Tíminn - 17.02.1980, Side 23

Tíminn - 17.02.1980, Side 23
Sunnudagur 17. febrúar 1980. 23 Sextugur: Grétar Símonarson, forstióri Grétar er fæddur i Reykjavik 18. febrúar 1920. Foreldrar hans voru hjónin Simon kaupmaöur Jónsson bóndi á Læk I ölfusi Simonarsonar og Ása Jóhanns- dóttir formanns á Eyrarbakka og sibar fiskimatsmanns i Reykja- vik Gislasonar bónda I Steinskoti á Eyrarbakka. Grétar ólst upp hjá foreldrum sinum I Reykjavlk og gekk þar I skóla fyrst i barnaskóla og svo i Verslunarskóla tslands og braut- skráöist þaöan 1937. A unglings- árum var Grétar viö sveitastörf á sumrum, en áriö 1938 réöist hann til starfa viö Mjólkurbú ölfusinga I Hverageröi um eins árs skeiö en fór svo til Danmerkur og var þar viö verklegt nám i mjólkurfræöi. Hann stundaöi siöan nám viö Dalum Mælkeriskole iOdense og tók próf þaöan áriö 1946 en aö þvi búnu var hann viö mjólkur- iönaöarstörf I Mjólkurbúi Flóa- manna til 1954 aö einu ári undan- skildu sem hann var mjólkurbús- stjóri á Akranesi. Hann geröist forstjóri Mjólkurbús Flóamanna 1954 og hefur stýrt þessu stærsta mjólkurbúi landsins siöan eöa i rúman aldarfjóröung viö traust og vinsældir bænda og starfsfólks og er þjóökunnur fyrir þaö starf. Þeir eru orönir margir sem Grétar hefur haft skipti viö þvi i mörg ár voru um 1200 bændur er sendu mjólk til mjólkurbúsins og þó þeim hafi nokkuö fækkaö vegna breytinga I búskaparþróun þá eru samt 800 bændur enn sem á hverju ári senda yfir 40 milljónir litra mjólkur þangaö. Starfsfólk búsins er alltaf á annaö hundraö. Þaö er þvi i mörg horn aö lita hjá mjólkurbússtjóranum viö dagleg- an rekstur hins stóra fyrirtækis og aö mörgu þarf aö hyggja. 1 hans mjólkurbússtjóratiö hafa þar aö auki átt sér staö miklar framkvæmdir eins og t.d. þegar öllhús mjólkurbúsins voru endur- byggö og stækkuö margfaldlega og nýjar vélar fengnar. Endur- byggingin var stórvirki og hinar miklu breytingar sem þá og siöan hafa veriö geröar á öllum vél- búnaöiog tækni. Þó flestum þætti mjólkurbúiö eftir endurbygging- una svo stórt og fullkomiö aö ekki myndi þurfa þar um aö bæta né viö aö auka um ófyrirsjáanlega framtiö þá hefur samt svo fariö aö mikil húsakynni hafa bætst viö og allskonar vélar og tæki komiö til viöbótar þeim sem fyrir voru. Framleiösla úr mjólkinni i nýjar og nýjar vörutegundir þróast ört og mjólkurvörum fjölgar meö hverju árinu sem liöur. Af þess- um ástæöum hefur þurft aö bæta viö nýjum húsum og gera breytingar á þeim eldri ásamt þvi aö fjölga allskonar vélum og koma þeim fyrir. Grétar hefur veriö lifiö og sálin I öllum nýjungum og mjög vak- andi og áhugasamur fyrir þvi aö taka upp nýjar framleiöslugrein- ar i mjólkuriönaöinum. Allt hefur þetta auövitaö reynt mjög á starfsþrek hans en óbrigöull kjarkur og mikiö þrek hefur veriö honum fengiö I vöggugjöf og góö skapgerö hefur gert honum fært aö bera byröar starfs og skyldu. Grétar er jafnan hress og glaöur I viömóti og lætur stjórn- ast af hyggindum enda greindur maöur og skýr i hugsun meö góöa menntun. Hann rls árla úr rekkju hress og endurnæröur eftir hollan