Tíminn - 17.04.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.04.1980, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 17. april 1980 V. Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Slgurósson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Elriksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar srðumúla 15. Simi 86300. — Kvöldsfmar blaOamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö f lausasölu kr. 240. -Áskriftargjald kr. 4.800 á mánubi. BlaOaprent. J Réttur og hagsmunir í sjálfu sér kom það engum á óvart að ekki tókst að ná endanlegu samkomulagi i viðræðum íslend- inga og Norðmanna i Reykjavík á dögunum. Málin eru flóknari en svo og viðhorf það ólflct, þrátt fyrir góðan vilja, að þess var ekki að vænta að heildar- samkomulag tækist i einni lotu. Þvi er ekki að leyna að samningamenn Norð- manna beittu um sumt mikilli hörku i viðræðun- um. Það olli t.d. vonbrigðum að þeir töldu sig ekki geta f jallað um málið i heild sinni og vildu stinga nokkrum mikilvægum þáttum undan til siðari um- fjöllunar sem fyrst gæti átt sér stað eftir að þeir hefðu fært út landhelgi sina við Jan Mayen. Þá benti það ekki til mikillar sanngirni af þeirra hálfu að þeir vildu gera sem allra minnst úr ótvi- ræðum sögulegum rétti íslendinga og þóttust varla vilja heyra það að fyrirvarar íslendinga frá þeim tima er eyjan var innlimuð i norska rikið hefðu gildi. Kjartan Jónasson Erlent yfirlit The World Adversaries in the Gulf Gontinued TURK6Y SOVIET UNION SYRIA Teheran Total armed (orces: 310,000 Tanks: 1,985 tro°P* Armoredvehicles: 825 Combataircratt:192* Submarines: 1 Destroyers: 3 Frlgates:4 Corvettes: 4 Large patrol craft: 7 Fastattackcrafts: 6 •belteved operational ■LEBANON AFGHANISTAN Baghdad 'JORDAN PAKISTAN KUWAIT I CCOCQ jtk, tunb greater TUNB BAHRAIN Oll flelds OMAN Total armed forces: 220,000 Tanks: 1,900 trooP* Armored vehicles: 1,500 Combataircraft339 Fastattackcratts: 22 SAUDt ARABtA QATAr UNITED ARAB EMtRATES-" Verður JieUögu striði” íraks og írans forðað? Það kom mörgum íslendingum i viðræðunum á óvart hve Norðmönnum virtist tamt að hóta með einhliða útfærslu sinni þvert ofan i mótmæli is- lenska rikisins og þrátt fyrir eigin yfirlýsingar um samkomulagsvilja. Enn hertu þeir á með þvi að ógna með væntanlegri útfærslu Dana og Græn- lendinga við Grænland, en með henni verður Efna- hagsbandalag Evrópu beinn aðili að málinu. íslendingum er ljóst að málið er flókið og margs að gæta. Þeir gera sér ljóst að fyrir dyrum stendur útfærsla grænlenskrar landhelgi sem ná mun yfir mjög miirilvæg veiðisvæði, og þegar að henni er komið munu Norðmenn telja sér óhjákvæmilegt að færa út landhelgi sina við Jan Mayen. Af þessum ástæðum var það mikilvægt að ná einhverjum formlegum áfanga á fundunum að þessu sinni. Að svo varð ekki verður að harma, en enda þótt Islendingar þurfi að ræða mörg atriði betur i sinn hóp var það ljóst á fundinum að Norð- menn voru alls ekki tilbúnir til að ganga til heilz- arsamkomulags og bera þvi meginábyrgðina á þvi að mál eru enn óleyst. Við verðum að gera okkur ljóst að timinn er orð- inn mjög naumur til þess að komast I bráð að við- hlitandi samkomulagi sem gæti tryggt réttindi og hagsmuni íslendinga — og reyndar Norðmanna lika, gagnvart ásókn annarra aðila