Tíminn - 01.02.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 1, febrúar 1980
3
Áfengisvarnarráð:
„Eiga að gilda áfengislög eða
geðþótta ákvarðanir”
FRI — „ViöbrögB okkar viö
hinni nýju reglugerö fjármála-
ráöherra er þegar komin”
sagöi Ólafur Haukur Arnason
áfengisvarnarráöunautur i
samtali viö Tlmann. „Þannig
er aö þaö komu fram fyrir-
spurnir I Alþingi aö okkar
undirlagi I dag (fimmtudag) og
nokkrar umræöur uröu um
málin utan dagskrár. Auk þess
höfum viö fengiö lögfræöing
okkar til þess aö kanna þessi
mál en viö teljum aö um mikil
vafaatriöi sé hér aö ræöa, þaö
sé veriö aö lauma þarna hlut-
um inn bakdyramegin sem hafa
veriö umdeild og eiga sér vafa-
sama stoö i lögum.”
„Grundvallaratriöi okkar I
stórum dráttum eru þau aö viö
álitum aö áfengislög þau eigi aö
gilda i landinu. Ef um undan-
þáguatriöi er aöræöa þá teljum
viö aö þau geti ekki náö til ann-
arra efna en leyfö eru 1 áfengis-
löggjöfinni. Viö teljum aö
innflutningur á bjór hafi alla tiö
veriö ólöglegur og viljum
gjarnanláta reyna á þaö fyrir
dómstólum. Sem dæmi get ég
tekiö aö ef ráöherra getur leyft
innflutning bjórs þá sjáum viö
ekki annaö en aö hann geti leyft
innflutning hass (tollfrjálst)
meö samskonar aöferöum.
Ráöherra hefur einhverjar
heimildir i tolllögum til aö leyfa
undanþágu frá tolli en þaö telj-
um viö aö geti ekki náö til ann-
arra hluta en á annaö borö má
koma meö inn i landiö. Alveg
eins og hann getur ekki leyft
undanþágu I tolli, kjötvörum
sem ekki má flytja inn.
Viö viljum fá Ur þvi skoriö”,
sagöi Olafur, ,,hvort gilda eigi i
landinu um áfengi áfengislög
eöa einhverjar geö-
þóttaákvaröanir fjármálaráö-
herra”.
Helgi Seljan þingmaöur hefur umræöur utan dagskrár um reglugerö fjármálaráöherra.Timamynd
Tryggvi.
Umræður á Alþingi um bjórinn:
Var reglugerðin nauð-
synleg ráðstöfun?
— spurði Stefán Valgeirsson þingmaður
FRI — Nokkrar umræöur uröu
utan dagskrár i Alþingi i gær Ut
af reglugerö fjármálaráöherra
Sighvats Björgvinssonar sem
heimilar feröamönnum aö taka
meö sér bjór inn i landiö.
Helgi Seljan spuröi á hvaöa
lögum þessi reglugerö væri
byggö og hver ástæöa heföi
veriö til aö hún væri gerö nú?
Ráöherrann svaraöi þvi til aö
hann heföi látiö lögfræöinga
fjármálaráöuneytisins athuga
máliö og vitnaöi hann til þess aö
1965 voru sett lög um tollskrá og
þar er ráöherra heimilaö aö
veita svona heimild handa far-
mönnum og feröamönnum þ.e.
fyrir tollfrjálsum innflutningi.
Ráöherrann vitnaöi I ræöu þá-
verandi fjármálaráöherra
Magnúsar Jónssonar um þaö og
taldi þaö gefa fulla heimild fyrir
þessari reglugerö.
Hinsvegar sagöi Helgi aö I
áfengislögunum 3. grein standi
skýrt og glögg aö ekki megi
flytja til landsins öl sterkara en
2.1% og taldi Helgi aö aö þetta
ákvæöi gilti og aö heimild ráö-
herra sé bundin viö þaö sem á
annaö borö er leyfilegt aö flytja
til landsins.
