Tíminn - 17.02.1980, Side 11

Tíminn - 17.02.1980, Side 11
Sunnudagur 17. febrúar 1980. 11 Slökkvili&smennirnir Einar og Gunnar (t.h.) sýna réttu tökin sem þarf aö beita er me&vitundarlaus maöur er borinn út úr brennandi húsi Nei þetta er ekki nýjasti diskódansinn, heldur eru tveir nemendur úr Stýrimannaskólanum, hér f hlut- verki reykkafara, sem ieita aö meövitundarlausum manni í brennandi húsi. lega margt, ef þeir beita slökkvitækjunum á réttan hátt. //Áhugasamir og hressir nemendur" Uppi á slökkvili&sstöö var Rúnar Bjarnason, slökkviliðs- stjóri aö kenna stýrimannsefn- unum undirstööuatriöi reyk- köfunar og naut hann i þvi sam- bandi aðstoöar frægra reykkaf- ara úr slökkviliðinu, þeirra Einars Guðmundssonar og Gunnars Jónssonar. Trúlega skýra myndirnar sem Róbert tók i kjallara slökkvistöðvarinn- ar, þaö best sem þar fór fram og þvi verður ekki fjallað nánar um það hér. Er smáhlé varð á reykköfuninni, tókum við Rúnar Bjarnason, slökkviliösstjóra tali og spurðum hann að þvi hvernær slökkviliðiö hefði tekið þessa kennslu fyrst upp. — Viö byrjuðum á þessari kennslu fyrir rúmum áratug siðan og siðan þá hafa nem- endur úr Vélskóla Islands og Stýrimannaskólanum komið hingað árlega á námskeið. Þessi kennsla hér miðast við þessa tvo skóla en einnig hafa landhelgis- gæslumenn komið hingað af og til i þjálfun. Af öðrum sem sótt hafa svipuð námskeiö og nú er hér i gangi, get ég nefnt að yfir- menn á Eimskipafélagsskipun- um komu hingaö eitt sinn i æf ingar á meðan farmannaverk- falli stóö og einnig hafa starfs- menn Aburðarverksmiöjunnar komiö hingað og hlotið þjálfun i reykköfun. Og hvernig hafa nemendurnir á þessu námskei&i staðiö sig? — Þetta eru mjög áhugasamir og fróðleiksfúsir nemendur og við væntum mikils af þeim I framtiöinni. Þjálfunin hér mið- ar lika að þvi aö þeir verði hálf- gildings slökkvimenn og þaö hefur lika sýnt sig a& nemendur utan af landi, sem ekki hafa far- ið á sjóinn, þeir hafa oft farið i slökkviliöið á viökomandi staö og staðið sig meö prýöi. //Hef ekki oröið fyrir von- brigðum" Meðal þeirra sem þátt tóku I þessu námskeiði, var ung stúlka úr Grundarfirði, Skúlina Hlif Guðmundsdóttir, tæplega tvitug að aldri, en hún hefur I vetur setið i öörum bekk Stýrimanna- skólans eins og aðrir sem á þessu námskeiöi voru. Þar sem aö Skúlina var eini kvenmaöur- inn á námskeiöinu, fannst okkur tilvalið að taka hana tali og spurðum hana fyrst að þvi af hverju hún hefði farð I Stýri- mannaskólann. Greinilegt var aö Skúlina hafði heyrt þessa spurningu oft áöur, en engu að siöur brást hún vel við og sýndi okkur kristilegt umburöarlyndi. — Astæðan fyrir þvi að ég kaus að fara i skólann, var sú að ég var búinn að vera á sjó frá 15 ára aldri og langaði þvi litið til að breyta um og fara t.a.m. I frystihúsiö. Ekki þar fyrir að það sé leiöinlegt að vinna I frystihúsinu, en sjómennskan á einhvern veginn mikið betur við mig. Hvernig tóku strákarnir þér? — Mjög vel, enda eru þetta bestu skinn. Er skólinn svipaður þvi sem þú bjóst við? — Já það má segja það a.m.k. hef ég ekki orðiö fyrir neinum vonbrigðum og reyndar er ég Gunnar Jónsson, einn reyndasti reykkafari slökkviliösins sýnir hvernig á aö athafna sig viö erfi&ar aöstæöur þeirrar skoðunar að skólinn sé yfirhöfuö mjög góður. Margs fróðari um eldvarnir og reykköfun, héldum við Róbert út i dagsljósiö, eftir að hafa kvatt Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóra og hans menn og nemendurna úr Stýrimanna- skólanum. Eins og áður greinir Skúllna Hllf Guömundsdóttir. Þaö er eins gott aö vera hreinn um hendurnar Rúnar Bjarnason slökkvili&sstjóri útskýrir hvernig reykköfunartækin virka skýra meðfylgjandi myndir betur en mörg orö, þaö sem fram fór I kjallara slökkviliös- stöövarinnar og vonandi er að lesendur séu einhvers visari um fræ&slustarf slökkviliösins á eftir. — ESE Þar er maöurinn fundinn — Takiö eftir aö svartar skýlur eru settar fyrir reykgrimurnar til þess aö lfkja eftir aöstæöum á brennandi stö&um. Þá er bara aö halda I Ilfllnuna og þoka sér út — Algjört myrkur var fyrir augum „björgunarmannanna” og þvl vel af sér vikiö a& finna brú&una sem notuö var sem tilraunadýr.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.