svo sem Efna- hagsbandalags Evrópu. En sannleikurinn er vitan- lega sá að andspænis slikum aðilum eiga íslend- ingar og Norðmenn i öllum aðalatriðum sameigin- legra hagsmuna að gæta. Þrátt fyrir allt verður erfitt fyrir Islendinga að trúa þvi að Norðmönnum hafi ekki verið aívara með tali um góðan vilja og samkomulagsmögu- leika á sanngimisgrundvelli. Og það mun taka ís- lendinga nokkra stund að trúa þvi að Norðmenn ætli að beita fyrirætlunum Efnahagsbandalags Evrópu fyrir sig sem keyri á Islendinga. Raunverulegur vilji Norðmanna hlýtur að koma i ljós á næstu vikum, vegna þess að úrslit verða ráðin fyrir lok maimánaðar með útfærslu við Grænland. Islendingar munu eftir sem áður leggja áherslu á samkomulag á grundvelli réttar og hagsmuna. — utanrfkismálastefna þessara ríkja hefur tekiö furðulegustu stakkaskiptum á rúmu ári 1 siðustu viku bárust þær fréttir frá Iran að til átaka heföi komið á landamærunum viö írak og hefðu írakar á einum staöráöist inn fyrir landamærin en verið hraktir til baka á ný. Leyniþjónustur á Vesturlöndum telja að þessar fréttir og aðrar slikar séu mjög oröum auknar þó að einhver fótur sé yfirleitt fyrir þeim. Hinu er þó ekki aö neita aö áróðursstrfö það sem staðiö hefur milli Irans og íraks allt siöasta ár er hættulegur for- boði um að strið skelli á milli landanna áður en yfir lýkur. Striö milli mestu hernaðar- blakka meöal Arabarlkja mundi án efa hafa afdrifarik áhrif á málefni þessa heimshluta og heimsins alls. Þó aö svo fari aö trak verði til þess að hefja átökin, eru það tvimælalaust lranar sem mest hafa hvatt til þeirra. lrakar eiga nú þegar fjölda banda- manna i Arabarlkjum I ýfingum þeim sem staðið hafa við íran. Ber þar fyrsta að telja Saudi- Arabiu, Bahrain, Kuwait, Sam- einuðu furstadæmin og jafnvel Sýrlandog Egyptaland og fleiri. Einkum hafa smárikin viö Persaflóa fagnaö einbeittri af stöðu traka til klerkaveldisins I tran en framámenn I Iran hafa siðan byltingin var gerð þar I landi talaö ótæpilega um þaö að koma bæri á islömsku lýöveldi I trakog öðrum nágrannarikjum. Með sögu trans og traks sið- ustu árin i huga er áróðursstrið það sem milli þeirra hefur stað- ið siöustu mánuöina með ein- dæmum kyndugt. Þetta stafar af þeirri ástæöu aö á einu ári hefur utanrlkisstefna beggja rikjanna tekið algjörum stakka- skiptum. Iran hefur horfið úr bandarisku blökkinni og trak Ur hinni sovésku. Saddam Hussein traksforseti, yfirstjórnandi trakshers og for-.- maður iraska Baath flokksins reiddi sig fyrst og fremst á Sovétrikin framanaf stjórnartið sinni, og mesti hluti vopnabún- aðar Iraska hersins er sovéskur. Fyrir um það bil ári breytti hann um stefnu og viröist hann nú gera sér mikiö far um aö draga úr áhrifum Sovétrlkjanna við Persaflóa og verða sér úti um vopn frá V-Evrópu meö til- styrk oliuútflutnings landsins. Þarf ekki að taka fram að hon- um hefur oröið þar vel ágengt. En stefnubreytingin felur það ekki i sér að Bandarikjunum sé greiður vegur til áhrifa i Irak. Hefur Saddam Hussein látiö öll- um vinarhótum þeirra ósvarað. Stefna hans er einfaldlega aö bald2 risaveldunum utan við málefni heimshlutans og ekki laust viö að hann ætli sjálfum sér stærri hluta áhrifanna þar um slóðir auk þess sem hann er talsmaöur arabískrar sam- heldni og sameiningar arabiskra