Tíminn - 24.04.1980, Qupperneq 3
Fimmtudagur 24. april 1980
3
Útflutningsstjóri Marks &
Spencer kynnir kaupfélags-
stjórum fyrirtæki sitt
Norman Krestin litfiutningsstjóri Marks & Spencer sýnir Einari
Kjartanssyni deildarstjóra vefnaöarvörudeildar SIS nokkrar af vör-
um fyrirtækis síns. (TfmamyndGE)
KL — Þessa dagana stendur yfir
innkaupafundur kaupfélagsstjóra
i vefnaöarvörudeild SIS, þar sem
þeir kaupa inn fyrir verslanir sln-
ar til haustsins. t þvf tilefni er
staddur hér á landi útfiutnings-
stjóri fyrirtækisins Marks &
Spencer, Norman Krestin, en
Sambandiö selur vörur þess hér á
landi.
Allir kannast viö vörur Marks &
Spencer, sem seldar eru undir
vörumerkinu St. Michael. Þær
hafa veriö á markaöi hérlendis
árum saman og er almenningur
þvi oröinn þeim vel kunnugur.
Fyritækiö varö til úr litlu. Upp-
hafiö var þaö, aö pólskur innflytj-
andi I Bretlandi, Michael Marks,
kom sér upp litlu söluboröi á
markaöi I Leeds áriö 1884. Hann
kunni enga ensku og fékk þvi
kunningja sinn til aö mála skiiti,
þar sem á stóö: Don’t Ask the
Price — It’s a Penny, sem þýöir:
Spyröu ekki um veröiö — þaö er
eitt penny. Þetta féll i góöan jarö-
veg. 10 árum siöar seldi hann
hluta þessarar markaösverslunar
sinnar Thomas Spencer, sem þá
vann sem bókhaldari hjá heild-
sala nokkrum, er Marks skipti
viö. 1 kringum 1910 kom fyrirtæki
þeirra félaga undir sig fótunum i
London, en þá voru þeir báöir
látnir. Viö rekstrinum haföi þá
tekiö Simon Marks, sonur Micha-
els Marks, og mágur hans, Sieff
aö nafni. Þeir félagar byggöu siö-
an hægt og sigandi upp þaö stór-
fyrirtæki, sem Marks & Spencer
er i dag, en nú er þaö oröiö hluta-
félag.
Marks & Spencer rekur 250-260
verslanir I Bretlandi, en hefur
auk þess útibú I Kanada, Evrópu
og Austurlöndum fjær. St.
Michael vörumerkiö er mest
selda vörumerki I Bretlandi. T.d.
eru um 40% seldra brjóstahaldar
þar i landi undir þvi merki, og
20% prjónavarnings, sem þar
selst, ber St. Michael miöa.
En Marks & Spencer selur ekki
einungis fatnaö. Þar eru lika
seldar ýmsar matvörur, en þó
ekki allar. Herra Krestin segir
skýringuna á þvi vera þá, aö ekki
sé unnt aö ná fram mismiklum
gæöum I öllum fæöuvörum, og
þeir stefni aö þvi aö hafa einungis
hæsta gæöaflokk á boöstólum.
30% veltu fyrirtækisins liggja þó
I matvöruversluninni.
Fyrirtækiö hefur alltaf stefnt aö
þvi aö hafa nær eingöngu breskan
varning á boöstólum. Þaö hefur
gert itarlegar kannanir á óskum
viösklptavina sinna og til aö
árangur mætti veröa sem bestur
hefur þaö mikla sveit tækni-
manna I þjónustu sinni, nú um
400.
Dískó 74
FRI — I gær var opnaöur nýr
veitingasalur aö Álfheimum 74
(Glæsibæ) undir nafninu
„Diskó 74”. Salurinn er tengd-
ur veitingahúsinu Glæsibæ en
— nýr veitingasalur
að Álfheimum 74
hann er rekinn af sömu aöilum
og veitingahúsiö.
Salarkynnin eru rúmgóö
og þægileg en þau rúma 250
manns.
Eigendur eru Halldór Július-
son og Siguröur Sigurösson, inn-
réttingar annaöist Einar Þ.
Jónsson I Hafnarfiröi og Daviö
Haraldsson sá um skreytingar.
