Tíminn - 23.11.1980, Side 19
Sunnudagur 23. nóvember 1980
27
EKJ — Samtök áhugamanna
um kvikmyndir SÁK, hélt blaöa-
mannafund i Hollywood i vikunni
þar sem kynnt var saga félagsins,
stefnuskrá og væntanlegir at-
burðir. Þá voru sýndar tvær
myndir sem félagar I SAK hafa
gert og hlotið hafa viðurkenningu
þ.e. Dimmur hlátur eftir Bene-
dikt Stefánsson sem hlaut brons-
verðlaun á norrænni kvikmynda-
hátið i Helsinki i ár, og Feilpúst
eftir Asgrim Sverrisson og Hall
Hallsson sem fékk styrk úr Kvik-
myndasjóði.
SAK voru stofnuð fyrir tveimur
árum, mikið vegna þess að svipuð
áhugamannafélög á hinum
Norðurlöndunum höfðu hvatt til
þess. Þá er áhugi á kvikmynda-
gerð alltaf að aukast og þvi góður
grundvöllur fyrir stofnun slikra
samtaka .
„Við höfum farið rólega af stað,
samtökin eru ung og ekki mikil
breidd i þeim enn, sagði Marteinn
Sigurgeirsson einn af aðstand-
endum samtakanna. ,,Við stefn-
um að þvi að stofna félög úti á
landi og kynna þar kvikmyndun
sem tjáningarmiðið. 1 vetur
verðum við með kennslu i hand-
ritagerð, klippingu, kvikmyndum
og fleiru sem viðkemur kvik-
myndum, enn hefur ekki verið
ráðgert að kenna úti á lands-
byggðinni, en það gæti þó orðið i
kjölfar kynninga sem við hyggj-
um á”, sagði Marteinn.
1 febrúar á næsta ári gefst al-
menningi kostur á að sjá myndir
félaga i samtökunum, en SÁK
stefna að þvi að halda kvik-
myndahátið i febrúar á hverju ári
i framtiðinni. önnur markmið
samtakanna eru almenn fræðslu-
starfsemi, einsog námskeiðahald,
útgáfustarfsemi, ráðstefnur og
samstarf við hliðstæð erlend
samtök, þátttaka i alþjóðlegum
kvikmyndasamkeppnum.
Fyrirhuguð er samkeppni um
merki SAK.Merkinu skal skila á
blað (A4 ) merktu dulnefni, en
fylgja skal i lokuðu umslagi, rétt
nafn höfundar. Best er að merkið
verði táknrænt fyrir samtökin og
stafirnir SAK mættu gjarnan
vera með. Skilafrestur er til 5.
jan. 1981 .Tillögur skal senda til:
SAK, Box 1347, 121 Reykjavik.
Þá hefur verið gefin út áætlun
um samkomur og námskeið SAK,
sem eru: 27 nóv. veröur rabb-
fundur SAK, þar sem þvi er beint
til fólks að taka með sér ferða-
myndir, eldgosamyndir etc.,um-
ræður og veitingar verða á fund-
inum.
13. des. verður námskeið i hand-
ritagerð
17. jan. er námskeið i klippingu
mynda,
7. feb. er námskeið i hljóðvinnslu
og 21-22. febrúar verður kvik-
myndahátið og þing SAK. Ofan-
greind námskeið verða öll i Alfta-
mýrarskóla og hefjast kl. 14.
Rabbfundurinn hefst kl. 20.30, á
sama stað. Þátttöku skal tilkynna
hjá Marteini i sima 40056 eða
Sveini Andra i sima 31164, helst
ekki seinna en degi fyrir aug-
lýstan tima.
1 fréttabréfi sem SÁK gefur út,
er bent á og mælt með bókinni:
Kvikmyndin, eftir C. Brögger,
sem ku vera mjög aðgengileg öll-
um almenningi. Þar er fólk lika
óspart hvatt til að sækja fundi
samtakanna og námskeið, allir
þeir sem áhugamenn eru um
kvikmyndir.
ég beið í skot
stöðu ....,,
— bók um stöðuga lífshættu
Hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi
er nú komin út ný bók eftir enska
metsöluhöfundinn GAVIN
LYALL. Aður eru útkomnar á is-
lensku bækur eftir þennan höf-
und.
...Ég beið i skotstöðu. Þarna
kom Carlos. Hann var flóttalegur
með skammbyssu i hendinni.
„Leggðu hana frá þér, Carlos”,
sagði ég. Hann stárði á skamm-
byssuna mina og lyfti sinni i skot-
stöðu. ... A sömu stundu heyröist
Stöðugt í
lífshoettu
langdreginn hvellur. Bjarminn
frá kveikipönnunni var blindandi.
Carlos þeyttist á hálfopna
hurðina. Hann snerist þegar
hurðin lokaðist, féll með andlitið
að veggnum og seig niður eins og
slytti. Hann var dauður. Ég
leitaði I vösum hans og fann
skjaliö... Það var sönnunargagn
að verðmæti þrjár og hálf milljón
dollara.
1 þessari nýju bók sinni fer
Gavin Lyall á kostum. Hér er allt
á fullri ferð. Æsispennandi og
ógnvekjandi atburöir fylla siður
bókarinnar.
Umsagnir um Gavin Lyall og
bækur hans:
„Gavin Lyall er sannkallaöur
meistari fullkominnar rittækni og
heldur lesendum sinum i stööugri
spennu og eftirvæntingu”. Liver-
pool Daily post.
„Ein besta skemmtiskáldsaga
ársins”. Daily Herald.
„Bækur einsspennandi og þessi
eru sjaldgæfar”. — The Daily
Telegraph.
„Miskunnarlaus og gripandi...
frábær ritleikni”. — New York
Times.
„Látið mig vita þegar út kemur
skáldsaga sem er meira spenn-
andi en þessi” — P.G. Wood-
house.
Skúli Jensson þýddi bókina sem
er 203 bls. Hún er prentuð i Prent-
verki Akraness hf. og bundin i
Bókfelli hf.
Höfum opnað
matvörumarkað
öV.
iv
8 ögul»
k>\v \ , á K
,\\\
usta
j --
"■"'é.
Matvörumarkaöur
Hringbraut 121
s. 10600 28602
Tiskuverslunin Guðrún 25 ára:
Gagngerar endurbætur á húsakynnum
FRI — Ti'skuverslunin Guðrún á
25 ára afmæli um þessar mundir
og er hún þvi ein af elstu starfandi
tiskuverslunum i Reykjavfk.
1 tilefni af þessum timamótum
hefur verið ráðist i gagngerar
endurbætur á húsakynnum
verslunarinnar að Rauðarárstig 1
og hefur verslunin nú tekið al-
gjörum stakkaskiptum.
Gunnar Ingibergsson innan-
hússarkitekt, Ingólfur Pálsson
húsgagnasmiöur og Valgeir
Hannesson málarameistari sáu
um þessar endurbætur.
Meðal fatnaðar sem Guörún
hefur á boöstólum má nefna dag-
og kvöldk jóla frá Louis Feraud og
Paul la Porte, dragtir og
sportfatnaö frá þýsku fyrir-
tækjunum Assamode og Trumph
og dag- og kvöldkjóla frá breska
fyrirtækinu Tricoville.
A myndinni er Ragnheiður
Jónsdóttir verslunarstjóri Guð-
rúnar.