Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 12
Ingibjörg Jóna Sigurðar- dóttir stóð með pálmann í höndunum eftir harða keppni á Íslandsmeistara- móti kaffibarþjóna, sem fram fór á dögunum. Þetta er annað árið í röð sem Ingibjörg fer með sigur af hólmi og hún stefnir ótrauð á að hreppa heimsmeistara- titilinn í Japan í sumar. „Maður þarf fyrst og fremst að æfa sig mikið,“ segir nýbakaður Íslands- meistari kaffibarþjóna um leyndar- málið bak við sigurinn. Eðli málsins samkvæmt er Ingibjörg mikil kaff- imanneskja; hún starfar hjá Kaffi- tári og segir að þar hafi hún fyrst farið að kynna sér undraheima kaff- is fyrir alvöru. „Ég kynntist þessu fyrst fyrir þremur árum þegar ég byrjaði að vinna í bakaríi, lærði að hella upp á espresso og því um líkt. En það var ekki fyrr en ég byrjaði hjá Kaffitári sem ég hellti mér út í þetta.“ Ingibjörg segir að margir geri sér ekki grein fyrir hversu fjöl- breytt kaffi getur verið og það býður upp á margt fleira en hina hefðbundnu uppáhellingu. „Margir verða til dæmis hissa þegar maður útskýrir hvað liggur á bak við bragðið á tilteknum kaffitegundum, halda til dæmis að kaffi með hnetu- keim sé bragðbætt með bragðefn- um en það er ekki raunin.“ Ingibjörg tryggði sér sigurinn með eigin kaffiblöndu en segir það ekki fyrir hvern sem er að búa til slíkt. „Það geta bara þeir sem eru lengra komnir; þetta snýst svo mikið um hvernig kaffið er brennt og í hvaða hlutföllum það er bland- að. Þetta eru í rauninni hálfgerð vís- indi.“ Nú þegar Íslandsmeistaratitillinn er í höfn er Ingibjörg byrjuð að æfa fyrir heimsmeistaramót kaffibar- þjóna sem verður haldið í Tókýó í sumar. „Nú þýðir ekkert að slaka á, ég þarf að æfa mig mikið. Ég varð í sjötta sæti á heimsmeistaramótinu í fyrra og í ár dugar ekkert minna en heimsmeistaratitill.“ Var ekki að meika Reykjavík Vodafone live! Nokia 6085 Krúttlegur með Bluetooth, myndavél, útvarpi, steríó heyrnartólum, styður minniskort og fæst í fleiri litum. Ævintýraverð 16.900 kr. Ævintýraleg símatilboð Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.vodafone.is til að fá nánari upplýsingar. Gríptu augnablikið og lifðu núna. Ætlar að verða heimsmeistari Eldhaf Endurreisn „ORÐRÉTT“ nær og fjær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.