Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 4
 Cho Seung-hui sem skaut 32 til bana og fyrirfór sér í Virginia Tech-háskólanum í Bandaríkjunum á mánudag sendi sjónvarpsstöðinni NBC pakka með myndböndum, ljósmyndum og texta á milli árásanna tveggja. NBC sýndi myndböndin í gær við litla hrifningu lögreglu og aðstand- enda fórnarlambanna og hafa þau vakið mikinn óhug í landinu. Cho gerði myndböndin og tók ljósmyndir af sjálfum sér á milli árásanna, en þær voru gerðar með um tveggja klukkustunda milli- bili. Á myndböndunum sést hann tala nokkuð ruglingslega um ákvörðun sína, líkir væntanlegum dauða sínum við píslargöngu Jesú Krists og skellir skuldinni á við- mælandann. Ekki er ljóst að hverj- um hann beinir orðum sínum, en líklegt þykir að hann tali til samfé- lagsins í heild. Þá talar hann um „píslarvotta eins og Eric og Dylan“ og vísar þar til Erics Harris og Dylans Klebold, sem myrtu tólf nemendur í Columbine-háskólan- um árið 1999. Í pakkanum sem hann sendi NBC voru 28 myndskeið, 43 mynd- ir og 23 blaðsíðna yfirlýsing. Á ell- efu myndanna sést hann beina skotvopni að sjálfum sér. Þá eru myndir þar sem hann ber hníf upp að hálsinum á sér, auk þess sem hann heldur vígalega á hamri á einni myndinni. Vangaveltur hafa verið uppi um hvort Cho gæti mögulega hafa verið undir áhrif- um frá suður-kóresku kvikmynd- inni Oldboy, en hamar var ein- kennisvopn aðalsöguhetju myndarinnar, og þykir stelling Chos á myndinni líkjast mjög atriði úr kvikmyndinni. Aðrir hafa kallað þá kenningu fáránlega. Lögregla gagnrýndi í gær þá ákvörðun NBC að sýna myndbönd- in. Þau hefðu lítið upplýsingagildi en væru afar særandi fyrir aðstandendur fórnarlambanna. Nokkrir aðstandendur hættu við að koma fram í viðtali hjá NBC vegna sýningarinnar. Eins og fram hefur komið var kvartað undan áreiti af hálfu Chos, árið 2005, og í kjölfarið var honum gert að gangast undir geðrann- sókn. Læknir taldi hann geta verið hættulegan sjálfum sér og öðrum. VIÐ HUGSUM LENGRA Kynntu þér okkar mál á www.vg.is Málflutningur í Hæsta- rétti í máli ákæruvaldsins gegn Jónasi Garðarssyni, fyrrverandi formanni Sjómannafélags Reykja- víkur, fer fram í dag. Jónas var dæmdur í þriggja ára óskilorðs- bundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi en Matthildur Harðardótt- ir og Friðrik Ásgeir Hermannsson létust er skemmtibátur Jónasar steytti á Skarfaskeri í september 2005. Dómur Jónasar er þyngsti dómur sem einstaklingur hefur fengið hér á landi fyrir manndráp af gáleysi. Jónas hélt því fram fyrir dómi að Matthildur hefði stýrt bátnum er slysið varð en á það féllst dóm- urinn, sem var fjölskipaður, ekki. Í dómsorði er Jónas sagður hafa gerst sekur um „það óskaplega til- tæki“ að bera það upp á látna konu að hafa stýrt bátnum er augljóst hefði verið, út frá því er fram kom fyrir dómi, að hann hefði verið undir áhrifum áfengis við stýrið er báturinn steytti á skerinu. Jónas var auk þess dæmdur til þess að greiða aðstandendum Matthildar og Friðriks Ásgeirs níu milljónir króna í miskabætur auk fjögurra milljóna í sakarkostnað. Jónas áfrýjaði