Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 01.04.2007, Qupperneq 10
greinar@frettabladid.is Í dag komast formleg samskipti Færeyinga og Íslendinga á eins konar hástig. Opna á í Þórshöfn skrifstofu aðalræðis- manns Íslands í Færeyjum. Að því leyti markar þessi dagur þau tímamót í færeyskri stjórnmálasögu að fyrsti útsendi erlendi sendierindrekinn sest nú þar að. Það er sæmd að því fyrir Íslendinga að eiga þennan dag sameiginlegan með Færeyingum. Hugur þeirra gagnvart Íslandi er einstakur. Í færeyska blaðinu Sosialurin birtist fyrir skömmu skopmynd í tilefni af þessum atburði með svohljóðandi texta: „Fyrsti útlendski sendihirrin í Föroyum er ikki útlendingur, men íslendingur.“ Á einfaldari og skýrari hátt er tæpast unnt að lýsa sambandi tveggja þjóða. Það á að vera okkur hugarhaldið að sýna Færey- ingum sama þel. Opnun aðalræðismannsskrifstofunnar er vottur um vilja í þeim efnum. Skrifstofa af þessu tagi hefur verið til um- ræðu og umhugsunar í nokkur ár. Valgerður Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra á lof skilið fyrir að gera þau orð að veruleika. Mikill fengur er að því að hafa fengið Eið Guðnason, fyrrum umhverfisráðherra og einn af forystumönnum gamla Alþýðu- flokksins, til þess að takast á hendur brautryðjandahlutverk- ið í þessum efnum. Hann hefur verið athafnasamur sendiherra, meðal annars í Kína. En framhjá því verður ekki litið að baksvið hans í stjórnmálum gefur þessu nýja skrefi í samskiptum land- anna aukið vægi. Þegar Jógvan Sundstein var lögmaður Færeyja á sínum tíma nefndi hann með óformlegum hætti, sennilega fyrstur manna, framtíðarhugmyndir um einhvers konar efnahagsbandalag milli þjóðanna. Með vissum hætti má segja að þær hafi orðið að veru- leika með Hoyvíkursamningnum svonefnda sem undirritaður var fyrir tæpum tveimur árum. Sá samningur felur í sér frjálsan innri markað landanna tveggja með mjög víðtækum hætti. Það er raunar umfangsmesti sam- skiptasamningur okkar við nokkurt land. Davíð Oddsson, þáver- andi utanríkisráðherra, tók þau samningamál föstum tökum og á öðrum fremur heiður af því að þeirri gerð var lokið á jafn mynd- arlegan hátt og raun ber vitni. Þar er nú jarðvegur fyrir dugmikla athafnamenn á öllum sviðum til að plægja og rækta. Innflutningur frá Færeyjum hefur verið nokkuð sveiflukennd- ur en er nú tvöfalt meiri en fyrir fimm árum. Innflutningurinn er þó aðeins þriðjungur af því sem við flytjum út til Færeyja. Við liggur að Færeyingar kaupi jafn mikið frá Íslandi eins og Svíar og Finnar til samans. Hvort tveggja þetta sýnir að viðskipti landanna blómstra. Satt best að segja hallar heldur á okkur í þeim efnum. Poul Mohr hefur lengi verið aðsópsmikill ræðismaður Íslands í Færeyjum. Þar fer sannur Færeyingur og Íslandsvinur. Hann er góður og rismikill fulltrúi þeirrar menningarþjóðar sem Færey- ingar eru. Aukheldur hafa Íslendingar átt þar hauk í horni sem ástæða er til að meta og þakka. Að öllu virtu má með sanni segja að þessi dagur marki ekki að- eins tímamót í samskiptum landanna. Hann er á sinn hátt enn ein staðfesting á því að á þeim gagnvegum finnst enginn Þrándur í Götu. Enginn Þrándur í Götu Það hljóta að teljast athyglisverð tíðindi að 81% landsmanna vilji að sjúkrahúsin séu fyrst og fremst rekin af hinu opinbera og að rúm 76% séu sama sinnis um rekstur heilsu- gæslustöðva. Ég kalla þau athyglisverð vegna þess að undanfarin 16 ár hefur hér setið hægristjórn undir Sjálfstæðisflokks, fyrst með þátttöku