Stefán Valgeirsson talaöi
næstur og taldi þaö illa sæma aö
ráöherra I starfsstjórn færi nú
aö breyta þessu. Auk þess væri
þaö I engu samræmi viö þaö
sem forsætisráöherra Benedikt
Gröndal heföi marg oft sagt en
þaö er aö þessi stjórn myndi
ekki gera neitt nema þaö sem
nauösynlegt væri til þess aö
eölilegt mannlif gæti átt sér staö
i landinu.
Ráöherra svaraöi og endurtók
sinar röksemdir. Hann sagöist
hafa gert þetta núna vegna þess
aö honum finnst þaö vera jafn-
ari réttur meö þessu móti. Enn-
fremur sagöi ráöherra aö hann
Halldór Kristjánsson fylgist meö umræöum þungur á brán. Tima-
mynd Tryggvi.
væri á móti almennri sölu bjórs
hér.
„Ég held aö ef þetta eigi sér
lagalega stoö þá séu engin tak-
mörk fyrir þvi sem ráöherra
getur leyft sér I sambandi viö
samskonar innflutning” sagöi
Halldór Kristjánsson i samtali
viö Timann en hann fylgdist
meö umræöunum I Alþingi. „Eg
á hér viö efni eins og hass, LSD
og heróin”.
„Þaö sem laumast aö manni,
máttlaust á yfirboröinu, er aö
þetta sé hættulegra en sterki
fjandinn. Viö vitum aö menn úti
drekka þetta I vinnutlma sinum,
en hingaö til hafa menn ekki
drukkiö I vinnutima hérlendis”.
Sighvatur Björgvinsson fjár-
máiaráöherra gerir grein fyrir
sinum rökum I Alþingi i gær.
Tlmamynd Tryggvi.
Reykjavíkurskákmótið:
8 stórmeistarar,
6 alþióðlegir
Bdiö er aö skipa I öil sæti á
Rey kjavikurskákmótinu, sem
háö veröur 23.febrúartil 10 mars.
Veröa á þvi átta stórmeistarar og
sex alþjóöiegir meistarar. Friö-
rik óiafsson hefur horfiö frá þátt-
töku, þar eö búast má viö erjum
vegna einvigis Petrosjan og
Korchnois.
Stórmeistararnir, sem tefla á
mótinu, eru auk Guömundar
Sigurjónssonar, Browne og
Byrne frá Bandarikjunum,
Sosonko frá Hollandi, Vasjukov
og Zeshkovsky frá Sovétrflcjun-
um, Torre frá Filippseyjum og
Miles frá Bretlandi.
Alþjóðlegir meistarar veröa
Schussler frá Sviþjóð og Helmers
frá Noregi, Helgi Clafsson, Jón L.
Arnason, Margeir Pétursson og
Haukur Angantýsson.
Mótiö er haldiö á vegum Skák-
sambands Islands og Taflfélags
Reykjavikur, og er I tiunda styrk-
leikaflokki. Teflt veröur á Hótel
Loftleiöum. Aöaldómari veröur
Guömundur Arnlaugsson, en for-
maöur mótstjórnar er Einar S.
Einarsson.
Einn hinna útlendu keppenda,
Walter Browne, kemur hingaö til
lands eftireina viku, og mun hann
verja tiu til fjórtán til þess aö
tefla f jöltefli viös vegar um land,
og geta menn leitaö upplýsinga
um þaö i sima Skáksambandsins.
1979:
Metár í sögu
Ríkisskips
- hvað snertir flutninga á stykkjavöru
JSS — Flutningar á stykkjavöru
hafa aldrei veriö meiri I sögu
Skipaútgeröar rikisins en á tveim
sl. árum. Var siöasta ár metár
hvaö þetta snerti, en þá námu
flutningarnir 59.270 tonnum.
