefur hann hingað
til ekki sést kyssa aöra á
almannafæri en hundinn
sinn. En slúðurdálkahöf-
undarnir hafa ekki gefist
upp. Nýjasta hugmyndin
um konuefni til handa
Karli er Amanda
Knatchbull, en hún er
dótturdóttir Mount-
battens lávarðar, sem
drepinn var í sprengjutil-
ræði i Irlandi á siðast-
liðnu sumri. Þau eru sem
sagt náskyld, svo að ekki
ætti uppruni hennar að
vera hindrun. Til að sýna
fram á, aö eitthvað sé á
seyði milli þeirra, segja
þeir, sem þykjast vita, að
þau hafi átt helgi saman i
kofa veiðivarðar nokkurs.
Hirðin hefur ekki borið
þessa frétt til baka og eru
slúðurdálkahöfundarnir
hróðugir mjög yfir þeirri
þögulu staöfestingu á
fréttinni. En hundurinn
hans Karls ætti bara að
vita .
Er með þeim hjónasvipur?
Victoria Pittorino og David Goddu heita þau. Hún er 24 ára og
hann 22.1 mai siðastliönum giftu þau sig, en skömmu siðar kom I
ljós, aö þau eru systkini, en voru aðskilin þegar I bernsku og
vissu ekkert hvort um annað. Þegar hið sanna kom I ljós, varð
uppi fótur og fit. Þau voru ákærö fyrir sifjaspell og hjónabandiö
var gert ógilt. En þau láta sér ekki segjast og ætla að halda
áfram að búa saman. 1 augnablikinu búa þau i skjóli kjörfor-
eldra Davids. En þau vilja eignast eigið hemili og þaö kostár
peninga i Bandarikjunum, ekki siöur en hér. Lögfræðingur einn
hefur tekiö að sér að selja dagblaði nokkru einkarétt á sögu
þeirra, en fyrir hann fékk hann ekki nema 1000 dollara. Það
finnst David ekki nóg. — Við ætlum aö reyna aö selja sögu
okkar I Hollywood. Þar fáum við áreiöanlega minnst 75.000 doll-
ara fyrir, segir David. Það er hægt að veröa rikur með ýmsu
móti I henni Ameriku.
Er meö þeim hjónasvipur?
bridge
Flestum spilurum finnst betra að melda
eins hægt og rólega á spilin sin og kostur
er á, sérstaklega ef styrkurinn er mikill
þvi þá verður nákvæmnin auövitað meiri.
En stundum reynist betur að velja gagn-
veginn fram yfir krókinn.
Noröur
S 5
H KG7542
T K8
L K986
Austur
S AKÐ872
H 98
T D4
L A103
Suöur
S 10963
H 10
T 1053
L DG542
Þegar þetta spil kom fyrir i hraðsveita-
keppni hjá TBK spilaði austur á flestum
boröum 4 spaða. Slagirnir urðu frá 11 og
allt niður i 9, ef sagnhafi var sérlega
óheppinn. En við eitt borðið gerðust at-
buröir á annan hátt. Þar opnaði vestur,
eins og vlöast, á einum tígli og norður
ströglaði á einu hjárta. Og þá taldi austur
sig verabúinnað heyra nógogstökk beint
i gömlu Gerber ásaspurninguna, þ.e.a.s.
fjögur lauf. Vestur svaraði sinum tveim
ásum með fjórum spööum og austur
hækkaði i sex. Og þaö merkilega er, að
spilaöirl vestur, eru sex spaðar óhaggan-
legur samningureins og NS komust að við
borðiö.
skák
Amótisemhaldið var I minningu stór-
meistarans Tschigorins árið 1973 kom
þessi staða upp I skák milli Rukavina og
Suetins og það er svartur sem á leik og
vinnur.
Suetin
Rukavina
Vestur
S G4
H AD63
T AG9762
L 7
Gefiö.
Hvitur tapar manni án þess að fá
nokkuö i hans stað og hann sá ekki
ástæðu til að tefla frekar.
3208. Krossgáta
Lárétt
1) Óvinir,- 6) Ferskur.- 7) Annriki.- 9)
Hljóms,- 11) Leit,- 12) Keyrði.- 13) Sár,-
15) Keyra.- 16) Svar.- 18) Bölvaði.-
Lóðrétt
1) Pytlur,- 2) Elska,- 3) ónotuð.- 4) Tog-
aði.- 5) Ruglaði.- 8) Lika,- 10) Blundur,-
14) Aria.- 15) Hraða.- 17) Ónefndur,-
Ráöning á gátu No. 3207.
Lárétt
1) Danskur.- 6) Eta.- 7) Alt,- 9) Lem,- 11)
Ró.- 12) Ge,-13) FAO,- 15) Ógn.- 16) Der,-
18) Riddara,-
Lóörétt
1) Djarfur,- 2) Net,- 3) ST,- 4) Kal.- 5)
Rúmenía,- 8)Lóa.-10) Egg,-14) Odd.- 15)
Óra,- 17) ED,-
með morgunkaffinu