Tíminn - 18.04.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.04.1980, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 800 milljónir til bjargar Olíumöl hf. — rikið breytir 300 millj. söluskattsskuld i hlutafé HEI — Þaö er auövitaö öllum ljóst aö þaö er ekki bara rós- rautt framundan hjá Oliumöl h.f. þótt allt gangi nú eins og út- lit er fyrir, þvl það tekur alltaf tima aö vinna sig út úr svona vanda. En þetta ætti aö geta gengið ef markaöurinn fyrir oliumöl hrynur ekki, sem ég sé engar horfur á núna, sagöi Björn ólafsson, bæjarráösmaö- ur I Kópavogi er hann var spurður hvort framtiö fyrir- tækisins væri tryggö meö þeim aögeröum sem nú eru I gangi til bjargar þessu fyrirtæki. Þær aögeröir sagöi Bjarni vera, aö meö fjárlögunum heföi fjármálaráöherra veriö heimil- aö aö breyta söluskattsskuld fyrirtækisins — sem nú er um 300 millj. kr. meö vanskilum en annars 220 millj. væru vanskila- vextir frádregnir — i hlutafé rlkissjóös. Þaö væri raunar tengt samþykki fjárveitinga- nefndar, sem mun stefna aö þvi aö afgreiöa máliö eftir næstu helgi. í ööru lagi væri stjórn Fram- kvæmdastofnunar nýlega búin aö endursamþykkja aö lána sveitarfélögunum sem aö Oliu- mölh.f. standa, 200 milljónir kr. til aukinna hlutabréfakaupa. Og ennfremur gert þá ágætu sam- þykkt, aö Framkvæmdasjóður kaupi sjálfur hlutabréf fyrir 300 milljónir kr. AB sjálfsögöu þó meö samþykki rikisstjórnarinn- ar. Þetta eru þvi alls um 800 milljónir króna. Björn sagöi aö þaö heföi oröið feiknarlegt áfall fyrir sveitarfé- lögin sem standa aö Olfumöl h.f. ef fyrirtækiö heföi rúllaö. Fyrst og fremst heföu þau tapaö 24 millj. kr. hlutafé, en einnig væru sveitarfélögin á Reykjanesi I ábyrgö fyrir 120 millj. kr. er- lendu láni og 4 önnur sveitarfé- lög I ábyrgð fyrir 30 millj. aö auki. Einnig heföi þvi veriö haldiö fram, aö gengiö heföi veriö eftir 125 millj. kr. hluta- fjárloforöum sveitarfélaganna frá I fyrravor. En þaö heföi aö sjálfsögöu ekki hafst nema meö málaferlum. Samtals eru þetta um 300 millj. kr. Auk þess væri sá þátturinn, sem erfitt væri aö meta til fjár, aö stöövun fyrir- tækisins heföi getaö nánast stöövaö sum sveitarfélög I gerö varanlegra vega um nokkurt skeiö. Söluskattsskuldina sagöi Björn hinsvegar aö rikiö heföi sennilega ekki fengiö krónu upp I, ef fyrirtækiö heföi veriö gert upp. Aö þvi leyti mætti líta svo á, aö rikissjóöur væri ekki aö leggja fram fé, heldur væri ver- iö aö viöurkenna þá staöreynd, aö þetta heföi veriö glataö fé ef fyrirtækinu væri ekki bjargaö. 175% hækkun tíl bygginga dagvistunar- stofnana Kás — Fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar var sam- þykkt viö seinni umræöu hennar á fundi borgarstjórnar I nótt. Fyrir fundinum lágu ýmsar breytingar- tillögur frá meirihlutanum, m.a. um hækkun útsvars um 8%, og aö sama skapi hækkun framlaga til ýmissa framkvæmda og aukinna útgjalda vegna launahækkanna. Samkvæmt fjárhagsáætluninni eru stóraukin útgjöld til margra nauösynlegra framkvæmda. T.d. eru framlög til byggingar nýrra dagvistunarstofnana 175% hærri miöuö viö áætlaöa útkomu fjár- hagsáætlunar borgarinnar fyrir áriö 1979. Alls er áætlaö aö verja 714millj. kr. til þessa málaflokks. Þar af eru endurgreiöslur frá rlkissjóöi 171 millj. kr., þannig aö framlag borgarinnar veröur 543 millj. kr. Veröur lokiö viö nýjar stofnan- ir, sem standa viö Iðufell, Fálka- bakka, Hálsasel og Blöndubakka ásamt breytingum sem geröar veröa á húsnæöi f Austurbæjar- skóla. Þá verður bygging nýrra dagvistunarstofnunar viö Ægi- slöu boöin út siöari hluta ársins og búist er viö ákvöröun um upp- byggingu fleiri dagvistunarstofn- ana. A fundinum 1 nótt lögöu sjálf- stæöismenn fram tillögu um aö útsvarsálagning I borginni