Fréttablaðið - 01.04.2007, Page 4
Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift!
www.oryggi.is
Hver vaktar
þitt heimili
um páskana?
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Samtök kvenna af
erlendum uppruna íhuga að kæra
Viðar Helgi Guðjohnsen, sem
skipar fimmta sæti Frjálslynda
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
suður, vegna ummæla hans í garð
útlendinga á Íslandi.
Ummælin sem um ræðir birt-
ir Viðar á heimasíðu sinni undir
yfirskriftinni „Ísland fyrir Ís-
lendinga – Um hvað snýst málið.
Hvað erum við hjá Frjálslyndum
að tala um!“ Á eftir fylgir grein-
argerð þar sem Viðar rekur hætt-
ur og vandamál sem gætu skap-
ast í landinu með fólksflutning-
um. Meðal þeirra atriða sem eru
nefnd í tengslum við útlendinga
eru skipulagðar nauðganir, berkla-
smit, hnignun heilbrigðiskerfis,
misskipting í samfélaginu og því
haldið fram að fjölmenningarsam-
félög hafi aldrei virkað.
„Mér finnst þetta ekki of djúpt í
árinni tekið,“ segir Viðar um skrif
sín. Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður flokksins, vildi ekki tjá
sig um málið, sagði það ekki koma
sér við.
„Þessi maður lýsir vanþekk-
ingu sinni á þessum málum með
skrifum sínum. Ég vil ekki gera
lítið úr áhyggjum fólks en það
þarf að ræða þessi mál af skyn-
semi. Ekkert af því sem hann
segir stenst nánari skoðun og því
eru þessi ummæli ef til vill ekki
svara verð. Á þessari stundu vil
ég fyrst og fremst bjóða honum
aðstoð við stafsetningu,“ segir
Tatjana Latinovic, formaður Sam-
taka kvenna af erlendum uppruna.
Hún segir málið þó verða tekið til
alvarlegrar skoðunar.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahúss, segist hafa
orðið var við vaxandi fordóma í
garð útlendinga frá því í nóvem-
ber á síðasta ári, eða um svipað
leyti og Jón Magnússon, sem skip-
ar efsta sæti lista Frjálslyndra í
Reykjavíkurkjördæmi suður, birti
grein sína „Ísland fyrir Íslend-
inga?“ í Blaðinu. Einar segir að
tími sé kominn til að bregðast við
þróuninni.
Í blaðinu Víkurfréttum sem
gefið er út á Suðurnesjum hefur
verið fjallað um kynþáttahatur í
bænum. Hús í Keflavík þar sem
margir innflytjendur halda til var
í vikunni þakið veggjakroti. Auk
hakakrossa og setningarinnar „Ís-
land fyrir Íslendi[n]ga“ var búið
að teikna manneskju sem hékk í
snöru. Lögreglan á Suðurnesjum
segist ekki vita hver standi fyrir
krotinu.
Kynþáttahatur sagt
vaxandi vandamál
Þörf er á að bregðast við vaxandi kynþáttahatri, að sögn framkvæmdastjóra Al-
þjóðahúss. Samtök kvenna af erlendum uppruna íhuga að kæra frambjóðanda
Frjálslynda flokksins vegna ummæla um innflytjendur.
Stjórnvöld í Kambód-
íu hafa bannað notkun SMS-skila-
boða í landinu þangað til kosning-
um í landinu lýkur í kvöld. Þannig
geti frambjóðendur ekki nýtt sér
tæknina til að hafa áhrif á kjós-
endur á meðan kosningar fara
fram.
Símafyrirtæki í landinu hafa
lokað fyrir þjónustuna að beiðni
yfirvalda og var símaeigend-
um tilkynnt ákvörðunin í gegn-
um SMS-skilaboð. Mannréttinda-
sinnar og stjórnarandstæðingar í
Kambódíu hafa gagnrýnt ákvörð-
unina og segja hana algjörlega
ónauðsynlega.
Bannað að
senda SMS
Metfjöldi af dvalarleyf-
um var gefinn út á árinu 2006. Þá
voru gefin út 12.669 dvalarleyfi.
