Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 10
Golfers MEISTARATAKTAR Í BOÐI ICELANDAIR GOLFERS Heimsmeistarinn í "Trick Shot", Svíinn Peter Jöhncke, leikur listir sínar á Golf 2007, sem er hluti stórsýningarinnar „3 undir sama þaki“ og fer fram í Fífunni 20.–22. apríl. Komdu á Golf 2007 og kynntu þér hvað er í boði hjá Icelandair Golfers. + Allar nánari upplýsingar á www.icelandairgolfers.is ICELANDAIR GOLFERS Á GOLF 2007 Í FÍFUNNI ‘07 70ÁR Á FLUGI ÍSL E N S K A S IA .I S I C E 3 32 18 0 3 /0 7 ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 72 39 0 4 /0 7 Um 100 einstaklingar missa vinnu sína vegna stórbrunans í miðbæ Reykjavíkur á miðvikudag. Þar af störfuðu 50 á veitingahúsinu Prav- da í Austurstræti 22. Veitingahús við Lækjargötu eru lokuð vegna reykskemmda og hreinsunarstarf í verslunum stóð yfir nóttina eftir brunann og í gær. Starfsfólk fyrir- tækja í nágrenni brunans óttaðist að eldur myndi læsa sig í fleiri hús. Reykjarlykt í íbúðum við Lækjargötu heldur íbúum frá heimilum sínum. Einar Jóhannes Ingason, einn eigenda veitingastaðarins Pravda, segir að 50 starfsmenn hafi unnið á Pravda sem missi nú atvinnu sína. „Þetta er alveg hrikalegt og ekki síst að allt þetta góða fólk missi vinnuna.“ Einar segir ljóst að tjónið sé gífurlegt; líklega sé húsið ónýtt og það verði rifið. Lítið er um íbúðarhúsnæði í nálægð við húsin sem brunnu en þó eru 12 íbúðir í Lækjargötu 4 þar sem búa um 20 manns. Íbúar þessara íbúða þurftu sumir að flýja reykjarkófið og ólykt sem sest hefur í húsgögn, föt og glugga- tjöld. Karin Kristina Sandberg hjúkrunarfræðingur og unnusti hennar, Sigurður Þór Helgason hugmyndasmiður, neyddust til að yfirgefa heimili sitt vegna ólykt- arinnar. „Við fórum strax út vegna lyktarinnar. Ég er ófrísk og vil ekki taka neina áhættu vegna þess. Vonandi verður þetta allt í lagi.“ Karin segist þurfa að þrífa öll föt, húsgögn og gluggatjöld. „En þetta gat orðið miklu verra, við vitum það.“ Veitingahús við Lækjargötu voru lokuð í gær. Veitingahúsið Litli andarunginn er lokað fram á mánudag vegna reykskemmda sem þar urðu. Þrifaþjónusta á vegum tryggingafélaga húsanna sem brunnu voru við störf í bóka- verslunum Eymundssonar í Aust- urstræti og Iðu í Lækjargötu. Bókaverslunin Iða var opin í gær en þar hafði starfsfólk verið að þrífa í hálfan sólarhring. „Hér var strokið af hverri einustu bók í nótt sem leið og við erum að byrja á umferð númer tvö,“ segir Arndís Sigurgeirsdóttir verslunarstjóri. 100 manns missa vinnu vegna bruna Vafi leikur á því hvað olli stór- brunanum í Reykjavík á miðviku- dag. Lögregla útilokar ekkert í rannsókn sinni og verst allra frétta. Rannsókn á vettvangi lauk í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var brunavörnum í söluturninum Fröken Reykjavík, þar sem eldurinn er talinn hafa komið upp, mjög ábótavant. Húsin sem brunnu voru að hluta til ein- angruð með sagi og gömlum dag- blöðum. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir að rannsókn á eldsupptökum sé lokið á vettvangi en niðurstöður verði ekki birtar að sinni. Á miðvikudag var talið líklegast að eldsupptökin hafi verið í loftljósum í söluturn- inum Fröken Reykjavík á milli húsanna við Lækjargötu 2 og Aust- urstræti 22. Tæknideild lögregl- unnar segir upplýsingar um elds- upptökin viðkvæm og spurður hvort grunur léki á íkveikju segir Stefán að það sé alltaf viðkvæmt mál þegar kviknar í. „Það er ekki tímabært að segja neitt að svo stöddu og við erum að reyna að komast í botn á því hvað þarna gerðist. Við erum ekki búnir að útiloka eitt né neitt, það er allt undir í þessu.“ Á miðvikudag lék grunur á að eldsupptökin væru í loftljósum í söluturninum Fröken Reykjavík sem stóð á milli húsanna sem brunnu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var eldvörnum í söluturninum ábótavant. Engir reyk- eða hitaskynjarar voru í söluturninum og rafmagni hefur slegið ítrekað út bæði fyrir og eftir að ný ljós voru sett upp fyrir stuttu. Björn Karlsson brunamálastjóri segir að brunavarnir séu ævinlega á ábyrgð húseiganda nema fyrir hendi sé sérstakt samkomulag milli húseiganda og leigjanda hús- næðis þar sem kveðið er á um annað. Garðar Hannes Friðjónsson, framkvæmdastjóri fasteignafé- lagsins Eikar; sem er eigandi húss- ins að Lækjargötu 2, telur að brunavarnir í húsinu hafi verið fullnægjandi. „Í öllum okkar leigu- samningum er kveðið á um að leigutaki sjái um allt það sem er innan hans leigurýmis, þar með talið viðhald og brunavarnir,“ segir Garðar. Ólafur Helgi Þorgrímsson rekur söluturninn Fröken Reykjavík. Hann segist ekki viss um hvort reykskynjari hafi verið í rýminu. „Þetta er ósköp lítil sjoppa og reykskynjari hefur lítið að segja í svona litlu rými,“ segir Ólafur. Eldsupptök eru enn óstaðfest Vafi leikur á hvað olli stórbrunanum í miðbænum á miðvikudag. Lögregla útilokar ekkert í rannsókn sinni sem er lokið á vettvangi. Eldvörnum í söluturni í Lækjargötu 2, þar sem eldurinn er talinn hafa komið upp, var ábótavant.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.