Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 15

Fréttablaðið - 01.04.2007, Side 15
sem borga mesta skattinn. Hvað finnst ykkur um manninn með hatt- inn sem borgar ekki skattinn? Fólk- ið sem berst á í þjóðfélaginu en samkvæmt framtölum á 7 krónur? Þorsteinn: Þetta er blásið upp á hverju ári og jafnvel alið á smá öfund. Það er ríkt fólk í landinu og það er bara gott. Þetta fólk rekur kannski stór fyrirtæki sem borga skatt og halda uppi störfum. Hins vegar er auðvitað ekki gott ef fólk er að svíkja undan skatt. En ef þú þarft lögum samkvæmt ekki að borga skatt, afhverju að gera það þá? Hvað finnst þér Brynja? Brynja: Ég hef trú á því að flestir Íslendingar séu löghlýðnir og séu ekki að svíkja undan skatti en þess- ir auðmenn sem berast á standa í mikilli orrahríð. Ég held ekki að þeir séu viljandi að reyna að stuða fólk með því að reyna að sleppa við að borga skatt þannig að mér finnst þessi umræða alltaf hálfleiðinleg. Það að viðskiptamönnum gangi vel á Íslandi og erlendis er ekkert nema jákvætt fyrir okkur þannig að þetta er dálítið ósanngjarnt. Ég skil ekki afhverju við ættum að vera að nöldra yfir því að einhver hafi það betri en hinn þegar þetta skilur sér allt að lokum til okkar í auknum hagvexti. Þorsteinn: Ég held að fólk gleymi einu. Ríkt fólk í mörgum löndum hegðar sér mjög illa. Er flækt í mafíustarfsemi, eiturlyf og glæpi og annað eins. Það versta sem þetta ríka fólk gerir á Íslandi er kannski að fá Elton John til að syngja í af- mælinu sínu. Við erum með besta ríka fólkið í heimi og við eigum að hætta að öfundast út í það – þetta væri verið miklu verra. Eru stjórnmálin okkar líka þau bestu í heimi? Hvar viljið þið staðsetja þau á mælikvarðanum leiðinleg, lala eða skemmtileg? Þorsteinn: Leiðinleg. Það er ótrú- lega lítið skemmtilegt við stjórn- mál og það er undarlegt hvað þetta fólk er flest allt bara „boring“. Sumir sleppa með að vera ágæt- ir og aðrir eru algjörlega húm- orslausir og hlæja ekki að neinum nema sjálfum sér eins og Guðni Ágústson. Ég reyndi einu sinni að lemja stjórnmálamann með bók, hann Mörð Árnason. Brynja: Mörður náði nýjum hæðum um daginn þegar hann tengdi bíl- beltaauglýsingu við bláu hönd- ina og Sjálfstæðisflokkinn. Sagði að þessi almannaheillarauglýsing væri áróðursauglýsing fyrir þá. Þorsteinn: Íslenskir stjórnmála- menn eru örvæntingarfullir og óöruggir með sig og hlaupa á eftir skoðanakönnunum og tískusveifl- um í þjóðfélaginu. Þess vegna þora þeir aldrei að vera afslapp- aðir og þeir sjálfir. Ef þeir hefðu einhverja stefnu, þó hún væri ekki alltaf sú vinsælasta, þá væru þeir betri. En þetta er svo desperat lið. Brynja: Fólkið sem er að koma inn á vinstri vænginn finnst mér skemmtilegt. Mér finnst Sóley Tómasdóttir stórskemmtileg og sömuleiðis er ég hrifin af Katrínu Júlíusdóttur. Þorsteinn: En er Sóley komin inn á þing? Hún nefnilega verður leið- inleg þegar hún kemur inn. Össur getur verið skemmtilegur og hann er indæll. Er ekki aðeins meira stuð í kringum forsetaembættið? Eigið þið ykkur einhvern eftirlætis for- seta? Þorsteinn: Vigdís Finnbogadóttir. Brynja Björk: Segi það sama. Hún er fyrsti þjóðkjörni kvenforsetinn og á sínum tíma var það mjög stórt skref og frábær kynning fyrir Ís- land. Þorsteinn: Ég held að sú kosning hafi verið það besta sem Íslend- ingar hafa gert í sínum markaðs- málum. Ég fer út um allan heim og fólk þekkir Vigdísi alls staðar og ber virðingu fyrir henni. Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað hún gerði rosalega mikið fyrir landið. Brynja: Hún hefur alltaf verið í forsvari fyrir konur og góður full- trúi þjóðarinnar. Ég er ekki alveg nógu sátt við þann forseta sem er í embætti núna. Forsetaembættið á ekki að vera pólitískt og því finnst mér að kjósa mann í þetta embætti sem er jafn pólitískur og hann er mistök. Þorsteinn: Forsetinn pirrar mig ekkert en ég held hann hafi gert mistök með því að stöðva fjöl- miðlalögin. Við erum lítil þjóð og við þurfum að standa vörð um sam- keppni. Ef eitt fyrirtæki er farið að eiga meiripartinn af fyrirtækjum í landinu og fjölmiðla líka – þá fáum við einhliða mynd af því sem er að gerast. Og það er bara ekki sniðugt. Ég er ekkert á móti þessu fyrir- tæki, það er bara of stórt. Það hefði verið allt í lagi ef þeir hefðu fundið sér aðra hluti til að gera meðfram rekstri fyrirtækja sinna en fjöl- miðlarekstur. Nú eiga þeir 10-15 fyrirtæki sem koma að fjölmiðlum á Íslandi. Og það hefur áhrif. Brynja: Ég tel það að stoppa þessi fjölmiðlalög sé hreinlega gott dæmi um þann karakter sem for- setinn hefur að geyma. Þó þú sverj- ir embættiseið þá hendirðu ekkert þínum pólitísku gildum í ruslið. Að lokum, hver er hinn íslenski draumur? Þorsteinn: Ég held að hann sé að fá opnu af minningargreinum í Morgunblaðinu. Ekki bara eina síðu heldur næstu líka. Breið- opnu. Allir skrifa að þeir hafi elsk- að þig og hafi borið virðingu fyrir þér. Ég held að það fyrsta sem fólk geri þegar það deyr, sé að kaupa sér Morgunblaðið og fletta upp á sjálfu sér. Það er gott að fá blöndu – einhvern vin, vinnufélaga, úr fjölskyldunni og helst einhverja formenn stéttarfélaga. Brynja: En er þá ekki hálflummó ef allir vinnufélagarnir taka sig saman og skrifa bara svona stutta klausu? Þorsteinn: Jú, það er halló. Það væri ágætt ef þið skrifið bara minning- argrein – væruð þið ekki til í það? Og Helga Braga? Ég á það nú inni. Brynja: Minn íslenski draumur er bara að reyna að gera heim- inn betri á hverjum degi, kannski engar stórvægilegar breytingar, en betri í dag en í gær. Nordica hotel Su›urlandsbraut 2 S. 444 5050 VOX Restaurant Opi› flri.- lau. 18.30 - 22.30 VOX Bistro Opi› alla vikuna 11.30 - 22.30 www.vox.is E N N E M M / S ÍA / N M 2 6 9 11 Tilbo› á gistingu á www.icehotels.is Páskablús Blúshátí› á Nordica hotel 3.-5. apríl (sjá www.blues.is) Páskabrunch 5., 6., 8. og 9. apríl kl. 11.30-14.00 Happy Hour alla daga á barnum kl. 17-19 MATSE‹ILL 1 Sesarsalat Romaine salat, kjúklingur, brau›kru›ur, parmesanostur Lambakótelettur Grilla› grænmeti, kartöflusalat 2.750 kr. MATSE‹ILL 2 Andalæri Sulta› me› appelsínugljáa, klettasalat Hl‡ri Bygg, rau›vínssósa, rótargrænmeti 2.700 kr. MATSE‹ILL 3 Norrænn tapas Rækjur, birkireyktur lax, síld, kavíar, rúgbrau› Svínalundir Gratin me› nor›lenskum grá›aosti, salat 3.150 kr. 3.-5. apríl Girnileg páska- og blúshátí› Bor›apantanir í síma 444 5050.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.