Alþýðuflokksins og síðar Framsóknarflokks. Hægristjórnin sem hér hefur ríkt hefur nefnilega verið ötull talsmaður einkavæðingar og einkarekstr- ar og hvatt til einkaframtaks á sem flestum sviðum. Fjölmargar ríkisstofnanir hafa verið seldar undan- farin tíu ár og margs konar lög sett til að greiða fyrir einkavæðingu, hvort sem er á raforku eða vatni. Full- trúar Sjálfstæðisflokks hafa leynt og ljóst talað fyrir auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu. Því miður hafa fulltrúar úr ýmsum flokkum tekið undir mál- flutning þeirra um markaðsvæðingu heilbrigðiskerf- isins. Því miður segi ég, vegna þess að í heilbrigðis- kerfinu eiga markaðslögmálin ekki að gilda. Heil- brigðiskerfið á ekki að skila hagnaði — og það á ekki að kosta sjúklinga að vera veikir. Á Sigga frænka kannski að borga fyrir fótbrotið svo það verði ekki tap á því? Það er engu líkara en það sé ætlun núverandi ríkisstjórnar sem hefur smurt ofan á komugjöld í öllu heil- brigðiskerfinu og orðið tíðrætt um aukinn einkarekstur. Allt leiðir í eina átt — er einhver búinn að gleyma nefndinni sem starfaði undir for- ystu Jónínu Bjartmarz og skilaði þeirri nið- urstöðu að þeir sem hefðu efni á því ættu að „fá“ að borga fyrir að fara fram fyrir í röð- inni? Þetta átti ekkert að bitna á neinum — þeir ríku áttu „aðeins“ að fá betri þjónustu en hinir sem ekki hefðu efni á slíku. En nú er sem sagt komið í ljós í áðurnefndri könn- un sem ber yfirskriftina Heilbrigði og aðstæður Ís- lendinga að fjórir af hverjum fimm Íslendingum eru sammála okkur Vinstri-grænum um að öflugt opin- bert heilbrigðiskerfi er ein af grunnstoðum velferð- arkerfisins. Þessi stoð hefur nú verið nöguð að utan af stjórnarflokkunum með því að fjarlægja ýmsa þræði — eins og skólatannlækningar barna — og nauðsynlegar umbætur eins og að niðurgreiða sál- fræðiþjónustu hafa ekki verið gerðar. Þess vegna er svo mikilvægt að mynda nýja ríkis- stjórn í vor — sem starfar samkvæmt meirihlutavilja og stendur vörð um heilbrigðiskerfið. Höfundur er varaformaður Vinstri grænna. Öflugt opinbert heilbrigðiskerfi Áháskólaárunum mínum leigði ég kjallaraíbúð á Laugalækn- um. Húsið var í eigu mikilla heið- urshjóna og vart hægt að hugsa sér betri leigusala. Þau höfðu skilning á ójöfnu tekjuflæði leigj- andans ásamt því að háskólanám verði vart stundað án þess að þess sé gætt að lífsins blóm skrælni ekki. Ég held að það hafi samt bara gerst einu sinni að skemmt- anahaldið hafi farið fram úr hófi og valdið verulegu ónæði á efri hæðinni. Ekki var gerð athuga- semd en um hádegisbil var hringt á dyrabjöllinni í kjallaranum og ég barðist til dyra, fremur ósáttur við truflunina. Þar fyrir utan stóðu tveir jakkafataklæddir menn, sögðust vera vottar. Þegar mér hafði skilst að þeir væru ekki frá skattinum heldur á vegum þess sem öllu öðru er æðra, þá kom í ljós að leigusalarnir mínir höfðu hvatt þá sérstaklega til að banka upp á í kjallaranum, þar byggi sál sem þyrfti á frelsun að halda. Þeir drógu upp stóra bók og opn- uðu hana ábúðarfullir á miðopnu. Á hægri síðu var mynd úr aldin- garði þar sem kona las vínber, karl- maður, sennilega eiginmaður kon- unnar, hljóp á eftir fiðrildi og barn og lamb lágu saman við hliðina á ljóni sem tuggði strá. Á vinstri síðunni gat að líta eyðimörk, and- styggilegan stað, þurran og óhugn- anlegan. Eldar stóðu upp úr sand- inum og dimm óveðursský húktu yfir öllu. Önnur myndin endur- speglaði betur mína líðan en hin. Þessu næst spurðu vottarnir mig á hvorum staðnum ég vildi vera og eftir nokkra umhugsun benti ég á myndina með konunni og ljón- inu. Vottarnir urðu himinlifandi, merktu við á blaðinu sínu og héldu sinn veg, ein glötuð sál hafði ratað heim. