Fréttablaðið - 01.04.2007, Síða 76

Fréttablaðið - 01.04.2007, Síða 76
 Framherjinn hávaxni Peter Crouch stal senunni í stór- leik helgarinnar í enska boltanum. Crouch skoraði þrennu í 4-1 stór- sigri Rauða hersins. Leikmenn Arsenal áttu mjög dapran dag eins og úrslitin bera með sér. Crouch hefur með frammistöðu sinni gert tilkall til sætis í byrjun- arliðinu í Meistaradeildinni í vik- unni. „Fram undan er mjög mikilvæg- ur Meistaradeildarleikur og það er ánægjulegur vandi sem blasir við mér eftir þennan leik,“ sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool, en hann tók Steven Gerrard af velli til þess að hvíla hann. „Leik- aðferð dagsins var aftur á móti sérstaklea hönnuð fyrir þennan leik og við verðum hugsanlega með aðra leikaðferð í Eindhoven.“ Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ekki gaman af því að mæta Liverpool enda hefur Arsenal gengið verst gegn Liverpool af öllum liðum síðan Wenger tók við stjórnartaumunum hjá Arsenal. „Varnarleikurinn hjá okkur var hræðilegur. Munurinn á liðunum var Crouch en við réðum einfald- lega ekkert við hann, sérstaklega í loftinu, enda komu öll mörkin hans eftir sendingar af kantinum. Hann átti einnig nokkur góð hlaup og við vorum aldrei nálægt honum. Gerr- ard átti einnig fína spretti og fann holur til að athafna sig í. Liverpool átti þennan sigur svo sannarlega skilinn,“ sagði Wenger. Arsenal er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og Wenger sagði ljóst að liðið yrði að leika mun betur ef það ætlaði sér sæti þar á næstu leiktíð. Þrenna Crouch sökkti slöku liði Arsenal DHL-deild karla: Leikir dagsins: Enska úrvalsdeildin: Salomon Kalou sá til þess að kapphlaupið um enska meistaratitilinn er enn æsispenn- andi þegar hann tryggði Chelsea sigur á Watford, 1-0, með marki þegar tvær mínútur voru komn- ar fram yfir venjulegan leiktíma. Man. Utd hafði fyrr um daginn unnið frábæran sigur á Black- burn, 4-1. „Við töldum okkur þurfa sigur til að halda í vonina um titilinn. Þetta var mikil barátta og þeir gerðu okkur erfitt fyrir. Sem betur fer náði Salomon að setja eitt,“ sagði John Terry, fyrir- liði Chelsea, og stjórinn José Mourinho játaði einnig að bar- áttan hefði verið búin ef Chelsea hefði ekki tekið þrjú stig í leikn- um. „Það yrði nánast vonlaust að ná United ef munurinn væri átta stig,“ sagði Mourinho. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var að vonum kampakátur með sína stráka sem voru undir 1- 0 í hálfleik. „Frammistaðan í síð- ari hálfleik var sú besta hjá okkur á tímabilinu. Maður væntir svona frammistöðu frá meistaraliði. Ég held að áhorfendurnir séu farn- ir að finna lyktina af titlinum og gott ef það sama á ekki einnig við um leikmennina,“ sagði Fergu- son. Kalou hélt lífi í kapphlaupinu Síðustu þrjár umferð- irnar í DHL-deild karla verða væntanlega gríðarlega spennandi enda eru Valur og HK jöfn að stig- um á toppnum. Valur heldur topp- sætinu sökum innbyrðisviður- eigna. HK lagði Val sannfærandi, 29-22, í Digranesi í gær. „Valsmenn voru hræddir. Mér fannst það. Hvítir og hræddir. Þeir eru búnir að vera með rosa- legan kjaft í útvarpinu og svona en þeir voru alveg teknir í þú veist hvað hér í dag,“ sagði HK-ingur- inn Valdimar Þórsson glaðbeittur eftir leik en hann var mjög öflug- ur, skoraði góð mörk og lagði upp önnur. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en leiðir skildu fljót- lega í síðari hálfleik. HK kom mjög framarlega á miðjumann og vinstri skyttu Vals og við það riðlaðist sóknarleikur liðsins al- gjörlega. Valur átti engin svör við þessum frábæra varnarleik og þau skot sem rötuðu á markið enduðu flest í Petkevicius, mark- verði HK. Munurinn varð fljótlega fimm mörk, 20-15, og HK leit aldrei til baka eftir það. Leikur liðsins hrundi ekki á síðustu mínútunum eins og í síðustu leikjum. Sigur liðsins var mjög sanngjarn. „Við fundum okkur aldrei í þess- um leik og vorum alltaf að elta. Munurinn var ekki svona mikill á liðunum en þeir áttu samt sig- urinn skilinn,“ sagði eini leikmað- ur Vals sem var með einhverri meðvitund í gær, Markús Máni Michaelsson. „Þessi vörn átti ekki að koma okkur svona á óvart. Við verðum að læra af þessu.“ Valdimar segir að síðustu um- ferðirnar verði áhugaverðar. „Nú er hrikaleg pressa á þeim. Þeir eiga þrjá erfiða leiki eins og við og það verður spennandi að sjá hvað gerist.“ Lokaumferðirnar í DHL-deild karla verða æsispennandi. HK komst upp að hlið Vals með sigri á Hlíðarendaliðinu, 29-22, í gær. Frábær vörn og markvarsla Kópavogsliðsins lagði grunninn að sigrinum. Valur átti engin svör.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.