Rekstrfu-afkoma fyrirtækisins
batnaöi ekki aö sama skapi og er
það rakiö til verölagsákvaröana
stjórnvalda svo og mikillar verö-
bólgu. Arið 1978 jukust tekjur
fyrirtækisins um 33% en um 27% I
fyrra. Ctgjöld jukustaftur á móti
um 57% á fyrra árinu og 75 á þvi
siöara. Hér vega oliuveröshækk-
anir mjög þungt.
Þetta kom fram á fundi for-
ráöamanna skipaútgeröarinnar á
fundi meö blaöamönnum i gær.
Enn fremur, aö sú aukning sem
oröiö hefur á flutningum á rætur
aö rekja til breytinga á þjónustu
útgeröarinnar sem unniö hefur
veriö aö sl. 3 ár. Ariö 1977 var
m.a. tekiö á leigu aukiö húsnasöi
til vöruafgreiöslu iReykjavik og i
upphafi næsta árs komu til fram-
kvæmda breytingar á leiöakerfi
skipanna. Þaö var svo endurbætt
i nóvember á sl. ári, en auk þess
hefur veriö komiö á heimkeyrslu-
þjónustu i Reykjavik á stærri
sendingum. Er sams konar þjón-
usta ýmist komin á eöa i undir-
RÍKISSKIP
SKIPAÚTGERÐ
RÍKISINS
Hiö nýja merki Skipaútgerðar
rikisins.
búningi á stærstu höfnum úti á
landsbyggöinni.
Þá hefur veriö gerö andlitslyft-
ing á fyrirtækinu, ef svo má aö
orði komast, þvi i tilefni 50 ára af-
mælis þess hefur veriö tekiö til
notkunar nýtt merki og nýr fyrir-
tækislitur fyrir Rikisskip. Merkiö
er smekklega hannaö, blátt, hvitt
og grátt á gulum grunni og upp-
fyliir allar öryggiskröfur sem
gera þarf tillitar á vinnuvélum og
gámum. Var þaö hannaö á aug-
lýsingastofu Ólafs Stephensens og
höfundur þess er Ólöf Baldurs-
dóttir teiknari F.Í.T.
Rússar svara íslensku ríkisstjórninni:
Farið með mál sonar
og konu Kortsnojs
að sovéskrí löggjöf
Sendiherra Sovétrikjanna I
Reykjavik gekk i dag á fund
skrifstofustjóra utanrikisráöu-
neytisins og kvaöst hafa fengiö
svör frá stjórnvöldum sinum viö
áskorun rikisstjórnar tslands,
sem fram var borin hinn 28.
nóvember sl., um aö eiginkona og
sonur Viktors Kortsnoj, stór-
meistara I skák, fengju brottfar-
arleyfi frá Sovétrikjunum.
Svör sovésku rikisstjórnarinn-
ar eru á þá leiö, aö mál þetta sé á
verksviöi sovéskra stjórnvalda
eingöngu og meöferö þess geti aö-
eins fariö aö sovéskri löggjöf.
Sovéska sendiherranum var
tjáö, aö þessi svör yllu miklum
vonbrigöum. tslendingar væru á-
fram þeirrar skoöunar, aö þeir
heföu fulla heimild til aö bera
fram óskir um farsæla lausn
þessa máls, bæöi á grundvelli
lokaskjals ráöstefnunnar I Hel-
sinki og meö hliösjón af öörum
samskiptum rikjanna. Þvi væri
ekki unnt aö llta svo á aö hér væri
um lokasvar sovéskra stjórn-
valda aö ræöa, heldur væri þess
Kortsnoj.
fastlega vænst, aö máliö yröi at-
hugaö af velvilja og nauösynleg
leyfi veitt til aö eiginkona og son-
ur stórmeistarans gætu flutt til
hans og fjölskyldan búiö saman
þar sem hún sjálf helst kysi.