rikja. Sameiningar- stefnunni hefur ljöslega séð staö i sameiningarviöræðum viö Sýrland i staö þess að lrak og Sýrland elduðu áður grátt silfur saman. Stuðningur Hussein viö Assad Sýrlandsforseta viröist ogfara vaxandi þar sem honum fellur ekki tilhugsunin um aö hinir herskáu trúmenn Múslimabræðrafélagsins nái undirtacunum í Sýrlandi, en þeir hafa einmitt gert Assad margan óleik á þessu ári, og er nú svo komið að völd hans i landinu eru ótryggari en nokkru sinni. Þaö er einnig i nafni arabiskr- ar sameiningar aö Hussein hef- ur tekið upp merkiö gagnvart Irönum og Islamskri heittrúar- stefnu þeirra. Iranar deila íslam með Aröbum og hafa um aldir ráöiö málum Arabaþjóöa, en þeir eru hins vegar ekki af arabiskum stofni heldur persneskum. Hefur Hussein tekiö það óstinnt upp að Kho- meini og atirir byltingarmenn I Iran hafa látið þau ummæli frá sér fara er benda til þess að tranar séu nú tilbúnir að hefja á nýjan leik heimsvaldastefnu 1 Arabaheiminum. Er nú svo komiö að Iranir hafa beðið Sovétmenn að hætta að selja Irökum vopn og varahluti þar sem þeir séu útsendarar Banda- rikjanna, en írakar aftur á móti gefa það ljóslega i skyn aö kannski væri rétt aö taka Iran áður en Sovétmenn veröi til þess. A þvi rúma ári sem liðið er siðan Camp David friöarvið- ræðurnar rufu einingu Arabaþjóða og siðan keisaran- um var steypt í lran hefur staða Iraks I Arabaheiminum tekið fullkomnum stakkaskiptum. Hussein hefur rifiö sig lausan frá Sovétmönnum og rifiö Saudi-Arabiu lausa frá Banda- rlkjunum. Hann hefur samið frið við erkifjendurna sem áður voru, Sýrland og Saudi-Arabíu, og skapað grundvöll fyrir því að stórveldunum Bandarikjunum og Sovétrikjunum verði úthýst i Arabaheiminum. Hann hefur jafnvel hótað að kollvarpa hinu marxiska S-Jemen. Þó hefur hann, þegar það hefur átt við, sýnt af sér nokkra friösemd, t.d. þegar hann lagöist á eitt með Saudi-Arabíu á Bagdad fundun um og kom I veg fyrir að fyllstu hefndaraögerðir sem Libýa og Sýrland beittu sér fyrir gagn- vart Egyptum næðu fram að ganga. Með þvl aö hann tók að sér hlutverk Sadat I Araba- heiminum er honum var útskúf- aö þaöan, hefur hann greinilega tekið upp þá stefnu að friömæl- ast við arablsk nágrannariki sin og reyna að hafa þau ofan af of nánu samstarfi við risaveldin með þvi aö það hafi sýnt sig að það leysti engan vanda heldur hefur miklu fremur aukiö hann um allan helming, eins og sam- starf lrana og Egypta viö Bandarikin séu ljós dæmi um. En hvað veröur ef áróöur- strlðiömilli Irans og Iraks verð- ur aö raunverulegu stríði? Mið- að við aðstæöur nú er óhætt aö spá þvi að Irak mundi hafa bet- ur. Spurningin er aðallega hvaö risaveldin kysu að gera og þá ekki sist Sovétrikin. Siðan bylt- ingin var gerö I Iran hefur rikt þar hálfgildings stjdrnleysi og innbyröis erjur veikja mjög landið, ef til ófriðar drægi. Raunverulegur hernaöarstyrk- ur segir þvi ekki alla söguna, en jafnvel þar hafa Irakar betur, þegar litiö er til vopnabúnaðar oe á bá eftir að taka tillit til þess að Jjeim bærist óefað stuöningur annars staöar frá úr Arabaheiminum. Það er þvi áleitin spurning, takist ekki aö forða ófriði milli landanna, hvort Sovétríkin gætu staðist freistinguna miklu þó ekki væri nema aö koma Iran til hjálpar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.