Tíminn - 17.04.1980, Síða 5
Fimmtudagur 17. aprll 1980
5
MJOLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR
Slmi: 11125
Kuniwslu; k'n^i/o/
FOÐURfið riö sem bœndur treysta
REIÐHESTABLANDA
mjöl og kögglar —
Inniheldur nauðsynleg
steinefni og vitamin
HESTAHAFRAR
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
LAUGARVEGI 164. REYKJAVlK
SlMI 11125
Ný námsbraut?
Jónas Guömundsson, rithöfundur:
Nokkur orð um
„námsmenn”
í útvarpinu
Nú hafa Iranskir
mannræningjar haidið banda-
riskum sendiráösstarfsmönnum
i glsiingu I meira en fimm mán-
uði, þar af átta sem verið hafa I
einangrun, af þvl að mannræn-
ingjarnir telja þá hafa veriö
njósnara.
Ekki skal ég fullyröa neitt um
það hvurslags jaröfræöirann-
sóknir þessir átta menn hafa
framiö i Iran, en jarðvlsindi eru
nú einn mesti tiskupassi þeirra
er finna eiga skriðdrekaleiöir
yfir lönd og lendingarstaði flug-
véla, sem nothæfir verða þegar
mannkynið hefur endanlega
ákveðið að tortlma sér, en að
þvi viröist nú draga hraðar en
oft áður.
Réttindi sendimanna
Nú er þaö svo, aö allir siðaöir
menn hjóta að átta sig á þvl, að
erlendir sendimenn (diplomat-
ar) hljóta að þurfa sérstök
mannréttindi I þeim löndum er
þeir starfa I, og þótt ég sé and-
vígur mörgum þeim sérreglum
er gilda um erlenda sendimenn,
veröa yfirvöld I viðkomahdi
löndum að tryggja öryggi er-
lendra sendiráösmanna. Um
það efast vlst enginn.
1 Iran viröist á hinn bóginn
vera annað uppi á teningnum.
Æjatollarnir þar eru að eltast
um heim allan við krabba-
meinssjúkling, er þar var einu
sinni keisari, og hóta iliu ef hann
er skorinn upp.
Maður getur skilið aö almenn-
ingsálitið snúist gegn vondum
þjóðarleiðtogum, en mikilmenni
eins og Bruno Kreisky forseti
Austurrlkis, hafa þó verið and-
vigir mikilli greiningu á póli-
tiskum flóttamönnum, þvi þar
er sjálfsagt misjafn sauður eins
og I öörum fénaði.
Þó getur greining, eða orða-
greining, átt frekar við, til
dæmis I umfjöllun fjölmiöla um
menn sem standa I pólitiskum
sviptingum.
Sérstaklega viröist rlkisút-
varpið oft og einatt velja sér
einkennileg orð þegar um
heimsviðburði er aö ræöa.
Það talaði um árásarmenn,
þegar frægur biskup var myrtur
með skothrlð. Þetta voru morö-
ingjar. Samkvæmt ódýrum
orðabókum, Islenskum, þýðir
„árás” fjandsamleg aögerö, en
„morðingi” I sams konar bók
manndrápari.
Hver er „námsmaö-
ur?”
Útvarpið (og ég held sjón-
varpið llka) nefnir mannræn-
ingjana er halda gislunum I
bandarlska sendiráðinu I lran
alltaf „námsmenn”. Hvers
vegna er það gert?
Samkvæmt orðabókum þýðir
oröið „námsmaður” einfaldlega
skólanemandi — skólapiltur, en
ekki er I mlnum bókum orö um
að þaö orö eigi aö nota um þá er
taka sendiráö og gisla, og
reyndar er mín oröabók svo
aum aö hún á ekki orð yfir
mannran þeirrar tegundar er
þarna fer fram.
Spurningin er þvl aðeins sú,
hvers vegna orðiö „námsmaö-
ur”, eöa skólapiltur, svona sak-
laust og elskulegt orð, er notað
yfir handtöku og fangelsun án
dóms og laga, án þess að nokkur
geri athugasemd?
Að visu er maöur dálltið utan-
gátta I hugtakinu „námsmað-
ur”, eftir að heimspekideild Há-
skólans byrjaöi á dönsku-
kennslu án þess að kenna
dönsku, en mér er sama. Ég á
börn I skóla, eða námsmenn eru
i fjölskyldunni.
Sumir hafa hætt námi.
Getur það t.d. verið að þarna I
íran séu haldnir fyrirlestrar
eins og I háskólum, eða dreift
kökum með málsháttum eins og
gert er I dönsku á háskólastigi?
Fá þeir námslán?
Otal spurningar herja á hug-
ann.
Á hvaöa leiö er tungan með
svona fimm mánaða finnagaldri
um „námsmennina I banda-
riska sendiráðinu”. Halda menn
ekki I framtlöinni að mannrán
sé námsbraut? Ég veit það ekki.
Mér kemur ekki til hugar að
ekki megi finna rétt orö um
þessa nýju skólastétt, eða
námsbraut, áður en einhverjir
hér byrja aö rugla þessu saman
— og jafnvel læra mannrán.
Eg vil að lokum taka það
fram, aö ég fagnaði þvl á slnum
tlma að einveldi lranskeisara
féll, en I guös bænum reyniö að
finna betra orð yfir þá sem
halda saklausu fólki I glslingu
og hóta aö drepa það, ef þetta
eða hitt verði gert, eða ekki
gert. Námsmenn eiga þetta
oröaval ekki skiliö.
