Tíminn - 23.11.1980, Side 25
Sunnudagur 23. nóvember 1980
33
Hafnargatan liggur um Ná-
strönd, aöal umferöar- og
verslunargötu bæjarins. Hún
varö snemma til sem troöningur
þeirra, sem lögöu leiö sina til
verslunar I Keflavfk, og komu
úr Njarövik og víöar aö.
Veruleg byggö myndaöist
fyrst viö slóöann þegar verslun-
um fór fjölgandi eftir aö ein-
okunarböndin brustu á árunum
1789-1800. A Náströnd reisti Pet-
er Christian Knudtzon,
verslunarhús og einnig sjóbúöir.
Þar réri m.a. Jón Árnason þjóö-
sagnasafnari. Segir frá þvi i rit-
safninu Úr fórum Jóns Arnason-
ar.
Um 1886 settist fyrsti læknir-
inn i Keflavik aö á Náströnd.
Þaö var Þóröur Thoroddsen,
sem gegndi embætti til 1904.
Keypti hann þá timburhús, sem
félagsverslun Eggerts Gunn-
arssonar haföi látiö reisa
skömmu eftir 1880. Eru þaö
fyrstu innlendu verslunarsam-
tök sem vitaöer aö starfaö hafi I
Keflavik.
A Náströnd standa enn
verslunarhús, en nú eru þau
kennd viö aöra en danska höndl-
ara. Þar er Arni I Vikurbæ, Þór-
ey i Þorsteinsbúö, Hákon I
Stapafelli. Skammt frá stjórnar
Gunnar Sveinsson kaupfélaginu
og veitir þeim haröa sam-
keppni.
Ekki sér lengur á sjávarbakk-
ann á Náströnd eftir aö byggö
hófst meöfram sjónum út i fjör-
una. Þar voru áöur lágir bakk-
ar, sem sjórinn braut sifellt af,
Moldarhraukar geröu Ibúum
bæjarins lifiö leitt, er sjórinn
braut bakkann, og vindurinn
feykti rykinu yfir byggöina.
Undir var grýtt fjaran, og sker
fram viö.
Eina skýringu hef ég heyrt á
nafninu Náströnd. Aö þaö hafi
upphaflega veriö Nærströnd. En
mér finnst þaö þó ekki liklegt,
þvi fyrra nafniö er oröiö æva-
gamalt í málinu. Meöal annars
kemur þaö fyrir i Völuspá
Eddukvæöa. Skrifaö á 13. öld.
1 Völuspá er þessi visa nr. 38
(útg. Guöna Jónssonar 1954. bls.
13):
„Sal sá hon standa
sólu fjarri
Náströndu á,
norör horfa dyrr,
falla eitrdropar
inn um ljóra,
sá er undinn salr,
orma hryggjum”.
(Leturbreyting S.M.).
Hér er nornin aö útlista fyrir
Óöni valfööur visku sina um á-
standiö f goöheimum, sem senn
veröa ragnarökum aö bráö. Hún
sér hibýli standa fjarri sólu á
dauöaströndu, og snúa dyr i
noröur. En kuldi mikill næöir
innumglugga, og salurinnerúr
ormshryggjum.
Ritaöar heimildir geta ekki
um Náströnd I Keflavik fyrr en
á 19. öld. (Til dæmis handrit
Suöurnesjaannáls i Lbs. 2671,
4to og æviágrip Jóns Arnasonar
i útgáfu á bréfum hans, sem
vitnaövariáöan).Ernafniö i
sömu mynd og þaö er I i völu-
spá. Trúlega hefur örnefniö þvi
ekki breyst, þar sem þaö er jafn
gamalt sem raun ber vitni.
Nærströnd lætur aö sönnu þægi-
legra i eyrum, en Náströnd. Má
vera aö þaöan sé runnin tilraun
til skýringar á nafninu.
En hvernig er nafniö I Kefla-
vik til komiö? Um þaö veröa
ekki færö örugg rök. En engu
likara er, en þama hafi gerst
einhver voöaatburöur. Ef til vill
sjóslys. Keflavikur
höfnvaroft viösjál á þessumár-
um en skipalegan var á miöri
vikinni. 1 noröaustan, austan og
suöaustanstormum rak skip oft
á land. Gat þaö gerst á svo
skömmum tima aö lítilli björg
varö viö komiö.
Nafngiftin getur einnig veriö
dregin af gróöursnauöu landi.
Snemma á 19. öld hefur þó veriö
ræktaöur upp túnskiki á Ná-
strönd, sem siöar var færöur út.
Annars er lítiö vitaö um ástand
jarövegs á þessum slóöum fyrir
þann tima.
Skúli Magnússon.
Loftmynd af Keflavík og nánasta umhverfi, tekin 1974.
TVENN ORNEFNI
1 KEFLAVÍK
örnefni eru merkilegar heim-
iidír um sögu iands og þjóöar.
