Fréttablaðið - 01.04.2007, Page 74
Börn og umhverfi
Námskeið fyrir ungmenni á 12. aldursári og eldri. Kennt er fjóra eftirmiðdaga kl. 17-20
augavegi 120, 5. hæð. Námskeiðsgjald er kr. 7500.
og
gengar slysabætur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu
. apríl
rútbúnaður.
iði
gar í síma 545 0400 og reykja
í húsnæði Reykjavíkurdeildar L
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík
samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir
al
og starf Rauða krossins. Leiðbeinendur eru leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar.
Næstu námskeið:
11.-12, og 16.-17. apríl
Innifalið: Námsgögn, hressing
og skyndihjálpa
23.-24. og 25.-26
2.-3. og 7.-8. maí
Staðfestingarskírteini að námske
loknu.
Skráning og nánari upplýsin vik@redcross.is
ss.is/reykjavikHeimasíða: www.redcro
DHL-deild kvenna:
Stjarnan er verðugur
Íslandsmeistari í kvennaflokki
í handbolta en Stjörnustúlkur
fengu bikarinn afhentan í gær þó
svo að þrjár umferðir séu eftir af
Íslandsmótinu. Helsti keppinaut-
ur Stjörnunnar í vetur var Valur
en liðið gaf verulega eftir í síð-
ustu leikjum og þar af leiðandi er
Stjarnan orðin meistari fyrr en
kannski var búist við.
„Það var pínulitið skrítið að
mæta til leiks og vera orðin
meistari án þess að spila. Engu
að síður var það búið að vera bak
við eyrað að þetta væri komið hjá
okkur og því setti það ekki mikið
strik í reikninginn. Við vorum
spenntar að mæta í leikinn og
staðráðnar í að skemmta okkur.
Svo var umgjörðin alveg frábær
og fullt af fólki þannig að það
var ekki annað hægt en að hafa
gaman af þessu. Þetta er rosa-
lega góð tilfinning, það er ekki
hægt að neita því,“ sagði Stjörnu-
stúlkan Rakel Dögg Bragadóttir,
sem hefur farið hreint á kostum
með Stjörnuliðinu í vetur og verið
þess besti maður.
„Við kláruðum alla leiki, fyrir
utan Valsleikinn í annarri um-
ferð, mjög vel. Við höfum verið
mjög sterkar í allan vetur enda
er liðið í góðu formi,“ sagði Rakel
Dögg en er hún ekkert svekkt yfir
því að fá ekki meiri samkeppni en
raun ber vitni?
„Ég er hissa á því hvað gerðist
hjá Val og maður átti ekki alveg
von á þessu. Annars vildum við
bara vinna titilinn og okkur var
eiginlega sama hvort það væri
svona eða í úrslitaleik undir
lokin. Við vildum bara vinna. Það
voru samt vonbrigði að taka ekki
bikarinn líka en hann kemur bara
á næsta ári. Svo er einn bikar
eftir núna og við ætlum svo sann-
arlega að taka hann líka,“ sagði
Rakel Dögg.
„Þetta er frábær áfangi fyrir
þessar stelpur sem eru að verða
Íslandsmeistarar í fyrsta skiptið.
Þær eru að stíga skrefið frá því að
vera yngri flokka leikmenn yfir
í það að verða alvöru meistara-
flokksleikmenn. Ég er rosalega
glaður að fá að stíga þetta skref
með þeim. Þetta er mikið af leik-
mönnum sem ég er búinn að
þjálfa síðan þær voru í 4. flokki
og sumar enn fyrr,“ sagði Aðal-
steinn Eyjólfsson, stoltur þjálf-
ari Stjörnuliðsins. „Við lentum í
niðursveiflu í janúar sem ég tek
að hluta til á mig. Við gleymdum
okkur svolítið í velgengninni og
mættum ekki nægilega undirbúin
í fyrstu leikina í janúar,“ segir
Aðalsteinn.
„Ég er gríðarlega stoltur af
stelpunum. Þær eru búnar að æfa
gríðarlega vel frá því í maí. Ragn-
ar Hermannsson á heiður skilinn
fyrir sína vinnu í liðinu. Hann
hefur skilað frábæru starfi og við
höfum unnið mjög vel saman,“
segir Aðalsteinn en Ragnar hefur
unnið mikið með líkamlega þátt-
inn hjá liðinu.
Aðalsteinn segir Stjörnuliðið
vera betra en ÍBV-liðið sem hann
gerði að meisturum og fór með
alla leið í undanúrslit Evrópu-
keppninnar. „ÍBV-liðið mitt var
fyrst og fremst sóknarlið, spilaði
hraðan bolta og ég keyrði það lið á
sjö leikmönnum meira og minna.
Þetta lið er betra, miklu betra
varnarlega og með betri mark-
mann. Þetta lið er sambland af
ÍBV-liðinu sem ég var með 2003
og meistaraliði Hauka sem Ragn-
ar Hermannsson var með árið
2000,” sagði Aðalsteinn.
Stjörnustúlkur tóku á móti Íslandsbikarnum í gær eftir öruggan sigur á Akureyri. Stjarnan var reyndar
orðin meistari kvöldið áður þegar Valur tapaði fyrir Gróttu en Stjörnustúlkur létu það ekki hafa áhrif á
sig. Þær mættu kátar og ákveðnar til leiks í gær og buðu fjölmörgum áhorfendum upp á skrautsýningu.