Tíminn - 23.11.1980, Side 7

Tíminn - 23.11.1980, Side 7
Sunnudagur 23; nóvember 1980 ' 7 Jón Sigurðsson: Launþegasamtökin vantar ekki verkefnin Nú eftir helgina kemur þing Alþýöusambands Islands sam- an til fundar aB ræöa og taka ákvaröanir um málefni launþegasamtakanna. Alþýöu- sambandiö mun aö lflcindum valdamesta stofnun islenska þjóöfélagsins um þessar mundir oger þaö án efa þegar svo vill til aöalmennsamstaöa náist innan raöa þess um aögeröir vegna mála sem forráöamenn þess telja aö skipti launþegana veru- legu. Aö þessu leyti má telja mjög trúlegt aö Alþingi Islendinga geti ekki haldiö i viö Alþýöu- sambandiö. Aö visu er þaö ekki oft sem svo almenn samstaöa náist innan Alþýöusambandsins um tilteknar aögeröir eöa t.d. mótaögeröir gegn stjórnvöldum en þó eru þess dæmin og ekki langt siöan launþegasamtökin brutu rikisvaldiö á bak aftur vegna óvinsælla efnahags- aögeröa. Þaö er þannig mjög hæpiö aö þjóöin væri nú aö takast á viö meira en 50% verö- bólgu ef launþegasamtökin heföu ekki brotiö niöur þann árangur, sem náöst haföi meö u.þ.b. 26% veröbólgu 1978. Aö sama skapi veröur aö telja, enda margt sem hnigur aö þvl, aö Alþýöusambandiö hafi ekki meö öllu jafnaö sig á þeim hrapallegu mistökum sem aö- geröir þess áriö 1978 voru eöa náö þvi aö endurheimta traust launþeganna síöan, en vitaö er aö fjölda fólks hefur ofboöiö haröfylgi samtakanna þá. Þaö er til marks um þaö hversu margt i stjórnarkerfi okkar hefur dregist aftur úr, aö hvergi er meö skipulegum hætti gerö grein fyrir þvi hvernig launþegasamtökin og stjórn- völdin eiga aö starfa saman, og hvenær hvor aöili á aö vikja fyr- irhinum eöa hver á aö skera úr þegar I odda skerst. 1 þessum mikilvægu efnum gildir i Islenska þjóöfélaginu ennþá lögmál hafréttarins, og má hik- laust fullyröa — og án þess aö vera alltaf aö hnjóöa i launþegasamtökin — aö þjóöin hefur goldiö þessa dýru veröi oftar en einu sinni. Aö vísu sér þess staöi I löggjöf frá siöustu árum aö ákvæöi séu sett um þessi atriöi, svo sem um „stööugt samráö” vegna efna- hagsmála, og um stjórnun húsnæöismála svo aö dæmi séu nefnd. Valdastofnun út af fyrir sig? 011 störf launþegahreyfingar- innar hafa áhrif á þjóöfélags- málin I heild og eru pólitlsk I eöli slnu. Hins vegar er ekki þar meösagtaö þau séu eöa þurfi aö vera flokkspólitisk eöa ótvlræöur þáttur I þvi valda- tafli, sem á sér staö á öörum sviöum þjóöfélagsmála fyrir þá sök. 1 þjóöfélagi félagafrelsis, samningsréttar og valddreif- ingar er vissulega hægt aö hugsa sér aö launþegahreyfing- in sé valdastofnun út af fyrir sig og haldi sig utan viö önnur valdsafskipti, en standiþó fast á rétti sínum og hagsmunum umbjóöenda sinna meö tals- veröum árangri. Og ef til vill er hæfa i þvl áliti margra manna aö launþegahreyfingin hafi fremur tapaö á þvl en hagnast hversu forráöamenn hennar hafa löngum blandast inn I deil- ur og reiptog stjórnmálaflokka og tekiö afstööu til mála eftir þvl hvernig þau hafa staöiö á Alþingi eöa I rikisstjórnum fyrr og slöar. Reyndar er hægt aö færa margvísleg rök fyrir þvi aö erf- itt sé aö draga menn I dilka, hvaö snertir málefni launþega, eftir þvi hvaöa stjórnmála- skoöanir menn aöhyllast. Þaö má þannig spyrja hvort betra sé frá sjónarmiöi launþega al- mennt aö mikilvæg mál séu leyst af opinberum aöilum, af launþegafélögunum, I samning- um viö hvert fyrirtæki um sig eöa af launþega sjálfum per- sónulega. Þetta gæti átt viö um t.d. tryggingamál, og má sjá t.d. af samanburöi viö nágranna okkar aö þeir viröast fá meira I launaumslagiö og ráöstafa þvi siöan til ýmissa félagslegra efna, en Islenskir launþegar sjá ekki nema hluta raunkaupsins hins vegar þar sem fyrir fram er búiö aö ráöstafa verulegum hluta til ýmissa sjóöa og