Fréttablaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 38
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Á !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu STÆRSTA ORRUSTAN ER INNRI BARÁTTAN B.I. 10 ÁRA B.I. 14 ÁRA B.I. 10 ÁRA B.I. 14 ÁRA B.I. 16 ÁRA B.I. 18 ÁRA B.I. 16 ÁRA B.I. 7 ÁRA B.I. 10 ÁRA B.I. 16 ÁRA B.I. 16 ÁRA Hann reynir að komast úr nærbuxunum hennar... ...ekki í þær! Með Samaire Armstrong úr O.C. IT´S A BOY GIRL THING kl. 8 - 10 SPIDERMAN 3 kl. 5.20 - 8 - 10.40 NEXT kl. 6 IT´S A BOY GIRL THING kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8 - 11 SPIDERMAN 3 SÝND Í LÚXUS kl. 5 - 8 - 10.50 NEXT kl. 5.45 PATHFINDER kl. 8 - 10.15 HILLS HAVE EYES 2 kl. 10.30 PERFECT STRANGER kl. 5.30 - 8 TMNT kl. 3.40 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45 IT´S A BOY GIRL THING kl. 5.50 - 8 - 10.10 SPIDERMAN 3 kl. 5.30 - 8.30 - 10.20 PATHFINDER kl. 8 INLAND EMPIRE kl. 5.45 - 9 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 Þriðja plata þeirra Coco og Rosie (Bianca og Sierra Cassady) er þeirra fyrsta sem tekin er upp í hljóðveri. Skemmtilegast við þá staðreynd er án efa að platan var tekin upp af Valgeiri Sigurðssyni í Gróðurhúsinu í Breiðholtinu. Seint verður hins vegar sagt að andi Breiðholtsins svífi yfir vötnum á plötunni, það er þá allavega annar andi en ég hef hingað til kynnst í Breiðholtinu. Nei, hér er svo sannarlega eng- inn Breiðholtsúthverfahljómur heldur vel krúttlegur, artí-fartí, indí-hljómur. Í eyrum margra þættu þessi lýsingarorð merki um leiðindi, klisjur og yfirborðs- kennd. En sú er sannarlega ekki raunin þegar CocoRosie á í hlut. Tónlist systranna er einlæg og frábrugðið flest öllu sem heyrist í dag. Sveitin á reyndar til að detta í óþarfa tilgerð en þegar upp er staðið er tónlist CocoRosie spenn- andi, áhættusöm og krefjandi. Á þessari þriðju plötu sinni halda Cassady-systur áfram að þroskast og dafna sem lagasmið- ir en halda ennþá í ýmsar flétt- ur sem hafa einkennt þeirra fyrri verk. Platan hefur líka þann mikla plús að hún er langheilsteyptasta verk CocoRosie til þessa, veiku punktarnir mun færri en áður og hljómurinn samrýmdur. Í raun er fátt út á plötuna að setja. CocoRosie er einfaldlega að halda sínu striki og þess vegna viðbúið að þeim sem á annað borð líkar vel við CocoRosie geri það áfram. Eins með þá sem þykir sveitin ekki svo skemmtileg. Reyndar gætu lög á borð við Rain- bow Warriors, Japan og Werewolf, bestu lög plötunnar, sannfært efa- semdamenn. Japan er til dæmis eitt besta lag sem CocoRosie hefur sent frá sér, týpískt sumarlag með karabísku ívafi. Textinn er samt nokkuð kaldhæðnislegur eins og á reyndar við um mörg önnur lög sveitarinnar. CocoRosie tekst á þessari plötu að halda manni við efnið og sýnir jafnvel á sér nýjar hliðar. Syst- urnar þurfa hins vegar að fara að vara sig ef maður á ekki að fá leið á þeim. Þær sleppa hins vegar fyrir horn að þessu sinni og reynd- ar vel það, bæta jafnvel um betur. Veiku punktunum fækkað THE CONDEMNED kl. 5.30 - 8 - 10.30 THE LIVES OF OTHERS kl. 5.30 - 8 - 10.30 NEXT kl. 8 - 10 MÝRIN 2 FYRIR 1 kl. 5.40 - 8 KÖLD SLÓÐ 2 FYRIR 1 kl. 5.50 HOT FUZZ kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA B.I. 16 ÁRA B.I. 14 ÁRA B.I. 12 ÁRA B.I. 12 ÁRA B.I. 16 ÁRA SÍMI 530 1919HAGATORG www.haskolabio.is TÍU MUNU BERJAST, NÍU MUNU DEYJA, ÞÚ FÆRÐ AÐ HORFA SVAKALEG HASARMYND MEÐ TÖFFARANUM VINNIE JONES. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Ástralski leikarinn Mel Gibson virðist óðum vera að ná sér eftir erfitt tímabil og dómari í máli hans lýsti yfir ánægju með þróun mála. Gibson var handtekin fyrir rétt tæpu ári en hann var þá grunað- ur um að vera ölvaður undir stýri. Þegar lögreglumaður nálgað- ist hann lét Gibson fúkyrði fjúka yfir gyðinga og náðust ummælin á myndband. Þetta vakti mikla reiði meðal áhrifamanna í Hollywood enda gyðingar valdamikill hópur í kvikmyndaborginni. Leikarinn baðst afsökunar og lýsti því yfir að hann hefði ekkert á móti gyð- ingum. „Þetta var áfengið að tala, ekki ég,“ sagði Gibson þá. Leikarinn var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi, gert að fara í áfengismeðferð og borga sekt. Farið var yfir stöðu mála ný- verið fyrir dómi í Kaliforníu og sagði dómarinn Lawrence Mira að hún hefði mikla trú á meðferðinni og að greinilegt væri að Gibson legði sitt af mörkum til að ná bata. Gibson var ekki viðstaddur yfir- ferðina yfir málið en lögfræðing- ur hans, Blair Berk, sýndi fram á að Gibson væri allur af vilja gerð- ur og hefði varla sleppt úr fundi í meðferð sinni. Dómarinn Mira taldi þrátt fyrir allt að nauðsynlegt væri að Gibson myndi láta sjá sig næst. „Þannig að við séum öll á sama máli,“ sagði Mira. Talsmaður leik- arans, Alan Nierob, lýsti því síðan yfir við AP-fréttastofuna að skjól- stæðingi hans liði vel og að allt gengi samkvæmt áætlun. „Hann leggur mjög hart að sér,“ sagði Nierob.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.