dómi héraðsdóms en rúmir tíu mánuðir eru síðan dómur var kveðinn upp í héraðs- dómi. Fékk þyngsta dóm sögunnar Íraskir uppreisnarmenn undir stjórn al-Kaída hryðjuverka- samtakanna sendu frá sér myndband í gær þar sem tuttugu íraskir lögreglumenn sjást teknir af lífi. Mennirnir sem eru bundnir og keflaðir voru skotnir í höfuðið hver á fætur öðrum. Herskáir súnnímúslímar fullyrtu á laugardag að þeir hefðu mennina tuttugu í haldi og hótuðu að myrða þá ef íraska ríkisstjórnin leysti ekki úr haldi nokkra kvenkyns fanga og afhentu þeim einnig lögreglumenn sem sakaðir höfðu verið um nauðgun. Ekki hefur fengist staðfest hvort myndbandið er ósvikið. 20 teknir af lífi á myndbandi Líkir dauða sínum við píslargöngu Krists Sjónvarpsstöðin NBC sýndi í gær myndbönd og ljósmyndir sem fjöldamorð- inginn úr Tækniháskólanum í Virginíu gerði og sendi NBC á milli árásanna tveggja. Sýningin hefur vakið óhug og hörð viðbrögð aðstandenda og lögreglu. Pálína Vagnsdóttir, athafnakona úr Bolungarvík, leiðir lista Íslandshreyfingarinn- ar – lifandi lands – í Norðvestur- kjördæmi. Næstu fjögur sæti á listanum skipa Sigurður Valur Sigurðsson, ferðamálafræðingur frá Akranesi, sem er í öðru sæti, Sólborg Alda Pétursdóttir, kennari úr Skagafirði, sem skipar þriðja sætið, Guttormur Hrafn Stefánsson, bóndi í Skagafirði, er í fjórða sæti og Kristján S. Pétursson, nemi frá Ísafirði, situr í fimmta sæti. Pálína Vagns- dóttir í forystu Tveir þingmenn fram- sækinna demókrata í Taívan eiga yfir höfði sér árs fangelsisvist eftir að hafa tilkynnt um að þrjátíu nemendur og starfsmenn háskóla í landinu hefðu verið teknir í gíslingu á miðvikudag. Þetta gerðu þeir til þess að prófa hversu vel undirbúin þarlend lögregluyfirvöld væru í kjölfar fjöldamorðanna í Tækniháskólan- um í Virginíuríki í Bandaríkjun- um á mánudag. Tugir lögreglumanna vopnaðir vélbyssum réðust inn á lóð Háskólans í Taípei eftir tilkynn- inguna. Talsmaður ríkisstjórnar Taívan fordæmdi athæfi mann- anna. Engin dæmi eru um árásir af þessu tagi í landinu. Platútkall þing- manna fordæmt Nítján ára piltur var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaði og tilraun til þjófnaðar sem hann framdi fyrir tæpum tveimur árum. Hann var auk þess dæmdur til 30 þúsund króna sektargreiðslu. Jafnaldri hans var við sama tilefni dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt vegna líkamsárásar og fyrir vörslu fíkniefna. Alls voru þrír menn ákærðir í alls sjö liðum í málinu. Piltur dæmdur fyrir þjófnaði Konur eru í meiri- hluta í nýju ríkisstjórninni í Finnlandi. Tólf af tuttugu ráðherrum „hægri- grænnar“ stjórnar Matti Vanhanens for- sætisráðherra eru konur. Þetta kemur ekki á óvart þar sem Vanhanen hafði lýst yfir að hann vildi jafnan hlut kynjanna í stjórninni. Fimm af átta ráðherrum Miðflokksins eru konur, fjórir af átta ráðherrum Hægriflokksins, báðir ráðherrar grænna og annar tveggja ráðherra Sænska þjóðarflokksins. Þetta er í fyrsta sinn sem fleiri konur en karlar skipa ríkisstjórn Finnlands. Meirihluti ráð- herra er konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.