Árið 2005 voru útgefin dvalar-
leyfi 9.331. Árið þar á undan voru
leyfin alls 6.042, eða helmingi
færri en leyfin í fyrra.
Í vefriti dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins kemur einnig fram
að í fyrra voru 5.210 dvalarleyfi
veitt Pólverjum og 761 leyfi veitt
Kínverjum. Þar á eftir voru flest
leyfi veitt til Litháa, Bandaríkja-
manna og Filippseyinga. Haft er
eftir Hildi Dungal að ein helsta
ástæða mikillar fjölgunar dvalar-
leyfisumsókna sé innganga tiltek-
inna ríkja í Austur-Evrópu í Evr-
ópska efnhagassvæðið.
Fimm þúsund
nýir Pólverjar
„Þetta hefur allt gengið mjög vel
fyrir sig,“ sagði Steinunn Þorsteinsdóttir, kynn-
ingarfulltrúi hjá Hafnarfjarðarbæ, rúmri
klukkustund áður en kjörstöðum var lokað í ál-
verskosningum í Hafnarfirði gær.
„Það hafa ekki verið neinir hnökrar. Í raun-
inni gengur þetta töluvert hraðar fyrir sig en
við venjulegar kosningar því við erum með raf-
ræna kjörskrá. Maður heyrir að fólk er mjög
ánægt með að fá að kjósa,“ sagði Steinunn.
„Í dag erum við ósköp róleg. Við höfum verið
að hjálpa þeim sem vilja komast á kjörstað,“
sagði Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi
Alcan.
Hrannar sagði Alcan ekki hafa staðið fyrir
neinum kerfisbundnum úthringingum í gær.
„Við höfum heyrt í mörgum í vikunni en við
lukum aðdraganda kosninganna eiginlega í gær-
kvöldi og dagurinn í dag hefur verið svolítið ró-
legri en undanfarnir dagar. En hver og einn er
áreiðanlega að athuga hvort hans fólk er búið
að mæta.“
Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi,
sagði kosningadaginn hafa verið mjög skemmti-
legan.
„Við vorum ekki í neinni kosningabaráttu í
dag heldur lauk henni á föstudagskvöldið hjá
okkur. Við fórum því bara í sparifötin í morg-
un og höfum tekið daginn rólega með kaffi og
kökum. Við höfum ekkert verið að hringja út
í dag eða neitt slíkt. En buðum reyndar upp á
að keyra fólk á kjörstað og það nýttu sér örfáir
þann kost,“ sagði Pétur.
Ástralinn David Hicks,
sem hefur verið fangi í Guant-
anamo-fangabúðunum á Kúbu,
þarf aðeins að afplána níu mán-
uði af sjö ára fangelsisdómi
sínum.
Hicks var nýverið dæmdur
í sjö ára fangelsi eftir að hafa
játað að hafa stutt við bakið á
hryðjuverkastarfsemi í Afganist-
an árið 2001. Við sama tækifæri
dró hann til baka ásakanir um að
hann hefði verið beittur harðræði
í haldi Bandaríkjamanna. Fjöl-
skylda Hicks kveðst hins vegar
viss um að hann hafi verið þving-
aður til þess að halda því fram.
Hicks mun afplána fangelsis-
dóm sinn í heimalandinu eftir að
hann gerði samning við banda-
rísk yfirvöld. Samþykkti hann að
tala ekki við fjölmiðla næsta árið
og að þiggja ekki neinar greiðsl-
ur fyrir að segja sögu sína. Einn-
ig má hann ekki höfða mál gegn
bandarískum stjórnvöldum. Verð-
ur hann fluttur til Ástralíu strax
eftir helgi.
Afplánar bara
níu mánuði
Rúmlega tvítugur karl-
maður var dæmdur í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur á föstu-
dag. Maðurinn réðst að fórnar-
lambi sínu, sem er á svipuðum
aldri, við Sambíóið Í Kringlunni í
september 2006 og sló hann með
hnefahöggi í andlitið. Í kjölfar-
ið féll fórnarlambið rænulaust í
gólfið og hlaut heilahristing, mar
á höfði og kjálkalið auk þess sem
hann hlaut sár á vör.
Maðurinn játaði brot sitt ský-
laust fyrir dómi.
Rotaði mann
við Kringluna