þarfa. Vestan hafs hafa menn hins vegar komiö málunum fyrir meö samningum félaganna viö vinnuveitendur eöa meö eigin frumkvæöi launþega sjálfs sem þá fær hlutfallslega „meira” I vasann viö útborgun. Rétt er aö sjálfsögöu aö hafa i huga aö þegar menn eru aö reyna aö vega og meta þessa hluti liggur þaö þegar til grund- vallar aö miöaö er viö nútima- þjóöfélag velferöar og hag- sældar. Engin leið einhlít Allt þetta er launþegunum aö sjálfsögöu fyllilega ljóst, enda skiptast þeir I stjórnmálaflokka ekki síöur en annaö fólk. En þetta sýnir I hnotskum og sem dæmi hversu ótraustur grunnur þaö er þegar einstakir stjórn- málaflokkar vilja kalla sig „verkalýösflokka” um fram aðra flokka, og sýnir reynslan aö þá er fyrst og fremst um þá flokka aö ræöa sem telja aö opinber umsjá komi launþegun- um betur en frjálsir samningar eöa eigin persónuleg ráöstöfun launþega sjálfs. Má lengi um þessi efni deila og ræöa, en aö likindum fara þeir næst skynsamlegustu lausninni sem viöurkenna aö engin ein leiö er aö öllu einhllt. A þvl þingi Alþýðusambands- ins sem nil er 1 vændum verður rætt um fjöldamörg mikilsverö mál sem snerta hvert einasta heimili I landinu á einn eöa annan hátt. Og þetta þing, umræöurnar á þvl og ákvaröan- ir þess, mun vekja mikla athygli og þaö á sjálfsagt eftir aö hafa mikil áhrif á framvindu þjóðmálanna á næstu mánuöum. Þaö skiptir þess vegna ekki litlu máli hvemig til tekst, jafnt um afgreiöslu mála sem um kosningar I trúnaöar- stööur fyrir launþegahreyfing- una. Kosningamar munu væntan- lega vekja einna mesta athygli og þær tilraunir sem geröar veröa aö llkindum til þess aö ná almennri samstööu I þeim, þannig aö ekki komi til flokks- pólitlskra átaka sem bitna munu á hagsmunum umbjóöendanna, fremur en aö auka tækifæri samtakanna til aö gæta þeirra. Ekki skortir viðfangsefnin En enda þótt þessar kosningar skipti vissulega miklu varöar þó ekki siöur um þau megin- málefni sem fyrir liggja. Og a.m.k. álengdar virðist ekki skorta brennandi viöfangsefni fyrir launþegahreyfinguna á tslandi: — Hvaö er hægt aö gera á félagslegum vettvangi 1 launþegafélögunum til þess aö auka þátttöku og áhrif félags- manna sjálfra? Er hreyfingin oröin aö lokuöu valdakerfi? Myndu hlutfallskosningar bæta ástandiö, eöa póstkosningar, til þess aö auka þáttöku fólksins? — Er almenn ánægja innan hreyfingarinnar meö önnur skipulagsmál hennar? Hvaö llöurt.d. framkvæmd ályktunar Alþýöusambandsins um gagn- gerar skipulagsbreytingar meö þaö fyrir augum aö vinnustaö- urinn veröi grunneining hreyf- ingarinnar? — Hvaö er til ráöa I málefnum llfeyrissjóöanna sem allirvita aö geta ekki staöiðviö skuldbindingar sinar I óöa- veröbólgunni? Veröur þaö lengur þolaö aö mismunurinn 1 lifeyrisréttindum manna haldi áfram aö aukast? Og i tengslum viö þetta stórmál verður spurt: Hvernig á þá aö skipuleggja húsnæöismálin ef gagngerar breytingar veröa geröar á lif- eyrismálunum? — Slöast en ekki sist hlýtur þaö aö koma til umræöu á þessu þingi Alþýöusambandsins hvernigsamtökin geta best gætt hagsmuna launþeganna, jafnt kaupmáttar sem atvinnuörygg- is, andspænis óöaveröbólgunni. Er skynsamlegt eöa réttlætan- legt aöhanga af alefli I visitölu- kerfi kaupgjalds sem reynst hefur óhæft til aö verja kaupmáttinn vegna þess aö þaö tekur ekki tillit til efnahags- legra aöstæöna, en mælir sjálfvirktupp á viö? Hvaöa skil- yröi leggur Alþýöusambandiö fram gegn þvl aö fallast á alls- herjar uppskurö á þessu veröbólgukerfi? Allir — nema „leiftursóknar- menn” — viourkenna aö Alþýöusamband Islands hlýtur aösetja einhver skilyröi I þessu efni, og þess er vænst aö þingiö tali tæpitungulaust um þaö á næstu dögum. — JS. menn og málefni

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.