Fréttablaðið - 01.04.2007, Page 34

Fréttablaðið - 01.04.2007, Page 34
KÓPAVOGSBÆR LAUS STÖRF BÆJARSKIPULAG: • Landslagsarkitekt Vatnsveita Kópavogs: • Pípulagningamaður • Starfsm. í jarðlagnatækni Félagsstarf aldraðra: • Gjábakki, matráður 80% sími 554 3400 kl. 10-11 Félagsþjónusta Kópavogs: • Liðveitandi/persónulegur ráðgjafi og tilsjón • Aðstoð við heimilisstörf • Stuðningsfjölskyldur Roðasalir, sambýli og dagþjálfun fyrir heilabilaða: • Sjúkraliði 100% starf • Sjúkraliðanemi í hlutast. með námi • Starfsmaður til aðhlynningar GRUNNSKÓLAR KÓPAVOGS: Hjallaskóli: • Umsjónarkennari á yngsta stig • Deildarstjóri eldra stigs • Kennari í leikrænni tjáningu Hörðuvallaskóli: • Deildarstjóri á miðstig • Umsjónarkennari í 1. bekk • Umsjónarkennari í 6. bekk • Umsjónarkennari í 7. bekk • Sérkennari - hlutastarf Kársnesskóli: Laus staða skólaárið 2007-2008: • Stærðfræðikennari á unglingastigi Salaskóli • Táknmálskennari í hlutastarf • Stuðningsfulltrúi 50% • Textílkennari tímab. v/afleysinga Vatnsendaskóli: Lausar stöður skólaárið 2007-2008: • Aðstoðarskólastjóri • Deildarstjóri, verkefni m.a. námsskrá, námsmat og sjálfsmat skólans • Námsráðgjafi • Bókasafnskennari • Heimilisfræðikennari • Íþróttakennari • Smíðakennari • Myndmenntakennari • Tónmenntakennari • Dönskukennari • Íslenskukennari í unglingadeild • Náttúrufræðikennari í unglingad. og teymisvinnu með 1. – 7. bekk • Umsjónarkennari í 5. - 6. bekk • Stuðningsfulltrúi 100% • Starfsfólk í Dægradvöl 50 – 60% LEIKSKÓLAR KÓPAVOGS: Arnarsmári: 564 5380 • Leikskólakennari • Sérkennslustjóri • Matráður Dalur: 554 5740 • Leikskólakennari Efstihjalli: 554 6150 • Leikskólakennari Fagrabrekka: 554 2560 • Leikskólakennari Fífusalir: 570 4200 • Leikskólakennarar • Aðstoð í eldhús 100% starf Grænatún: • Leikskólakennari/leiðbeinandi Smárahvammur: 564 4300 • Leikskólakennari í sérkennslu, fullt starf Urðarhóll – Heilsuleikskóli: 554 7789 • Deildarstjóri • Fagstjóri í íþróttum • Leikskólakennarar • Þroskaþjálfi Nánari upplýsingar á: www.kopavogur.is og www.job.is Orkuveita Reykjavíkur ræður árlega á þriðja hundrað námsmanna í sumarstörf í hinar ýmsu deildir. Sólrún Kristjáns- dóttir er verkefnastjóri starfsþróunar og veit meira um málið. „Sumarstörfin sem við bjóð- um ungu fólki upp á tengjast þeim fögum sem það lærir yfir veturinn,“ segir Sólrún. „Við ráðum til dæmis iðn- nema úr rafvirkjun, pípu- lögnum og smíðadeildum. Við fáum viðskiptafræðinga í fjármál, verkfræðinema í verkfræðideildina og svo höfum við alltaf verið með um 20 sérverkefni sem við ráðum háskólanema í, hvort sem það eru rannsókn- ir eða einhver átaksverk- efni sem þeirra menntun nýtist í. Fólk á framhalds- skólaaldri fær vinnu í úti- deild sem sér um viðhald á lóðum og fleiru, bæði hér á Bæjarhálsi, á Nesjavöllum og á Hellisheiðinni og líka ýmis innistörf á skrifstofu.“ Þegar Sólrún er beðin að nefna dæmi um störf sem tengjast vissu námi lítur hún yfir verkefnaskrána. „Tölvuþjónustan vill ráða tölvu- eða verkfræðinema í afleysingar og greiningar- deild ætlar að ráða verk- og tæknifræðinema í ýmis verkefni í sambandi við heitt og kalt vatn, bilanaskrán- ingu og rannsókn á tækni- vinnu á rafmagnssviði, svo eitthvað sé nefnt. Ann- ars eru nánari upplýsingar um þetta allt inni á vefnum okkar sem er www.or.is, þar er linkur inn á sumarvefinn okkar. Fólk sækir líka um á vefnum. Við erum með um- sóknarfrest til 31. mars og ætlum að reyna að svara um miðjan apríl. Áætlað er svo að almenn vinna byrji 1. júní og standi til 10. ágúst.“ Sumarstörf sem tengjast námi Lækkun á félagsgjöldum og 412 milljón króna framl í VR varasjóð félagsmann var meðal þess sem samþykkt var á aðalfundi VR. Aðalfundur VR 2007, sem haldinn var mánudags- kvöldið 26. mars, sam- þykkti lækkun félagsgjalds um 30%, 412 milljóna króna framlag í VR varasjóð fé- lagsmanna og breytingu á því hvernig staðið er að vali á forystu félagsins. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir þessar tillögur miða að því auka lýðræði í félag- inu og færa félagsmönnum ávinninginn af sterkri stöðu VR undanfarin ár. Í VR eru nú 26 þúsund félagsmenn og snerta þessar breytingar því um fjórða hvern starf- andi mann á höfuðborgar- svæðinu. Tillaga um lækkun félags- gjalds úr 1% af heildarlaun- um í 0,7% var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundinum. Gunnar Páll segir stjórn hafa metið það svo að nú væri tækifæri til að lækka félagsgjaldið og því afráðið að leggja til- lögu þess efnis fyrir fund- inn. Félagið hefur verið rekið með góðum hagnaði undanfarin ár en hagnaður af starfsemi VR árið 2006 var 980 milljónir króna sem er methagnaður. Lækkun félagsgjaldsins til framtíð- ar er því liður í því að láta félagsmenn njóta þessarar góðu rekstrarafkomu. VR varasjóður var stofn- aður í fyrra með rúmlega 850 milljóna króna stofn- framlagi. Aðalfundurinn samþykkti að leggja 412 milljónir króna inn á sjóð- inn í ár. Allir félagsmenn munu fá sent yfirlit á næstu dögum þar sem fram kemur hversu mikið lagt er inn á sjóð hvers og eins. Frétt af www.vr.is Félagsgjald VR lækkað um 30%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.