Fréttablaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 18
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Sævaldsson
tannlæknir, Sefgörðum 10, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju, þriðjudag-
inn 15. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast Harðar er bent á reikning
0372-13-110667, kt. 080657-5959, sem stofnaður hefur
verið í minningu hans. Það fé sem safnast verður sett
í minningarsjóð og notað til að efla þekkingu á sviði
tannverndar og tannlækninga á Íslandi.
Ragnheiður Marteinsdóttir
Helga Harðardóttir Sturla Jónsson
Hildur Harðardóttir Óskar Einarsson
Friðrika Þóra Harðardóttir Friðbjörn Sigurðsson
Hjördís Edda Harðardóttir Arnór Halldórsson
Ragnheiður Harðar Harðardóttir Lýður Þorgeirsson
Sævaldur Hörður Harðarson Dagný Lind Jakobsdóttir
Hörður Harðarson
Sigríður Marta Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Fallegir legsteinar
á góðu verði
„Mamma er 83 ára og hún er enn að í
stjórnmálum á Siglufirði. Hún er mín
besta fyrirmynd.“
Steingrímur Ólafsson, iðnrekstrar-
fræðingur, heldur upp á fertugsaf-
mæli sitt í dag. „Ég ætla að fara út að
borða með konunni en það verður hald-
in veisla seinna í sumar. Annars verð-
ur þetta voða rólegt,“ segir Steingrím-
ur um afmælisdaginn sinn.
Hann er kvæntur Marínu Guðrúnu
Hrafnsdóttur, menningar- og ferða-
málafulltrúa Hafnarfjarðar, og saman
eiga þau dótturina Hrafnhildi Jónu.
Fyrir á Steingrímur þau Guðrúnu og
Ingólf Hersi.
Steingrímur fer til Síberíu á mið-
vikudaginn. Þar hefur hann í tvö og
hálft ár starfsrækt verksmiðju sem
býr til bobbinga fyrir troll og segir
hann reksturinn ganga vel. Enn sé þó
verið að byggja upp starfsemina og
það taki sinn tíma. Honum líkar vel
að starfa í Síberíu þrátt fyrir kuldann.
„Það versta er þegar maður er lengi
í burtu í einu frá fjölskyldunni. En ef
maður hagar sér eins og maður þá er
komið fram við mann sem slíkan, það
skiptir ekki máli hvar maður er. Þetta
fólk sem ég hef kynnst er ágætis fólk,“
segir Steingrímur. Bætir hann því við
að frostið í Síberíu geti farið niður í
55 stig á veturna og í 45 stig á sumrin.
Hann tekur þó sumarfötin með á mið-
vikudag og skilur kraftgallann, lop-
ann og föðurlandið heima í þetta sinn,
enda ágætis verður í landinu um þess-
ar mundir.
Steingrími, sem áður starfaði fyrir
Vinstri græn, líst vel á að komast á
fimmtugsaldurinn. „Þetta hefur gerst
áður hjá einhverjum og mér sýn-
ist margt af því fólki lifa ágætis lífi.
Ég held að það breytist lítið hvað það
varðar.
Hins vegar er alltaf viss áfangi að
rétt skríða í að komast á fimmtugsald-
urinn.“
Winnie Mandela dæmd í fangelsi
Nemendur úr myndlistardeild, hönnun og arkitektúr í Lista-
háskóla Íslands opnuðu um helgina útskriftarsýningu í gömlu
kartöflugeymslum Reykjavíkur í Ártúnsbrekku. Alls útskrif-
uðust 63 nemendur; 20 úr myndlistardeild og 43 úr hönnun og
arkitektúr.
Gestir og gangandi litu inn og skoðuðu hvað hafði farið
fram innan veggja skólans og kenndi þar ýmissa grasa. Gafst
þarna kærkomið tækifæri til að sjá verk upprennandi kyn-
slóðar sjónlistarfólks. Þetta var í fyrsta skipti sem gömlu
kartöflugeymslurnar eru allar nýttar undir myndlist og hönn-
un en til þess var framtíðartilgangur húsnæðisins hugsaður.
List milli kosninga og Eurovsion
Foseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, verður
64 ára í dag en honum gefst
væntanlega ekki mikill
tími til að taka á móti gjöf-
um í tilefni dagsins enda
alþingiskosningarnar ný-
afstaðnar. Reyndar er tvö-
falt afmæli á Bessastöð-
um því í dag eru jafnframt
liðin fjögur ár síðan Ólaf-
ur kvæntist unnustu sinni,
Dorrit Moussaieff.
Ólafur Ragnar fæddist
á Ísafirði 14. maí 1943 og
eru foreldrar hans Grím-
ur Kristgeirsson og Svan-
hildur Ólafsdóttir Hjart-
ar. Hann útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reykja-
vík 1962 og lauk BA-
prófi í hagfræði
og stjórnmála-
fræði frá Univer-
sity of Manchest-
er þremur árum
síðar. Ólafur
hóf snemma af-
skipti af stjórn-
málum og sat
meðal ann-
ars í stjórn
Sambands
ungra
framsókn-
armanna
1966 til
1973. Á þeim
tíma vakti forsetinn einn-
ig athygli sem stjórnandi
útvarps- og sjónvarps-
þátta en þeir nutu mikilla
vinsælda á þeim tíma og
ruddu nýjar brautir í fjöl-
miðlun á Íslandi. Þá lagði
Ólafur einnig grunn að
kennslu í stjórnmála-
fræði sem varð ný
námsbraut við Há-
skóla Íslands.
Ólafur var kjör-
inn forseti Íslands
1996 og tók við
lyklavöldunum á
Bessastöðum 1.
ágúst 1996. Hann
var síðan endur-
kjörinn árið 2000 og
aftur 2004.
Blásið til veislu
á Bessastöðum