yröi óbreytt þetta áriö, eöa 11%. Jafn- framt lögöu þeir fram tillögur um niöurskurö sem þeirri fjárh^sö nemur sem er mismunur 16% álagningar og 11.88% álagningar eins og meirihluti borgarstjórnar lagöi til. Alls um 1700 millj. kr. Aðaltillaga sjálfstæöismanna um niöurskurö var sú aö áætla tekjur Reykvikinga á sföasta ári 49.5% hærri en áriö 1978 I stað 48.5% eins og meirihlutamenn höföu ráðgert.Auk þess lögöu þeir til aö framlög til byggingarmála, áhaldakaupa og nýbygginga gatna og holræsa yröu lækkuö um 5%. Svo má nefna liöi eins og lækkun styrks til Alþýöuleikhúss, fjárveitingu til endurbóta á Bern- höftstorfu o.s.v. Atkvæöagreiðslu var ekki lokiö þegar blaöiö fór I prentun, en ekk- ert benti til þess aö niöurskuröar- tillögur sjálfstæöismanna yröu samþykktar. Nýlr agnúar á skattskrá JSG — Útvarpsumræöum um skattamál, sem ákveöiö haföi veriö aö færu fram f gsrkvöldi, var óvænt frestaö aö beiöni fjár- málaráöherra seint I fyrrakvöld. Frestunin var ákveöin svo seint aö ekki tókst aö leiörétta frétt um umræöurnar sem birtist i Tfman- um i gær, og er beöiö veiviröingar á þvf. Ragnar Arnalds, fjármálaráö- herra, skýröi frá því í gær að frestunarbeiöni hans heföi veriö byggö á óvæntum upplýsingum sem honum bárust frá rfkisskatt- stjóra siödegis á miðvikudag. I þessum upplýsingum heföi falist ný vitneskja um áhrif þeirra breytingatillagna viö skattstiga sem stjórnarliöar lögöu fram fyr- ir nokkrum dögum. Útreikningar rikisskattstjóra heföu varpaö ljósi á nýja agnúa á tillögunum, og aö þeim þyrfti aö gefa gaum, og reyna aö sniöa þá af. óeölilegt væri aö útvarpsumræöa færi fram um málið áöur en skattstig- arnir væru komnir i endanlegt form. Þvf heföi hann viljaö at- huga máliö nánar og umræðan færi sföan fram eftir helgi. Stjórnarandstæöingar héldu uppi löngum umræöum utan dag- skrár i Sameinuöu þingi I gær vegna frestunar útvarpsumræön- anna. Töldu þeir aö frestunin sýndi aö ráöherra heföi brostið kjark til aö ræöa skattamálin frammi fyrir alþjóð, þeim hefðu Framhald á bls 19 Pálmi Jónsson landbúnaöarráöherra leggur hornstein aö hinni nýju byggingu Osta- og smjörsölunnar aö Bitruhálsl 2. Aö þvf loknu flutti Óskar G. Gunnarsson forstjóri fyrirtækislns ávarp. Verður nánar sagt frá þessum merka áfanga I sögu fyrirtækislns I blaðinu á morgun. Osta og smjörsalan Flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði JSS — 1 gær var hiö nýja og glæsilega húsnæöi Osta- og smjörsölunnar aö Bitruhálsi 2 tekiö I notkun. Lagöi Pálmi Jónsson landbúnaöarráöherra hornstein aö byggingunni aö viðstöddum fjölda góöra gesta. Byggingin er aö grunnfleti 4.106 fermetrar, en hluti hennar er tvilyftur, svo aö samanlagöur gólfflötur. er 5.025 fermetrar. Rúmmál undir þaki er 24.217 rúmmetrar. Kostnaöur viö bygginguna nemur nú um 1.4 milljöröum króna. Lóö undir bygginguna var út- hlutað áriö 1974. Er hún 39.000 fermetrar aö stærö. Fyrstu skólfustungu aö grunni hússins tók óskar H. Gunnarsson 25. mars þaö ár. Grunnur var graf- inn þá um voriö og steypuvinna á staönum unnin um sumariö. Eru útveggir hússins úr verk- smiöjuframleiddum einingum, sem reistar voru aö vetrinum, I september til mars 1978-1979. Sföan var unniö viö innréttingar og frágang og var frystigeymsla tekin I notkun i september 1979, og meginhluti hússins i þessum mánuöi. Er innréttingum þannig hátt- aö, aö á fyrstu hæö eru sölu- skrifstofur, afgreiöslulager, rannsóknarstofa, snyrting, pönt- unarskrifstofa og frystigeymsl- ur. A annarri hæö eru skrifstof- ur, fundarsalir o.fl. Veröur öll starfsemi Osta- og sm jörsölunnar frá og meö næstu helgi I nýja húsnæöinu. Osta- búöin aö Snorrabraut 54 veröur þó starfrækt áfram.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.