Tíminn - 23.11.1980, Qupperneq 1

Tíminn - 23.11.1980, Qupperneq 1
Eflum Tímann Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Visnaþáttur: Gróska í USA og pollar í lœri Þó aö menn bresti þrek til þess aö komast niöur fyrir frost á meöan þeir eru i fullu fjöri, þá veröur þeim hjálpaö til þess, þegar þeir eru dauöir. Eitt- hvaö á þann veginn segir i vfsnaþættinum. En i fylgd með skammdegisvlsum er þar visa um gróskuna, sem kvikn- aö hefur viö kjör nýs Banda- rikjaforseta, og huggunar- sálmur um vinkonurnar tvær, sem komnar eru meö polla I lærin. Bls.2 Um sunnanvert landið festi ekki snjó fyrr en langt var liðið á nóvem- bermánuð og þegar jörð loks hvítnaði virtist það koma ökumönnum í opna skjöldu, svo að úr varð umferðaröngþveiti með tilheyrandi pústrum uppáhaldsleikfanga hinna fullorðnu. En þeir sem eru svo lánsamir að vera ekki ofurseldir þrældómsoki bílanna, fögnuðu snjó- komunni og komust leiðar sinnar hjólalaust. Myndin af piltunum tveim á skíðum sínum var tekin fyrir helgi á Álftanesi. Tímamynd GE Verður byggðinni drekkt? Masi er Samabyggö á Finn- mörk. Þar er eini barnaskól- inn i Noregi, þar sem Sama- mál er kennt I öllum bekkjum. t heilan áratug hefur staöiö um þaö hörkustyrjöld, hvort sökkva eigi þessari byggö I þágu stórvirkjunar. Um þetta er enn bitizt. Sjá bls. 30-31 Heimilis- Tíminn fylgir blaðinu i dag DANIR: Gáfust upp fyrir eitur- lyfjunum Danir eru sárt leiknir af eiturlyf jum. Eitur- lyf janeyzla má heita þjóðarsjúkdómur, og sífellt fjölgar þeim, sem deyja eiturlyfja- dauða. Danir uggðu ekki að sér, þegar þessi alda reis, þeir héldu þettá væri tízkubylgja, sem gengi yfir,og þá auk þess drottnandi nokkurs konar frjálslyndi gagnvart váleg- um skuggalegum hræringum. Nú verður að verja átta milljörðum króna á ári til hjálpar eiturlyfjasjúklingum, og þó hæpið hversu mörgum það kemur að haldi. —SJá bls. 16 Lagðist í flakk 116 ára gamall Fáir ná 116 ára aldri, og leitun mun á manni, sem svo væri til aldurs kominn, erfyndist taka þvi aö flytjast búferlum um þvera álfu. Þaö hefur Gebro Gezici þó gert. Hann átti 1 116 ár heima I afskekktum dal I Tyrklandi, þar sem fólk lá undir stööugum árásum Kúrda. Niöjarnir voru 130 á lifi, en hver einasti þeirra var farinn úr landi. Og þá tók þessi roskni maöur, sem aldrei haföi stigiö inn i iangferöabil, sig upp, og hélt til Sviþjóöar. Þar eru yfir þrjátiu niöja hans, og þar eru engir Kúrdar, sem ræna fénaöi og drepa fólk.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.