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ég hefði ekki átt að ræða ögn lengur við vottana og reyna að leiða leiða þeim fyrir sjónir að heimurinn væri ekki svona svartur eða hvítur, að við mennirnir værum hvorki englar né drýslar og því væru margar aðrar myndir mögulegar í lífsins bók sem gætu verið ákjósanleg- ar og ekki síðri en þær sem þeir kynntu sem einu valkostina. Senni- lega hefði sú umræða verið tíma- eyðsla og hvorki bætt mína líðan eða þeirra. Það getur verið mjög hættu- legt að draga upp einlita mynd af flóknum veruleika. Öfgar eða ein- strengingsháttur geta skemmt fyrir hinum besta málstað. Fólk er ekki á móti umhverfisvernd vegna þess að það studdi byggingu Káranhjúkastíflu, menn vilja ekki einkarekið heilbrigðiskerfi bara vegna þess að þeir vilja nýta kosti einkarekstrar og stuðningur við sjálfstætt starfandi skóla jafngild- ir ekki því að vilja afnema jafn- rétti til náms. Heimurinn er flóknari en svo, myndirnar sem hægt er að draga upp miklu fleiri og fjölbreyttari en þær öfgar sem stundum er reynt að læða að sem einu valkostunum. Öfgarnar er víða að finna þessa dagana. Í aðdraganda kosning- anna hefur ekki farið mikið fyrir einu af helstu baráttumálum Sam- fylkingarinnar, aðild Íslands að ESB. Þó hafa margir talsmenn flokksins dregið upp þá mynd að valið standi á milli efnahagslegr- ar og pólitískrar hnignunar ann- ars vegar og hins vegar aðildar að ESB í öllu sínu veldi. Sú mynd er auðvitað alröng. EES-samningur- inn hefur sannað gildi sitt og Ís- land nýtur nú þegar flestra þeirra kosta sem aðild að ESB fylgja. Ekki er þar með sagt að það komi aldrei til greina að Ísland sæki um aðild, en til þess að svo verði þurfa hagsmunir þjóðarinnar að kalla eftir því. Kostirnir við aðild, umfram það sem EES veitir, verða að vera meiri en gallarnir sem af henni hljótast, annars er engin ástæða til að breyta núverandi fyrirkomulagi. Viðtal The Daily Telegraph við Jens Stoltenberg nú á dögun- um var mjög áhugavert. Þar kvað norski forsætisráðherrann upp úr með að Noregur myndi ekki í fyr- irsjáanlegri framtíð sækja um aðild að ESB. Fyrir okkur Íslend- inga eru þetta mikil tíðindi. Marg- ir hafa verið þeirrar skoðunar að ef Noregur gengi í ESB myndu forsendur fyrir EES-samstarf- inu breytast þannig að erfitt yrði fyrir okkur Íslendinga að standa áfram utan ESB. Þessar fréttir af afstöðu norska forsætisráðherr- ans ættu að vera þeim sem hafa áhyggjur af því að EES-samstarfið haldi ekki nokkur léttir. Jafnframt finnst mér líklegt að viðtalið dragi úr líkunum á því að Samfylking- in reyni að gera Evrópumálin að þungamáli í kosningunum. Norski verkamannaflokkurinn hefur talað fyrir inngöngu Norð- manna í ESB og þessi afstaða Stoltenberg því merkari en ella. Ábendingar hans um að Samein- uðu þjóðirnar hafi valið Ísland og Noreg þær þjóðir þar sem best væri að búa í heiminum, minna á að aðild að ESB er ekki forsenda fyrir góðu og innihaldsríku þjóð- lífi. En það þarf vart að taka það fram að Jens Stoltenberg er í hópi þeirra leiðtoga norrænna sósíal- demókrata sem ekki er boðið á Landsfund Samfylkingarinnar, hann hefði verið það sem kallað er veisluspillir. Af vottum og Norðmönnum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.