Fréttablaðið - 01.04.2007, Síða 30
Vaktstjórar
Óskum eftir að ráða vaktstjóra í sumarafleysingar.
Reynsla af verslunarstörfum og/eða vaktstjórn skilyrði.
Aldurstakmark 20 ára.
Kjötmaður
Kjötmaður óskast á vaktir í Nóatúni 17.
Kjötstjóri óskast í Nóatún Grafarholti.
Fiskborð Nóatúns Grafarholti og Rofabæ
Við leitum nú eftir jákvæðum og þjónustuliprum aðilum í fiskborð Nóatúns í Grafarholti og
Rofabæ. Reynsla eða þekking af sambærilegu starfi æskileg.
Spennandi störf í boði!
í hópinn
Við bjóðum ykkur
velkomin
Sækið um á vefnum www.noatun.is eða sendið umsókn á Kaupás hf.
Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík, b.t. Guðríður.
Í Nóatúni vinnur mikið af hæfileikaríku fólki sem myndar samheldinn hóp og leggur sig fram
við að veita viðskiptavinum Nóatúns fyrsta flokks þjónustu.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Nánari
upplýsingar
í síma
561 5900
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ert þú í
atvinnuleit?
Fjöldi starfa í boði.
» Kannaðu málið á www.hhr.is
» Ráðningarþjónusta
Skrifstofustörf
Lagerstörf
Verslunarstörf
Bókhaldsstörf
Ræstingarstörf
Sérfræðistörf
Útkeyrslustörf
Sölustörf
Stjórnunarstörf
Störf við kerfisstjórn
Störf við forritun
Framleiðslustörf
Iðnstörf
Þjónustustörf
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum,
leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum
umsagna.
Markviss leit
Nýr hugbúnaður gerir leit mjög
markvissa og tryggir að við
finnum hæfasta einstaklinginn
til starfsins.
Kostir þess að nýta sér þjónustu
Enginn auglýsingakostnaður
Við sjáum um að auglýsa starfið
eins og þörf krefur án þess að
til komi aukakostnaður.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir eða er sagt
upp störfum innan þriggja
mánaða er ráðning í hans stað án
endurgjalds.
Steinþóra Þórisdóttir
er menntuð sem líf-
eindafræðingur frá
Tækniháskóla Íslands og
útskrifaðist þaðan árið
1996. Í dag starfar hún
hjá Encode - íslenskum
lyfjarannsóknum og hefur
eftirlit með því að rann-
sóknir fari þar rétt fram.
„Starf mitt felst í því að
fylgjast með hvort farið sé
eftir reglum og reglugerð-
um við rannsóknavinnu og
reglurnar þarf ég að hafa
alveg á hreinu. Svo þarf
ég líka að fara yfir vinnu
lækna og hjúkrunarfræð-
inga og sannreyna hvort
þeirra vinnubrögð hafi verið
eftir bókinni. Hvort allt hafi
verið fært inn rétt og hvort
öll gögn séu ófölsuð,“ segir
Steinþóra og útskýrir nánar.
„Á íslensku er starfstitill-
inn minn vaktari, sem mér
þykir fremur óspennandi
orð, en á ensku kallast fólk
í mínu starfi CRA eða Clin-
ical Research Associate.
Bakgrunnsmenntun úr heil-
brigðisgeiranum er mjög
góð fyrir þetta starf og ég
verð að segja að menntun
mín í lífeindafræði hefur
reynst mér vel á þessu sviði.
Lífeindafræði gengur nefn-
inlega fyrst og fremst út á
rannsóknir á mannfólki,“
segir Steinþóra.
„Þegar ég var að velja mér
nám á sínum tíma hafði
ég hug á að fara í líffræði
en svo komst ég að því að
mig langaði ekkert til að
læra um plöntur, fiska og
dýr. Lífeindafræðin var því
kjörinn valkostur því þar
lærir maður um það sem
gerist í mannslíkamanum.
Stór hluti af náminu felst til
dæmis í blóðrannsóknum og
að greina sjúkdóma úr blóð-
prufum. Margir sjá starf
lífeindafræðingsins þannig
fyrir sér að hann sitji og
taki blóð allann daginn, en
það er þó í raun bara örlít-
ill hluti af starfinu. Sjálf er
ég sérmenntuð í blóðmeina-
og vefjafræðum, en í vefja-
fræðum skoðar maður vefi
í smásjá þannig að hægt
er að horfa í þá og greina
sjúkdóma,“ segir Steinþóra
Þórisdóttir, sem nú hefur
snúið sér frá blóði og frum-
um og er komin yfir í lyfja-
rannsóknir. „Mitt sérsvið
í dag er að fara yfir rann-
sóknir á lyfja- og lyfleysu-
tilraunum, en niðurstöður
úr þeim geta oft verið mjög
forvitnilegar.“
Rannsakar
rannsóknir