Fréttablaðið - 01.04.2007, Síða 1

Fréttablaðið - 01.04.2007, Síða 1
Opið 13-17 í dag Endalaust úrval af fermingargjöfum! www.xf.is AFNEMUM VERÐTRYGGINGU Á LÁNSFÉ Af börnum sem fæddust frá 1. nóvember 2003 til 30. júní 2006 er 131 barn enn ófeðrað. „Ég þekki mjög fá tilvik og finnst þetta vera undarlega háar tölur,” segir séra Hjálmar Jóns- son, dómkirkjuprestur og fyrrver- andi alþingismaður. Í nýju vefriti dóms- og kirkju- málaráðuneytisins kemur fram að alls fæddust 11.319 börn á ofangreindu tímabili. Af þeim voru 346 börn enn ófeðruð við sex mánaða aldur. Í samræmi við lög sem sett voru árið 2003 sendu sýslumenn mæðrum þessara barna bréf og skoruðu á þær að uppfylla þá lagalegu skyldu sína að feðra börnin. „Öll börn eiga skýlausan rétt til foreldra og það á ekki að vera nein undantekning á því. Aðrir hags- munir hljóta að víkja,“ segir séra Hjálmar. Áðurnefnd fækkun svarar til þess að eitt af hverjum hundr- að börnum sé ófeðrað. Af þessum barnahópi hafa mæður 41 barns ekki lýst nokkurn mann föður. Níutíu mæður hafa sagt ákveðinn mann vera föður en áhöld verið um hvort það sé rétt og börnin því enn ófeðruð. Eitt barn af hundrað ófeðrað Íbúar í Hafnarfirði höfnuðu í kosningum í gær til- lögu um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Gríðarlega mjótt var á munun- um milli fylkinganna tveggja. Af þeim 16.647 Hafnfirðingum sem voru á kjörskrá greiddu 12.747 at- kvæði, eða 76,6 prósent. Munur- inn á fylkingunum tveimur var því aðeins 88 atkvæði. Nei sögðu 6.382, eða 50,3 prósent af gild- um atkvæðum, og já sögðu 6.294, eða 49,3 prósent. Auðir seðlar og ógildir voru 71. Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi, var ánægður með niðurstöðu kosninganna. „Það verður óbreytt ástand í Hafnarfirði eins og áður en þessi tillaga kom til. Ég held líka að Hafnfirðingar verði fljótir að ná sér eftir þetta. Þetta var ákvörð- un sem við þurftum að taka og nú liggur niðurstaðan fyrir. Við byrj- um svo að lifa með þessu á morg- un,“ sagði Pétur. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, var ánægður með framkvæmd kosninganna og hina miklu þátttöku íbúa bæjarins. „Það liggur fyrir niðurstaða íbúa bæjarins sem fjölmenntu í þessa kosningu og tóku virkan þátt í að taka ákvörðun í þessu máli. Þetta var mjög glæsileg þátttaka og markar tímamót í kosningum í formi íbúalýðræðis. Munurinn er auðvitað lítill, en það er engu að síður niðurstaða sem við verðum að virða,“ sagði Lúðvík. Bæjarstjórinn sagði lengi hafa legið ljóst fyrir að skoðanir væru skiptar. Hann teldi hina harðvítugu baráttu andstæðra fylkinga í þessu máli þó ekki eiga eftir að draga dilk á eftir sér. „Hafnfirðingar eru skynsamt og ábyrgt fólk og við höfum gengið í gegnum ýmsa hluti í gegnum tíð- ina. Þessi kosning er búin að vera ströng og hörð, en við munum ná saman í þessum málum skjótt og fljótt. Það er bjart fram undan í Hafnarfirði og okkar tækifæri og möguleikar eru öll til staðar. Það er enginn heimsendir eða endalok í þessu máli. Síður en svo,“ sagði Lúðvík. Stuðningsmenn stækkunar ál- versins í Straumsvík voru von- sviknir þegar lokatölur lágu fyrir í seint í gærkvöldi. Vonbrigðin leyndu sér ekki í andliti fólksins sem hafði safnast saman í Hafn- arborg í Hafnarfirði. Rannveig Rist, forstjóri Alcan, ávarpaði hópinn og þakkaði fyrir þá vinnu sem starfsmenn höfðu lagt á sig í kosningabaráttunni. Hún sagði alla hafa lagt hart að sér og rekið málefnalega baráttu. Það hefði verið á brattan að sækja og mikið áunnist á stuttum tíma. Stækkun álversins hafnað Tillaga um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álvers Alcan í Straumsvík var felld í íbúakosningu í Hafnarfirði í gær. 50,3 prósent sögðu nei en 49,7 prósent sögðu já. 88 atkvæðum munaði á fylkingunum. Hljómsveitin Shog- un fór með sigur af hólmi í úr- slitum Músíktilrauna Hins hússins í gærkvöld. Næst kom hljómsveitin <3 Svanhvít! og þar á eftir fylgdi hljómsveitin Gordon Riots í þriðja sæti. Meðlimir Shogun eru úr Reykja- vík og Mosfellsbæ og leika harðkjarnarokk. Alls tóku ellefu hljómsveit- ir þátt í úr- slitunum, sem fram fóru í Hafn- arhúsinu. Sigurhljóm- sveitin frá í fyrra, Foreign Monkeys, flutti nokk- ur lög í upphafi tónleikanna. Músíktilraunir voru nú haldnar í 25. skipti og voru að þessu sinni í stappfullu Hafnarhúsi þar sem gríðarleg stemning var. Shogun vann Músíktilraunir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.