Fréttablaðið - 03.06.2007, Síða 63
Framkvæmdastjóri • Ríki Vatnajökuls ehf.
Ríki Vatnajökuls ehf. auglýsir eftir framkvæmdastjóra til starfa á Höfn
í Hornafi rði. Um er að ræða nýtt og spennandi starf með aðstöðu í
þekkingarsetrinu Nýheimum.
Ríki Vatnajökuls ehf er Ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi
Suðausturlands. Markmið fyrirtækisins er að gera Ríki Vatnajökuls að einu
þekktasta ferðaþjónustusvæði Íslands, með áherslu á einstakt umhverfi
Vatnajökuls, auðuga menningu og mannlíf og sérstöðu í matvælum.
Hlutverk:
• Framkvæmdastjóri tekur þátt í stefnumótun og sér um daglegan rekstur
félagsins. Í starfi nu felst einnig að leiða vöruþróunarverkefni, bera
ábyrgð á gerð og eftirfylgni markaðsáætlana og öðru því sem stjórn
félagsins ákveður.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Framkvæmdastjóri þarf að hafa háskólamenntun á sviði viðskipta- og
markaðsfræða eða aðra sambærilega menntun. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af sölu og markaðsstarfi.
• Framkvæmdastjórinn þarf að vera hvetjandi og gæddur eiginleikum til
að byggja upp traust og góð samskipti meðal þátttakenda og skapa
klasahugmyndinni gott orðspor út á við.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu auk meðmæla
sendist til Frumkvöðlaseturs Austurlands, Nýheimum, 780 Höfn Hornafirði.
Umsóknafrestur er til 5. júní 2007. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Ari Þorsteinsson, ari@fruma.is,
sími 470 8080
Skrifstofumaður
og bókari
Við viljum ráða skrifstofumann til fjölbreytilegra
utningur, launaútreikningur,
samband við erlenda byrgja, vinna við viðskipta-
vinaskrá og mar eira.
Okkur vantar bókara í hlutastarf eða lengur unnið
.
Fyrirtækið Sævar Karl hóf rekstur 1974. Hjá Sævari Karli vinna
12 til 15 frábærir starfsmenn við sölu og þjónustu til viðskipta-
vina sem eru þeir bestu og þakklátustu. Fyrirtækin sem við erum
í daglegu sambandi við eru Giorgio Armani, Prada, Roberto
Cavalli, Scabal, Dolce & Gabbana svo nokkur séu nefnd.
Hjá okkur er alltaf pláss fyrir bestu starfmennina, þeir verða að
vera duglegir, sjálfstæðir í hugsun, hafa frumkvæði, skemmtileg-
ir og hafa vilja til að takast á við spennandi verkefni í vellíðun-
arviðskiptum. Enginn reykir hjá okkur. Leggið inn umsókn með
upplýsingum um nám og fyrri störf fyrir 7. júní eða sækið um á
netinu saevarkarl@saevarkarl.is
Sævar Karl. Bankastræti 7. sími 5513470
www.saevarkarl.is