Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 12
„26. desember er hefðin sú að fara á strönd sem heitir Tumbledown Bay. Þar hittumst við, 50-60 manns, með jólamatarafganga og höldum „pikknikk“. Síðan köfum við eftir paua-skeljum og fiskum og grillum veiðina á ströndinni.“ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnar Hannes Biering, Laufásvegi 17, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 3. apríl kl. 13.00. Hulda Biering Margeir Gissurarson Rannveig Biering Jón Gunnar Biering Margeirsson Sigríður Aradóttir Bjarni Margeirsson Herdís Biering Guðmundsdóttir Valdimar Valdimarsson Kristín Sveinsdóttir Lára Sveinsdóttir Hulda og Kormákur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Agnes Auðunsdóttir lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, miðvikudag- inn 28. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma, langamma og langalangamma, Soffía Björnsdóttir Hjúkrunarheimilinu Dalbæ á Dalvík, áður til heimilis að Drápuhlíð 48 í Reykjavík, lést fimmtudaginn 29. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Grímur Björnsson Björg Jósepsdóttir Þorsteinn Björnsson Ásdís Arnardóttir Björn Á. Björnsson Elísabet Erlendsdóttir Páll Kristjánsson Ingibjörg Björnsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Helga Hafliðasonar Hátúni 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítalanum, Landakoti L5, fyrir umönnun og hlýtt viðmót. Helgi Helgason Anna Kristín Hannesdóttir Dagbjört Helgadóttir Þorkell Hjaltason Júlíus B. Helgason Hildur Sverrisdóttir Hafliði Helgason Barbara Helgason Ragnar Hauksson Josephine Pangolamus afabörn og langafabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðríður Eiríka Gísladóttir sem andaðist fimmtudaginn 22. mars á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ, verður jarðsungin í Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 2. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Skógarbæ. Rafn Kristjánsson Ingibjörg Rafnsdóttir Magnús Rafnsson Arnlín Óladóttir Sigríður Rafnsdóttir Rafn Jónsson Auður Rafnsdóttir Bett James Bett Hjördís Rafnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, bróður, mágs, afa og langafa, Antons Viggó Björnssonar rafmagnstæknifræðings, Barónstíg 43, Reykjavík. Anna María Antonsdóttir Valgarður Unnar Arnarson Linda Pettersen Bjarne Pettersen Ragnar Antonsson Guðbjörg Jensdóttir Björn Antonsson Cecilia Antonsson Theresia Erna Viggósdóttir Gísli Helgason barnabörn og barnabarnabörn. „Ég hef engar áhyggjur af því að húsið fyllist af fólki í tilefni dagsins því það trúir enginn að ég eigi afmæli,“ segir Sigurgeir Skúlason landfræðingur sem á stórafmæli í dag, 1. apríl. „Ég er fimmtugur, það er víst. Alla vega segir mamma það,“ segir Sigurgeir og bætir við að hann hafi gaman af því að eiga afmæli á þessum degi. „Í seinni tíð hef ég haft gaman af þessu en sem krakki var þetta ekki eins gaman því þá var ég reglulega plataður á afmælisdag- inn. Nú er það ég sem plata aðra,“ segir Sigurgeir hress í bragði. Spurður um sögur tengdum apríl- göbbum sem hann hefur orðið fyrir segir hann af mörgu að taka. „Ég var alinn upp í sveit og oft var ég platað- ur til þess að hlaupa upp í fjárhús þar sem mér hafði verið sagt að kindin mín væri borin. Oftast var þetta eitthvað í tengslum við sveitina og fyrir vikið tók ég öllu með fyrirvara á þessum degi. Sama hvað ég heyrði.“ Í dag hefur Sigurgeir snúið vörn í sókn og platar sjálfur á afmælisdag- inn sinn. Hann vill þó ekki taka undir að hann sé stríðinn. „Ekki að mínu mati en börnin mín eru örugglega ósammála mér. Þau segja að ég sé alltaf að plata þau eitthvað, kannski af því að ég fædd- ist á þessum degi.“ Sigurgeir ætlar að eyða afmælisdeg- inum í að horfa á son sinn keppa í körfu- bolta með Fjölni. „Ég ætla að njóta þess að horfa á hann keppa á Íslandsmót- inu yfir helgina. Dóttir mín er einn- ig að keppa en því miður næ ég ekki að horfa á hana líka. Ég hugsa að ég geri lítið annað yfir helgina enda miklu skemmtilegra að horfa á börnin keppa en halda einhverja veislu. Svo er alltaf möguleiki á að konan eldi góðan mat í tilefni dagsins.“ Skúli Sverrisson hyggst rífa fram bassann og stíga á stokk með hljóm- sveitinni Blonde Redhead. Skúli hefur starfað með sveitinni um árabil og hefur meðal ann- ars leikið inn á þrjár plötur en samkvæmt fréttatilkynningu frá tónleikahaldar- anum Grími Atla- syni er ákaflega sjaldgæft að hann sé með Blonde Redhead á sviðinu. „Hann gerði það reyndar í Austurbæjarbíói 2004 á mjög eftirminnileg- um tónleikum,“ segir Grímur. Blonde Redhead verður á faraldsfæti í ferð sinni hingað til lands. Hún leikur á Nasa 5. apríl ásamt Kristin Hersh og hinni vestfirsku Reykjavík!. En sveitin heldur síðan rakleiðis til Ísafjarð- ar þar sem hún tekur þátt í tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Samkvæmt upplýsingum hjá Grími gengur miðasal- an á tónleika sveitarinnar á Nasa ákaflega vel en nokkr- ir miðar eru þó eftir. Skúli á bassann með Blonde Redhead We Are the World gefið út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.