Fréttablaðið - 03.06.2007, Side 80

Fréttablaðið - 03.06.2007, Side 80
Baulið kom landsliðsfyrirliðanum ekki á óvart F-riðill: Ein lélegustu úrslit ís- lenska landsliðsins í áratugi litu dagsins ljós á Laugardalsvellinum í gær. Þá mátti íslenska landsliðið þakka fyrir eitt stig á heimavelli gegn dvergríkinu Liechtenstein í leik þar sem gestirnir voru miklu betri allan tímann. Brynjar Björn kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik en Liechtenstein jafnaði verðskuldað í síðari hálfleik og þar við sat. 1-1 lokatölur. Úrslitin eru vond en það sem svíður enn meir var glæpsam- lega lélegur leikur íslenska lands- liðsins. Liechtenstein tók völdin á vell- inum nánast í upphafi leiksins og miðjumenn Íslendinga – Brynjar og Stefán – létu miðjumenn gest- anna pakka sér saman. Þar fyrir aftan var flöt og óörugg íslensk vörn í miklum vandræðum með duglega og hreyfanlega sóknar- menn gestanna. Ekkert gekk hjá íslenska liðinu að byggja upp sóknir. Leikmenn notuðu margar snertingar á bolt- ann og voru í óratíma að koma bolt- anum fram völlinn. Sendingar liðs- ins voru líka margar hverjar átak- anlega lélegar. Það var gegn gangi leiksins þegar Brynjar skallaði frábæra aukaspyrnu Emils í netið og kom Íslandi yfir. Skalli Brynj- ars var eina skot Íslands í fyrri hálfleik. Það segir sína sögu. Gestirnir sóttu grimmt í kjöl- farið, fengu fín færi, skutu í slá og vildu fá víti en allt kom fyrir ekki. Lukkan var í liði með Íslandi. Rúmum 20 mínútum fyrir leikslok skoraði Rohrer verðskuldað jöfn- unarmark en varnarleikur Íslands í markinu var hræðilegur. Það áttu flestir von á því í að Ís- land myndi pressa stíft undir lokin en sú var aldeilis ekki raunin. Gestirnir settu hápressu á íslenska liðið sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð og náði vart að byggja upp eina almennilega sókn. Þegar dóm- arinn flautaði leikinn af bauluðu áhorfendur á liðið og það ekki að ástæðulausu. Það verður skýrara með hverj- um leik að Eyjólfur Sverrisson er ekki rétti maðurinn til þess að stýra íslenska landsliðinu. Leik- ur þess í gær var hneyksli. Það er ekki hægt að orða það öðruvísi. Ekki bara var hann lélegur heldur var frammistaðan andlaus og virð- ist vera sem þjálfarinn nái engan veginn til leikmanna liðsins og að þeir hafi enga trú á því sem hann leggur upp. Eyjólfur virðist því miður ekki ætla að segja upp af sjálfsdáðum og það er ábyrgðarleysi hjá Knatt- spyrnusambandinu ef það segir manninum ekki upp störfum fyrst hann gerir það ekki sjálfur. Hann er kominn á endastöð með liðið. Við þetta ástand verður ekki leng- ur unað. Eyjólfur Sverrisson er kominn á endastöð með landsliðið. Liðið hefur valdið stanslausum vonbrigðum undir hans stjórn og steininn tók úr í gær þegar Ís- land mátti þakka fyrir jafntefli á heimavelli gegn dvergríkinu Liechtenstein. „Þetta eru mikil von- brigði,“ sagði Eyjólfur. „Við sköp- uðum okkur ekki nógu mikið af færum og þurfum að gera miklu betur til að vinna Liechtenstein.“ Fréttablaðið spurði hvort hann hefði hugleitt sína stöðu hjá lands- liðinu og hvort til greina kæmi af hans hálfu að segja af sér. „Nei, ég hef ekkert hugað að því. Það kemur heldur ekki til greina á næstu dögum. Ég á mikið verk óunnið með þessum hópi og voru til að mynda margir ungir leik- menn að koma inn sem voru mjög ferskir. Það var mikill kraftur í þeim og er ég ánægður með þá.“ Íslenska landsliðið hefur ekki unnið leik síðan sigur vannst á Norður-Írum í Belfast í fyrsta leik undankeppninnar í haust og að- eins fengið eitt stig. „Okkar menn skorti hugmyndaflug, við héldum boltanum illa og náðum ekki að spila okkur í gegn. Það gekk ekk- ert einn á móti einum og lítið um þríhyrningsspil.“ Eyjólfur sagði að mark Liechten- stein hafi reynst mikið áfall fyrir sína menn. „Við gerðum ein mis- tök og þeir skoruðu úr því skoti. Það var reiðarslag fyrir liðið og leikmenn voru mjög taugaóstyrk- ir eftir það.“ Það hefur ekki hvarflað að mér að hætta

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.