Tíminn - 23.11.1980, Qupperneq 11

Tíminn - 23.11.1980, Qupperneq 11
Sunnudagur 23. növember 1980 n Ingvar Agnarsson: Geimferð mannkyns Vér erum á mikilli hraöferö i endalausum geimi, hraöferö af einu geimsvæöi á annaö, hraö- ferö sem . aldrei tekur enda. Þetta er ekkert likingamál, heldur raunveruleiki. Vér erum ibúar fremur litillar reiki- stjömu, jaröarinnar, sem snýst óaflátanlega um sjálfa sig, einn snúning á sólarhring, og hún flýgur meö oss hvern hringinn eftir annan umhverfis sólina, einn hring á hverju ári. Þessi umferöarbraut jaröar um sólu er hreint ekki svo stutt: Hún er nefnilega um þaö bil 460 milljónir km. enda veröur jörö- in aö fara meö 30 km. hraöa á sekúndu hverri til aö komast alla þessa leiö á einu ári. Þaö er þvi ekki smáræöis vegalengd, sem hver jaröarbúi svlfur um geiminn, á allri sinni ævi á geimfari sínu, jöröinni. A t.d. 70 ára ævi höfum vér þannig fariö nálægt 30 milljaröa km. vega- lengd á hringsóli voru um sól- ina. Þessi vegalengd miöast viö þaö aö sólin stæöi kyrr i geimn- um. En þaö er nú ööru nær en aö hún sé kyrrstæö. Sólin gengur nefnilega um- hverfismiöju vetrarbrautarinn- ar, þetta mikla sólnasafn, sem telur um 100 þúsund milljónir sólna. Og hraöihennar áþessari braut sinni er gifurlegur og tal- inn vera 250 km. á hverri sekúndu. Samt er hún um 200 milljónir ára aö fara eina slika hringferö, ásamt börnum sfn- um, reikistjörnunum niu og öll- um tunglum þeirra. Þetta er hin óendanlega vegferö sólarinnar og fjölskyldu hennar. Vér menn, ibúar þessarar jaröar vorrar, sem er, hvaö stæröina snertir eins og sand- korn i riki himnanna erum þannig á endalausri hraðferð i takmarkalausum geimi, hrað- ferð, sem er meiri en svo aö heili vor geti að fullu skilið hvað hér er um að ræða. En vér erum ekki einir á ferð. A heiöskírum kvöldum sjáum vér þúsundir stjarna blika á himni. Þar eru sólir á ferö um geiminn og þeim munu fylgja reikistjömur, likt og gerist I voru sólhverfi og margar þeirra munu byggöar vera viti born- um, mannlegum verum, sem rýna út i stjömugeiminn, rétt eins og vér, og reyna aö átta sig á lifinu og á vegferö sinni i endalausum geimi. Milljónir mannkynja munu vera likt á vegi stödd og vér, frumlifsmannkyn sem enn hafa ekki áttaö sig á stööu sinni i til- verunni, vita litt eða ekki um aörar iifstjörnur eöa um tilvist annarra mannkynja og hafa ekki áttaö sig á iifsambandinu milli Ibúa stjarnanna. Og til munu vera enn önnur mannkyn, miklu lengra á veg komin I allri fullkomnun, sem þekkja lifsambönd alheimsins og sem leitast viö aö miöla af liforku sinni, þeim sem verr eru á vegi stödd. En tilgangur lifsins mun vera sá, aö aukin og bætt sambönd komist á milli mannkynja hinna ýmsu stjama i endalausum geimi, og einkum, aö fullkomin sambönd takist við lengra komna ibúa stjarnanna, þar sem kærleikur, viska og máttur er á miklu hærra stigi en vér jaröarbyggjar þekkjum. Þvi einmitt slik sambönd yröu upp- haf meiri og sannari framfara á jörðu vorri en orðið hafa um all- ar aldir áður. Ingvar Agnarsson Bilapartasalan Höföatúni 10, simi 11397. Höfum notaða varahluti I flestar geröir bila, t.d. vökvastýri, vatns- kassa, fjaörir, rafgeyma, vélar, felgur o.fl. I Ch. Chevette ’68 Dodge Coronette ’68 Volga ’73 Austin Mini ’75 Morris Marina ’74 Sunbeam ’72 Peugeot 504, 404, 204, ’70, ’74 Volvo Amazon ’66 Willys jeppi ’55 Cortina ’68, ’74 Toyota Mark II ’72 Toyota Corona ’68 VW 1300 '71 Fiat 127 ’73 Dodge Dart ’72 Austin Gipsy ’66 Citroen Pallaz ’73 Citroen Ami ’72 Hilman Hunter ’71 Trabant ’70 Hornet ’71 Vauxhall Viva '72 Höfum mikið úrval af kerru- efnum. Bilapartasalan, Höfðatúni 10. Simar 11397 og 26763. Opið kl. 9-7, laugar- daga kl. 10-3. Höfum opið i hádeginu. Bilapartasalan, Höföatúni 10. Hestakerra Nýsmiðuð hesta- kerra fyrir 2 hesta til sölu. Upplýsingar i sima 37400 Og 86155. r Innilegustu þakkir flyt ég fjölskyldu minni og vinum sem glöddu mig á áttræðisaf- mæli minu hinn 13. nóv. s.l. Guðmundur Daðason frá Ósi. ______________________________________/ 1 r~\ s~-\ V : ' V J r N \ * \ r V J r :\ K j VJ n /'■> J r s_. \ \ n VJ J dh r. r \ j r ö á Loöfóöraöir kuldaskór úr leöri. Mjúkir, sterkir, hlýir og þægilegir. Austurstræti 10 sínii: 27211 Fyrir: Vinnuvélar Vörubifreiðar Dráttarvélar Viö bjóöum allt sem til þarf til að setja saman eigin keðjur ALLT AÐ 50% með því að setja þær saman sjálfur Verslun - fíáðgjöf- Viögerðarþiónusta TÆKNIMIÐSTOÐIN HF Smidjuvegi 66, 200 Kópavogi. Simi: (91 >-76600. LANDVÉLAR H.F.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.