Tíminn - 19.11.1980, Qupperneq 1
Miðvikudagur 19. nóv. 1980.
258. tbl. 64. árg.
Eflum
Tímann
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Fluglei öaf rumvarpi ð
samþykkt sem lög
á Alþingi I gær með 36 atkvæðum gegn 1
FRI Flugleiðafrumvarpiö var
samþykkt sem lög frá neöri
deiid Alþingis i gærkvöldi meö
36 atkvæöum gegn 1 en Ragn-
hildur Helgadóttir greiddi at-
kvæöi á móti frumvarpinu i
heild. 3 voru fjarverandi.
1 sambandi viö skilyröin
vegna aöstoöar viö fyrirtækiö
þá voru 24 sem greiddu atkvæði
meö þeim, 8 voru á móti og 5
sátu hjá. Allir Alþýðuflokks-
mennirnir voru á móti en þeir
vildu frekar aö skilyrðin yröu
afgreidd sem lög i staö þess aö
vera afgreidd meö greinargerö
viö frumvarpiö.
önnur umræöa um málið
hófst i neöri deild kl. 4 i gær og
fyrstur tók til máls Halldór
Asgrimsson alþingismaöur.
Hann greindi frá nefndaráliti
fjárhags- og viöskiptanefndar
deildarinnar sem hann er for-
maöur fyrir.
Greintvarfrá nefndarálitinu i
Timanum i gær en þaö kom m .a.
fram i máli Halldórs aö
nefndarmenn heföu viljaö fá
meiri tima til aö athuga
tryggingar þær sem settar voru
fyrir aðstoöinni en vegna eöli |
málsins varö ekki af þvi.
Vilmundur Gylfason tók j
næstur til máls og mæfti íyrir
áliti minnihlutans i nefndinni
en hann vildi gera skilyröin aö
lögum en ekki hafa þau i
greinargerö meö frumvarpinu
„sem ekki væri viröi þess
pappirs sem hún væri rituö á’’
svo notuö séu hans eigin orö um
þetta atriöi.
Aörir sem tóku til máls voru
þeir Matthias Bjarnason, Arni
Gunnarsson, Steingrimur
Hermannsson samgöngu-
ráöherra og Albert Guömunds-
son.
Þaö kom m.a. fram i máli hjá
hluta ofangreindra manna aö
þeir bjuggust viö aö málefni
Flugleiöa yröu komin aftur til
umræöu hjá Alþingi innan árs
en þá þyrfti félagið væntanlega
aftur á aöstoö aö halda.
Sjá nánar á bls 2.
Umferðaröngþveiti
í Reykjavík
Hafnarfjaröarvegur lokaöist í 2 tima vegna hálku
KL — í gær, upp úr miðjum
nóvember, voru Reykvikingar
minntir óþyrmilega á, aö vetur
konungur ræöur núna rikjum.
Upp úr hádegi fór aö snjóa á
höfuöborgarsvæðinu og skipti
engum togum, aö umferöin var
öll komin i hnút.
Um kl. 19.30 höfðu orðið 30
árekstrar frá hádegi i Reykja-
vik. Eftirtektarverðara er þó,
aö fyrsti áreksturinn varð ekki
fyrr en kl. 14.25 og siðan urðu
þeir 13 á næstu 50 minútum.
Litiö varö um slys á fólki, aöeins
i einu tilfelli fluttur farþegi úr
bifreiö á slysadeild.
Aö sögn lögreglunnar olli
hálka öngþveiti um alla borgina
og voru flestar götur meira og
minna tepptar af stjórnlausum
bifreiöum, enda alitof margar
illa útbúnari vetrarfærð.
Hafnarfjaröarvegurinn lok-
aöist algerlega fyrir allri um-
ferð um tveggja stunda skeið.
Þar var svo mikil örtröö af bii-
um, að ekki var einu sinni hægt
að koma þvi viö að saltbera veg-
inn. Kom þar enn einu sinni I
ljós, aðlitiðmá útaf bera svo að
eina leiöin til Suðurnesja tepp-
ist. Aö sögn lögreglunnar i
Hafnarfiröi gerist þetta alltaf
nokkrum sinnum á vetri, þaö
þarf ekki annaö til en aö smáö-
happ veröi á veginum, hann er
svo mjór, aö hann lokast þar
meö.
— Þaö hefur ekki komið neitt
óvenju mikið af beinbrotum,
miöaö viö þessa skyndilegu
hálku, en þaö er stundum svo-
leiðis, aö þegar fyrsti snjórinn
fellur, er fólk varkárt, en siöan
gleymir þaö sér aöeins, sagöi
Einar Þórhallsson, læknir á
slysadeild, þegar við spuröum
hann, hvort mikið heföi verið
um beinbrot i fyrstu hálku
vetrarins.
Byggöa-Tíminn
fylgir blaðinu í dag
Hlutabréfasalan til starfsfólks
Flugleiöa:
Aðeins selt
fyrir 6 millj.
— af þeim rúmlega 200 millj. sem
félagið bauð tii sölu
FRI — Sem kunnugt er af
fréttum þá er eitt af þeim skil-
yröum sem sett eru af hálfu
rikisins vegna aöstoöar þess viö
Fiugleiöir aö féiagiö gefi starfs-
mönnum sinum kost á aö kaupa
hlutabréf aö upphæö 200 millj.
kr. Þetta mun vera framkvæmt
þannig aö hverjum starfsmanni
er gefinn kostur á aö kaupa hl'uta
aö upphæö 200 þús. kr.
1 máli Matthiasar Bjarnason-
ar alþingismanns viö umræöu
um Flugleiðafrumvarpiö i neöri
deild Alþingis i gær kom fram
aö starfsmenn áttu aö vera bún-
ir aö láta vita af þvi fyrir 15.
þ.m. ef þeir ætluðu aö kaupa
þennanhlut a Matthias sagöi. aö J
hann hefbi h.ut samband' lýrir j
skömmu viö þann mann sem sér
um þetta hjá félaginu og þá
heföi aðeins verib búiö aö kaupa
fyrir um 6 millj. kr.
Þetta væri ekki vitni um
mikinn áhuga á þessum kaup-
um enda væri kannski ekki von
á aö áhuginn væri mikill eftir þá
umfjöllun sem veriö heföi um
félagiö aö undanförnu, sagöi
Matthias.