nætursvefn og byrjar þegar á starfi. Mun mörg morgunstundin hafa gefiö gull I mund mjólkur- búsins þegar Grétar fann viö ár- dagsgeisla morgunsólarinnar ýms ráö til lausnar á vandasömu verkefni. Þeim sem stjórna stór- um fyrirtækjum meö fjölda starfsfólks er oft vandi á höndum I umgengni sinni viö óllka ein- staklinga svo sem eölilegt er, en fram úr slíkum vanda hefur Grét- ar komist mjög vel og árekstra- laust og nýtur velvildar flestra eöa allra sinna starfsmanna. Hiö sama má og segja um bændur, fulltrúaráö mjólkurbúsins og stjórn þess. Oft þarf mjólkurbús- stjórinn aö taka ákvaröanirsem I fyrstugeta veriö umdeilanlegar,á slikt bæöi viö um bændurna sem eiga fyrirtækiö og starfsfólkiö.en mjólkurbússtjórinn hefur róandi áhrif á flesta meö glööu og festu- legu viömóti. Sá er þetta ritar hefur i nær 20 ár átt sæti i stjórn mjólkurbúsins en á þeim vettvangi kemur þaö oft fyrir aö vega þarf og meta hvort meiru eigi aö ráöa félagsleg sjónarmiö eöa köld efnishyggja sem vitanlega veröur einnig oft aö beita viö stjórn fyrirtækja. Slik sjónarmiö þarf þá aö sætta og samræma eins og hægt er. Hefur mér oft þótt gaman aö sjá kaup- mannssoninn úr Reykjavik og gamla verslunarskólanemann gllma viö þetta og leita aö meöal- veginum sem best hentaöi aö fara I hvert sinn. A slíkar úrlausnir er Grétar mjög fundvis og jafnan til- búinn aö hafa til hliösjónar og hjálpar skoöanir og tillögur sam- starfsmanna sinna. Eins og komiö hefur hér fram þá hefur gifta fylgt Grétari I störfum hans og svo er þaö einnig I einkallfi. Áriö sem hann var mjólkurbússtjóri á Akranesi hitti hann þar góöa og fallega stúlku er siöan hefur veriö honum mikil heilladlsf Guöbjörgu Siguröar- dóttur, húsasmiöameistara á Akranesi Jónssonar og gengu þau I hjónaband 6. september áriö 1947. Þau hafa eignast fimm börn sem öll eru uppkomin. Guöbjörg skipar sinn sess meö reisn og prýöi og eru þau hjón samhent svo sem best veröur á kosiö. Nú þegar Grétar Simonarson er sextugur aö aldri hefur hann skil- aö miklu lifsstarfi en vonandi á hann þó eftir aö bæta þar viö mörgum sigrum. Vinir hans vilja aö allt veröi honum og konu hans til gleöi og gæfu, og aö hann megi enn lengi standa frammi i stafni og stýra hinum dýra knerri: Mjólkurbúi Flóamanna. ‘ Agúst Þorvaldsson ALLT AMERISKT NEMA EYÐSLAN Hún er um, og undir 121. á 100 km. 6 cyl. 258 cid vél. Sjálf- skiptlng, vökvastýri, afl- hemlar, hiti í afturrúðu, hallanleg stólabök, pluss- áklæði, viðarklætt mæla- borð, o.s.frv. Amerískur lúxusbíll með öllu. Bjóóum einnig SPIRIT m/4 cyl.vél. Bensínnotkun 9-10 l. /100 km. n American Motors Einkaumboöáíslandi Fólksbíll meó öllu,likafjórhjóladrifi Eagle er fyrsti ameríski fólksbíllinn, sem bú- inn er fjórhjóladrifi (Full-time-four-wheel- drive). Það eykur stöðugleika bílsins í hálku, bleytu og á lausu yfirborði vegar og gefur honum jeppaeiginleika í akstri utan vega. i Eagle er auk þess allur sami búnaður sem í Concord. x I Allt á sama Staö Laugavegi 118 - Simi 222401 'eg/ll , / VILHJALMSSON HEI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.