Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 64
Bandaríska hljómsveitin
The Doors fagnar því um
þessar mundir með viða-
mikilli endurútgáfuröð að
fjörutíu ár eru liðin frá út-
gáfu fyrstu Doors-plötunn-
ar. Trausti Júlíusson rifj-
aði upp kynnin af þessari
áhrifamiklu sveit og skoð-
aði nýju útgáfurnar.
Þó að upphafleg liðsskipan hljóm-
sveitarinnar The Doors hafi bara
gefið út sex plötur á fjögurra ára
tímabili hefur hún lifað góðu lífi í
þau tæpu 36 ár sem eru liðin frá því
að Jim Morrison dó í baðkari í íbúð
í París. Enn safnast mikill hópur
aðdáenda saman í Père Lachaise-
kirkjugarðinum í París 3. júlí ár
hvert til þess að minnast dauða
hans og enn hljóma lög sveitar-
innar reglulega í útvarpi um allan
heim. Verk The Doors hafa verið
margendurútgefin en undanfar-
ið hefur enn verið bætt í það safn
með nýjum og sérstaklega vönduð-
um útgáfum.
The Doors var stofnuð í Los Ang-
eles í júlí árið 1965 af söngvaran-
um Jim Morrison og hljómborð-
sleikaranum Ray Manzarek sem
báðir voru við kvikmyndanám í
UCLA-skólanum. Fljótlega bættust
gítarleikarinn Robbie Krieger og
trommuleikarinn John Densmore
í hópinn og sú fjögurra manna út-
gáfa af sveitinni sem átti eftir að
hljóðrita öll hennar bestu verk
var fullmótuð. Nafnið kom frá titli
bókar Aldous Huxley um meskalín,
The Doors of Perception, en fras-
inn er upprunalega frá skáldinu
William Blake. The Doors vakti
strax athygli fyrir óvenjulega
hljóðfæraskipan. Í sveitinni var
enginn bassaleikari, en Ray spil-
aði bassalínurnar á tónleikum með
vinstri hendinni á Fender Rhodes
bassahljómborð sem þá var ný-
komið á markað.
Hljómsveitin gerði samning við El-
ektra-útgáfuna árið 1966 og fyrsta
platan The Doors kom út árið á
eftir. Hún þykir enn í dag ein af
bestu frumsmíðum sögunnar. Á
henni voru m.a. smáskífulagið
Light My Fire sem sýndi hvers
konar snillingur Ray Manzarek
er á orgelið, Bertolt Brecht/Kurt
Weill slagarinn Alabama Song og
hið ellefu mínútna langa hádramat-
íska The End. Það sannaðist strax á
fyrstu plötunni hvað meðlimir The
Doors voru hæfileikaríkir. Tónlist-
in var sambland af blús, klassík,
austurlenskri tónlist og poppi og
líktist engu öðru. The Doors hélt
áfram að sækja á nýjar slóðir tón-
listarlega á Strange Days (1967),
Waiting for the Sun (1968), The
Soft Parade (1969), Morrison Hotel
(1970) og L.A. Woman (1971).
Allar sex Doors-plöturnar komu út
í kassanum Perception seint á síð-
asta ári, endurhljóðblandaðar af
eftirlifandi meðlimum sveitarinnar
og Bruce Botnick, sem hljóðbland-
aði verkin á sínum tíma. Að sögn
Manzarek lögðust þeir yfir upp-
runalegu upptökurnar og notuðu
m.a. píanó- og gítarkafla sem ekki
höfðu verið notaðir og bakraddir
sungnar af Jim í nýju mixin. Þess-
ar nýju útgáfur hljóma sérstaklega
vel. Nú eru plöturnar komnar út
hver fyrir sig auk nýrrar safnplötu,
The Very Best of the Doors, sem er
fáanleg bæði einföld og tvöföld.
Tvöföldu útgáfunni fylgir DVD-
diskur með tónleikum frá 1968.
The Doors hélt áfram eftir frá-
fall Jim Morrison, en náði sér
aldrei aftur á strik. The Doors
er einstök sveit í rokksögunni og
sönnun þess að stundum verður til
eitthvað alveg sérstakt þegar ólíkir
einstaklingar koma saman. Án Jim
var The Doors ekki neitt, en samt
er samspil gítarleiks Robby Krieg-
er og hljómborðsleiks Ray Manz-
arek það sem setur mestan svip á
tónlist sveitarinnar.
