Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 1
Opið 13-17 í dag
Endalaust úrval
af fermingargjöfum!
www.xf.is
AFNEMUM VERÐTRYGGINGU
Á LÁNSFÉ
Af börnum sem fæddust
frá 1. nóvember 2003 til 30. júní
2006 er 131 barn enn ófeðrað.
„Ég þekki mjög fá tilvik og
finnst þetta vera undarlega háar
tölur,” segir séra Hjálmar Jóns-
son, dómkirkjuprestur og fyrrver-
andi alþingismaður.
Í nýju vefriti dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins kemur fram
að alls fæddust 11.319 börn á
ofangreindu tímabili. Af þeim
voru 346 börn enn ófeðruð við
sex mánaða aldur. Í samræmi við
lög sem sett voru árið 2003 sendu
sýslumenn mæðrum þessara
barna bréf og skoruðu á þær að
uppfylla þá lagalegu skyldu sína
að feðra börnin.
„Öll börn eiga skýlausan rétt til
foreldra og það á ekki að vera nein
undantekning á því. Aðrir hags-
munir hljóta að víkja,“ segir séra
Hjálmar.
Áðurnefnd fækkun svarar til
þess að eitt af hverjum hundr-
að börnum sé ófeðrað. Af þessum
barnahópi hafa mæður 41 barns
ekki lýst nokkurn mann föður.
Níutíu mæður hafa sagt ákveðinn
mann vera föður en áhöld verið
um hvort það sé rétt og börnin því
enn ófeðruð.
Eitt barn af hundrað ófeðrað
Íbúar í Hafnarfirði
höfnuðu í kosningum í gær til-
lögu um breytt deiliskipulag
vegna stækkunar álvers Alcan í
Straumsvík.
Gríðarlega mjótt var á munun-
um milli fylkinganna tveggja. Af
þeim 16.647 Hafnfirðingum sem
voru á kjörskrá greiddu 12.747 at-
kvæði, eða 76,6 prósent. Munur-
inn á fylkingunum tveimur var
því aðeins 88 atkvæði. Nei sögðu
6.382, eða 50,3 prósent af gild-
um atkvæðum, og já sögðu 6.294,
eða 49,3 prósent. Auðir seðlar og
ógildir voru 71.
Pétur Óskarsson, talsmaður
Sólar í Straumi, var ánægður með
niðurstöðu kosninganna.
„Það verður óbreytt ástand í
Hafnarfirði eins og áður en þessi
tillaga kom til. Ég held líka að
Hafnfirðingar verði fljótir að ná
sér eftir þetta. Þetta var ákvörð-
un sem við þurftum að taka og nú
liggur niðurstaðan fyrir. Við byrj-
um svo að lifa með þessu á morg-
un,“ sagði Pétur.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, var ánægður með
framkvæmd kosninganna og hina
miklu þátttöku íbúa bæjarins.
„Það liggur fyrir niðurstaða
íbúa bæjarins sem fjölmenntu í
þessa kosningu og tóku virkan þátt
í að taka ákvörðun í þessu máli.
Þetta var mjög glæsileg þátttaka
og markar tímamót í kosningum í
formi íbúalýðræðis. Munurinn er
auðvitað lítill, en það er engu að
síður niðurstaða sem við verðum
að virða,“ sagði Lúðvík.
Bæjarstjórinn sagði lengi
hafa legið ljóst fyrir að skoðanir
væru skiptar. Hann teldi hina
harðvítugu baráttu andstæðra
fylkinga í þessu máli þó ekki eiga
eftir að draga dilk á eftir sér.
„Hafnfirðingar eru skynsamt og
ábyrgt fólk og við höfum gengið í
gegnum ýmsa hluti í gegnum tíð-
ina. Þessi kosning er búin að vera
ströng og hörð, en við munum ná
saman í þessum málum skjótt og
fljótt. Það er bjart fram undan í
Hafnarfirði og okkar tækifæri og
möguleikar eru öll til staðar. Það
er enginn heimsendir eða endalok
í þessu máli. Síður en svo,“ sagði
Lúðvík.
Stuðningsmenn stækkunar ál-
versins í Straumsvík voru von-
sviknir þegar lokatölur lágu fyrir
í seint í gærkvöldi. Vonbrigðin
leyndu sér ekki í andliti fólksins
sem hafði safnast saman í Hafn-
arborg í Hafnarfirði. Rannveig
Rist, forstjóri Alcan, ávarpaði
hópinn og þakkaði fyrir þá vinnu
sem starfsmenn höfðu lagt á sig
í kosningabaráttunni. Hún sagði
alla hafa lagt hart að sér og rekið
málefnalega baráttu. Það hefði
verið á brattan að sækja og mikið
áunnist á stuttum tíma.
Stækkun álversins hafnað
Tillaga um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álvers Alcan í Straumsvík var felld í íbúakosningu í
Hafnarfirði í gær. 50,3 prósent sögðu nei en 49,7 prósent sögðu já. 88 atkvæðum munaði á fylkingunum.
Hljómsveitin Shog-
un fór með sigur af hólmi í úr-
slitum Músíktilrauna Hins
hússins í gærkvöld. Næst kom
hljómsveitin <3 Svanhvít! og
þar á eftir fylgdi hljómsveitin
Gordon Riots í þriðja sæti.
Meðlimir Shogun eru úr Reykja-
vík og Mosfellsbæ og leika
harðkjarnarokk. Alls tóku ellefu
hljómsveit-
ir þátt í úr-
slitunum,
sem fram
fóru í Hafn-
arhúsinu.
Sigurhljóm-
sveitin frá
í fyrra,
Foreign Monkeys, flutti nokk-
ur lög í upphafi tónleikanna.
Músíktilraunir voru nú haldnar í
25. skipti og voru að þessu sinni
í stappfullu Hafnarhúsi þar sem
gríðarleg stemning var.
Shogun vann
Músíktilraunir