Stéttarfélag grunnskólakennara:
Vill alvöru samn-
ingaviðræður
Halldór Júliusson, Siguröur
Sigurösson og alnafni hans
Siguröur Sigurösson barþjónn
viö einn barinn i hinum nýju
salarkynnum. Timamynd
Tryggvi.
JSS— Stjórn stéttarfélags grunn-
skólakennara hefur sent frá sér
ályktun, þar sem tregöa stjórn-
valda til aö ganga til kjarasamn-
inga viö BSRB er harölega átalin.
Þá skorar stjórnin á stjórn og
samninganefnd BSRB aö beita
sér nú þegar fyrir aögeröum, sem
knýi stjórnvöld til alvörusamn-
ingaviöræöna.
Mörg nýmæli í
orkujöfnunar-
frumvarpi
— málefni nýrra hitaveitna þarf að
skoða sérstaklega, sagði Bogi
Sigurbjörnsson
Mörg nýmæli er aö finna I
frumvarpi rikisstjórnarinnar um
jöfnun og lækkun hitunarkostnaö-
ar. Tómas Arnason, viöskipta-
ráöherra, mælti i gær fyrir frum-
varpinu, og nefndi þá m.a. aö
greiösla oliustyrkja yröi meö allt
öörum hætti en áöur, nú yröi
greitt eftir stærö fjölskyldna, og
þvi yröi meira samræmi milli
styrkgreiöslna og raunverulegs
kostnaöar viö upphitun en áöur
hefur veriö. Þá nefndi ráöherra
ýmisleg ákvæöi sem eiga aö
stuöla aöorkusparnaöi og aukinni
nýtingu innlendrar orku, s.s. aö
haldin veröi námskeiö um hag-
kvæma orkunýtingu á vegum
Rannsóknarstofnunar byggingar-
iönaöarins, veittur veröur oliu-
styrkur vegna hreinsunar og still-
ingar kynitækja, og aö nýjar
varmaveitur sem eiga i erfiöleik-
um veröi styrktar.
Einar Guöfinnsson lýsti stuön-
ingi viö frumvarp rikisstjórnar-
innar, I sinni jómfrúrræöu á Al-
þingi, og taldi oliustyrkina skv.
reglum frumvarpsins dreifast
mun sanngjarnar en áöur. Einar
taldi ekki hafa veriö nóg unniö aö
nýtingu innlendra orkugjafa til
húsahitunar, og nefndi aö bygg-
ingu svonefndrar Vesturlinu heföi
veriö frestaö aö ástæöulausu.
Steingrimur Hermannsson upp-
lýsti aö töfin á byggingu linunnar
heföi oröiö vegna mistaka I efnis-
pöntun, og óviss stjórnarástands
á s.l. hausti, en kvaö fjármagn til
verksins veröa á Lánsfjáráætlun
þessa árs.
Guörún Helgadóttir og Bogi
Sigurbjörnsson lýstu ánægju sinni
meö frumvarpiö, en Bogi kvaöst
hafa veriö ósammála þeirri
ákvöröun aö afia fjár til jöfnunar-
innar meö lækkun söluskatts. Þá
taldi Bogi þurfa aö taka mun fast-
ar á málefnum nýrra hitaveitna
heldur en gert er I frumvarpinu,
þvi margar þeirra stæöu mjög
veikt, og yröu jafnvel aö selja
orku á hærra veröi en olia til
húsahitunar kostaöi, aö teknu til-
liti til hækkunar oliustyrksins.
Sem dæmi nefndi Bogi aö komi
fyrirhuguö hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Siglufjaröar til fram-
kvæmda, veröur upphitun á
Siglufiröi 20% dýrari en olfukynd-
ing aö frádregnum oliustyrk.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
BMW sameinar kosti sportbíls og þægindi einkabíls, kraftmikill, öruggur, stöðugur í
akstri, bjartur og rúmgóður, með þægilegum sætum.
Það þekkja allir aksturseiginleika þessa vandaða bíls, en þeir halda flestir að hann
sé mun dýrari en hann er. BMW er meira en samkeppnisfær í verði, auk þess sem
þú eignast betri bíl en verðið segir til um.
BMW - ÁNÆGJA í AKSTRI
AKUREYRARUMBOÐ: Bílaverkst. Bjamhédins Gíslasonar. Sími: 96-22499
gæðingurinn sem allstaðar
vekur athygli