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig! Bloggaðu með
símanum!
Hvar sem er og
hvenær sem er!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Eins og önnur tískufyrirbrigði koma tónlistarstefnur í bylgjum. Og þar
sem til er heill haugur af fólki sem vinnur við að lýsa og skrifa um tón-
list þarf að finna nafn á því sem talað er um. Hvernig á maður samt
að lýsa nýrri tónlist sem er undir greinilegum áhrifum frá eldri stefn-
um en hljómar samt nokkuð framúrstefnulega? Þegar rokkið var að
stíga sín fyrstu skref var þetta ekkert mál. Fyrst kom rokk, síðan þjóð-
laga-rokk, svo prog-rokk, loks pönk-rokk, þar á eftir post-rokk eða síð-
rokk (post þýðir einfaldlega eitthvað sem kemur á eftir) og auðvit-
að alternative-rokk (bein þýðing: frábrugðið rokk). Síðan voru stigin
nokkuð rökrétt skref, post-pönk varð til og hin mikla snilld, nýbylgjan
(new wave). Hjúkket, þarna gátu menn hætt að svitna yfir nýjum for-
skeytum fyrir framan rokk. Á eftir new wave birtist no wave og í byrj-
un þessa árþúsunds var neo-wave í hávegum höfð. En hversu langt
geta menn gengið? Má fara að kalla bylgjur nu-post-pönk-rokk eða neu-
no-wave? Kannski post-post-rokk?
Nýjustu nafngiftirnar tengjast þó tónlistarafbrigðum sem voru að
blómstra á síðasta áratug, nefnilega rave og shoegazing (ísl: skóg-
lápsrokk). Byrjum á því fyrrnefnda. Neonlitir, harðir danstaktar og
skynörvandi sjónbrellur eru aftur komin(n) fram á sjónarsviðið. Og
hvað getur maður kallað þetta annað en new-rave? Ja, kannski nu-
rave? Persónulega minnir það mig of mikið á nu-metalinn sem er enn
að syngja sitt síðasta. Neu-rave (borið fram noj-reif) verður að teljast
það langsvalasta enda á það ekki eingöngu við um rokkhlið ný-reifsins
heldur er örlítið ýktara og evrópskara og passar því einnig við danstón-
listarsenuna og fötin sem nú eru í gangi. Nýja shoegazing-bylgjan, sem
virðist í örum vexti nú um stundir, fær svipaða meðferð og rave-ið.
Menn hafa stungið upp á nöfnum á borð við new-gaze og nu-gaze og eru
þessi orð að verða algengari og algengari í skrifum tónlistargúrúa.
Sjálfur hef ég engin töfraorð uppi í erminni enda hjal mitt hér að ofan
að einhverju leyti mikil einföldun. Ég held mig bara við klisjurnar
enda virka þær, það verður að viðurkennast. New-gaze, dans-pönk,
neu-rave og fleiri nafngiftir eru ekkert slæmar í sjálfu sér, heldur vel
skiljanlegar og virka í einfaldleika sínum.
Neu-þetta eða neu-hitt
Hljómsveitir og tónlistarfólk
sem dreymir um að spila á
tónlistarhátíðinni Iceland Air-
waves í haust geta byrjað að
sækja um. Ýmislegt gott hefur
rekið á fjörur íslenskra sveita í
kjölfar Airwaves þannig að það
er margt galnara hægt að gera
en að senda inn umsókn.
Jafnt ungar sem eldri sveit-
ir eru hvattar til að sækja um
því hátíðahaldarar vilja að tón-
leikadagskráin endurspegli það
ferskasta og besta sem er að
gerast í íslenskri tónlist. Strax
verður byrjað að fara yfir um-
sóknir og svör gefin um leið og
ákvarðanir hafa verið teknar.
Umsóknareyðublað má vinna á vef
hátíðarinnar www.icelandairwaves.com.
Fresturinn til að skila inn umsóknum
rennur út 15. júlí og ekki verður tekið við
umsóknum eftir þann tíma.
Allt í kjölfar Airwaves?