Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 8
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
69
17
3
/0
7
‘07 70ÁR Á FLUGI
Það er bæði þroskandi og gaman að sjá sig um í heiminum.
Gjafabréf frá Icelandair, full greiðsla eða innborgun
upp í flugfargjald, er fermingargjöf sem opnar nýjar leiðir.
Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi til allra áfangastaða Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum.
+ Pantaðu fermingargjöfina á icelandair.is/gjafabréf
GEFÐU FERÐALAG
Í FERMINGARGJÖF
Nú þegar framleiðsla
er að hefjast á evrópsku herflutn-
ingavélinni Airbus A400M, sem
eitt sinn var hampað sem lykil-
atriði í að gera Evrópusamband-
ið hernaðartæknilega óháð NATO
og Bandaríkjunum, er verkefnið
orðið frekar að tákni fyrir þróuð
varnarmálatengsl yfir Atlants-
hafið en fyrir tilraunir ESB til að
verða óháð bandarísku herverndar-
hlífinni.
Stefnan var sett á smíði vélar-
innar á síðasta áratug, í kjölfar
stríðsátakanna á Balkanskaga. Þá
vöknuðu Evrópuríkin upp við þann
vonda draum að vera ófær um að
flytja friðargæsluliða og hjálpar-
gögn á vettvang nema með aðstoð
frá Bandaríkjaher, þótt vettvang-
urinn væri svo skammt undan.
Nýja flutningavélin gegndi lykil-
hlutverki í nýrri öryggis- og varn-
armálastefnu Evrópusambands-
ins en eitt af markmiðunum með
henni var að samræma hergagna-
framleiðslu og varnaráætlanir í
Evrópulöndunum og gera skilvirk-
ari í þeim aðstæðum sem upp voru
komnar eftir lok kalda stríðsins.
Þegar þessar hugmyndir komu
fyrst fram var þeim illa tekið
meðal ráðamanna í Washington,
en þá var Bill Clinton enn á for-
setastóli vestra. Hugmyndir Evr-
ópumanna voru gagnrýndar sem
sóun og óþarfa tvíverknaður, þar
sem Bandaríkjaher hefði yfir
þeirri tækni og getu að ráða sem
þörf væri á. Þáverandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, Madel-
eine Albright, varaði jafnvel við
hugsanlegum slitum milli Evrópu
og Bandaríkjanna hvað varnar-
hagsmuni varðaði ef Evrópusam-
bandið héldi áfram að beina kröft-
um og fé frá NATO að uppbygg-
ingu eigin varnargetu.
Síðan sinnaðist ráðamönnum
forysturíkja meginlands Evr-
ópu og Bandaríkjanna alvar-
lega er deilan um innrásina í Írak
stóð sem hæst. En nú er sá æs-
ingur allur að baki og sú sameig-
inlega afstaða orðin ofan á, að
þeim mun meiri varnargetu sem
vestrænu bandamennirnir koma
sér upp, því betra, hvort sem það
gerist í nafni ESB eða NATO.
Flest ESB-ríkin eru hvort eð er í
NATO. Hið sameiginlega verkefni
í Afganistan hjálpar einnig til að
gera samstarfið milli bandamann-
anna beggja vegna Atlantshafsins
jarðbundið og árangursmiðað.
Nýja Airbus A400M-vélin lítur
út eins og stækkuð útgáfa af hinni
bandarísku C-130 Hercules. Burð-
argeta Airbus-vélarinnar verð-
ur nærri tvöföld á við Hercules.
Fyrstu vélarnar eiga að fara í loft-
ið á næsta ári og frá árinu 2009
verða þær teknar í notkun af flug-
herjum ríkjanna sem aðild eiga
að verkefninu. Alls hafa nærri
200 vélar verið pantaðar fram til
þessa.
Tákn bættra
varnartengsla
Smíði evrópsku herflutningavélarinnar Airbus A400M
er orðin að tákni fyrir þróuð varnarmálatengsl yfir
Atlantshafið. Á tímabili stefndi hún þeim í hættu.