______________________________J
Lionsmenn selja
„Rauðu fjöðrina”
Kaupa tæki til háls-, nef- og eyrnadeildar
Borgarspitalans
KL — I slöastliðinni viku var
skýrt frá opnun fjögurra tann-
læknastofa fyrir vangefna, en
þeim var komið á fót fyrir söfnun-
arfé það, sem aflaðist, þegar
Lionshreyfingin seldi „Rauöu
fjöörina” um land allt fyrir fjór-
um árum við frábærar undirtekt-
ir landsmanna. Nú stendur fyrir
dyrum þriöja sllk landssöfnun á
vegum Lionsmanna, en þær fara
sem kunnugt er fram á fjögurra
ára fresti. Að þessu sinni er
markmiðiö tækjakaup til Háls-,
nef- og eyrnadeildar Borgar-
spltalans, en hún er eina sjúkra-
húsdeild landsins, sem er sérhæfð
til að sinna heyrnarskööum og
skertri heyrn, og hún tekur á móti
sjúklingum af landinu öllu.
Dagana 18., 19. og 20. aprll
munu Lionsmenn knýja dyra á
sérhverju heimili á landinu og
bjóða til kaups „Rauðu fjöðrina”.
Söluna annast þeir tæpl. 3000 fé-
lagar, sem starfa I 77 Lionsklúbb-
um um land allt, þ.m.t. fyrsta og
eina islenska kvennaklúbbnum en
hann var stofnaður á Siglufirði 29.
feb. sl.
Háls-, nef- og eyrnadeild
Borgarspitalans var stofnuö fyrir
um 10 árum. Þar voru þá 10
sjúkrarúm, en eru nú 14-15. Sam-
kvæmt alþjóölegum staðli ættu
þau að vera 40 miðað við fólks-
fjölda. Eru þvi glfurleg þrengsli á
deildinni og hefur einungis verið
unnt aö sinna skuröfræðilegum
verkefnum þar. Hafa frá stofnun
deildarinnar verið gerðar aögerð-
ir hér á landi, sem aldrei áður
höfðu verið geröar hér. Eru þess-
ar aðgerðir nú orönar um 1500
talsins. En til þessara aðgerða
þarf nýtlskulegan og fullkominn
tækjabúnaö. Hafa deildinni borist
margar stórgjafir til tækjakaupa,
enda má segja, að tækjakostur
deildarinnar hafi verið sjúkra-
húsinu að kostnaöarlausu.
Stefán Skaftason yfirlæknir
háls-, nef- og eyrnadeildarinnar
hefur veriö Lionsmönnum til
ráðuneytis um hvaöa tæki væri
brýnast aö fá til deildarinnar.
Hefur hann tekið saman lista, en
siðar mun nefnd skipuð 3 læknum,
Ólafi Bjarnasyni, Einari Sindra-
syni og Stefáni, raöa verkefnun-
um I forgangsröð.
Verkefnin eru: 1) Komið verði
á fót skuröstofueiningu af full-
komnustu gerð. 2) Keypt veröi
F.M. tæki til notkunar viö kennslu
heyrnardaufra. Gætu þá margir
heyrnardaufir, sem búsettir eru
utan Reykjavlkur, dvalist áfram I
sinni heimabyggð og notið náms
þar, I stað þess að þurfa að stunda
sitt nám i Reykjavlk, eins og nú
er. Yrði þá F.M. banki I Reykja-
vlk og úr honum yröi dreift efni
um landiö. 3) Veittur fjárstuðn-
Fyrir nær 10 árum færöi
Lions-klúbburinn Njöröur Háls-,
nef- og eyrnadeild Borgarspital-
ans forláta smásjá aögjöf. Hefur
hún gegnt stóru hlutverki I starfi , í'11” var * v,*cunnl auglýsingamynd f sjónvarpi til kynningar á starfi
deildarinnar siöan. Lionsmanna og sölu „Rauöu fjaörarinnar”.
ingur til aö fréttir I sjónvarpi
verði textaöar. 4) Keyptir heyrn-
armælar til nota I dreifbýli. yröu
þeir sérstaklega notaðir á heilsu-
gæslustöðvum til að mæla heyrn
skólabarna. 5) Að byggja upp
svokölluö rafsegulsvið I sam-
komuhúsum, kirkjum og elli-
heimilum sem vlðast út um hinar
dreiföu byggðir landsins, en raf-
segulsvið er útbúnaður, sem gerir
heyrnardaufum mögulegt að
hlusta á útvarp, sjónvarp, ræðu-
höld, leiksýningar o.fl. án þess að
magna þurfi útsendingu viökom-
andiefnis. 6) Kaupa slmafjarrita,
sem hannaöir eru fyrir mjög
heyrnardauft eöa heyrnarlaust
fólk. Þetta er nokkurs konar
simaritvél, þar sem vélrituð
skilaboð koma fram á skermi
hins slmans, sem tengdur er. 7)
Kaup á heyrnarrannsóknabfl, en I
honum er rannsóknastofa fyrir
venjulegar rannsóknir. Þessi bill
er óhemju dýr, en lagt er til, að
rikiö kosti hann að hálfu og Lions-
menn aö hálfu. Væri þá hægt að
fara á honum vlöa um land og
rannsaka fólk.
Sem sjá má er þarna margra
kosta völ, og verður greinilega aö
velja og hafna. En þvl betur sem
sala „Rauöu fjaröarinnar” geng-
ur, þvl fleiri af þessum tækjum
má gera sér vonir um aö unnt
verði að kaupa.
Galvaniseraðar plötur
BIIKKVER
Margar
stærðir og
gerðir
BtlKKVER
SELFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Símar 44040 -44100 Hrismyn 2A Selfoss Simi. 99-2040