Oft hefur reynst torvelt aö skýra
uppruna þeirra og hafa menn
lciöst út i furðuiegar getsakir
vegna þess. Stundum er þó hægt
aö sýna glögg rök fyrir upphafi
og þróun örnefna, sem standast.
Hér á eftir langar mig aö ræða
um tvö örnefni i Keflavik, segja
frá upphafi þeirra og ræöa atriöi
tengd þeim.
Mörg örnefni úr Keflavik hafa
komistá prent, t.d. iFaxa 1966, i
samantekt Ragnars Guöleifs-
sonar. Þar eru þó alls ekki öll
keflvisk örnefni, en trúlega all-
flest þeirra. En eftir er aö fjalla
um þau hvert og eitt, ræða sögu
þeirra og upphaf eftir þvi sem
hægt er. Hér verður aöeins gerö
grein fyrir tyeimur af þeim ör-
nefnum sem éru I skrá Ragnars,
Myllubakka og Náströnd.
Myllubakki
Myllubakki er meðfram sjón-
um viö Hafnargötu. Þar er nú
lögreglustööin og bæjarskrif-
stofurnár. Þar eru lágir klettar
og útfiri töluvert.
Haustiö 1834 kom til Reykja-
vikur enskúr aöalsmaöur aö
nafni Arthur Dillon. Dvaldi
hann tæpt ár 1 bænum og kom
þar mjög viö sögu. Segir nánar
af þvi I bókum Arna Óla og Sög-
u Reykjavikur eftir Klemenz
Jónsson. Dillon skildi eftir sig
hús i Reykjavik sem viö hann
var kenntog stendur nú 1 Arbæj-
arsafni. Haföi hann eignast
barn með Sire Ottesen og var
húsið byggt handa þeim.
Sire Ottesen rak gildaskála i
Reykjavik um þaö leyti er
Dillon dvaldi þar. Hún var þvi
mjög áberandi I fábreyttu sam-
kvæmislifi þeirra ára. Hún
dvaldi á unglingsárum i Kefla-
vik sem stofustúlka. Siðar gift-
ist hún P.L. Levinsen, sem um
tima var faktor fyrir Hans
Pétur Duus kaupmann I Kefla-
vik. Siðar bjó Levinsen i
Reykjavik.
Er Levinsen bjó I Keflavik var
Hans Duus I fæöi hjá honum, en
hann var þá enn ókvæntur
Kristjönu dóttur Sveinbjamar
Ólafssonar kaupmanns. (Sjá
handrit Suöurnesjaannáls i Lbs.
2671, 4to, undir fyrirsögninni:
Bæjarannáll Suöurnesja).
Ariö 1840 gaf Dillon út feröa-
sögu sina frá Islandi, og var hún
i tveimur bindum. Aö auki er
þar fjallað um Lapplandsför
hans. Á frummálinu heitir verk-
iö: ,,A Winter in Iceland and
Lapland”.
I Lesbók Morgunblaösins
sunnudagana 23. og 30. ágúst
1942, eru birtir kaflar úr ferða-
bók Dillons, undir fyrirsögn-
inni: „Cr Reykjavikurlifinu
1834-1835”. Segir höfundur þar
frá bæjarbragnum eins og hann
kom honum fyrir sjónir. A blaö-
siöu 266 i Lesbók 23. ág., segir
Dillon: „Vindmyllur erufáar.ef
til vill eru vindmyllurnar í
Keflavik og Reykjavik best-
ar....”. (Leturbreyting SM).
Þetta er eina heimildin sem
enn er kunnug um mylluna sem
stóö á Myllubakka i Keflavik.
En ljóst er af köflunum i Les-
bók, aö Dillon hefur komiö til
Keflavikur, þvi hann segist hafa
hitt þar sr. Geir Bachmann,
prest á Staö i Grindavik.
Kunnugt er aö P.C. Knudtzon
kaupmaður átti myllur I
Reykjavik, og stóö önnur þeirra
fram yfir miöja 19. öld viö
Bankastræti. Var hún seinast
notuötil Ibúöar. (Sjá: Ami óla:
Skuggsjá Reykjavikur, bls. 51-
63).
Arin 1834-35 verslaöi Knudt-
zon einnig I Keflavik, og er ekki
ósennilegt, að hann hafi rekiö
mylluna þar, þó ekki liggi fyrir
þvi fullgildar heimildir.
Varla hefur myllan I Keflavík
haft mikiö aö starfa, en hug-
mynd eigandans hefur senni-
lega veriösú, aö mala korn fyrir
bændur og búaliö I nágrenninu.
Korn var þá flutt inn ómalaö, en
handkvarnir tiðkuöust mjög. 1
Reykjavik varö verkefnaskort-
ur fyrir mylluna, og þvi kom
Knudtzon upp bakarii i tengsl-
um viö hana. En I Keflavik var
ekkert slfkt hús, og ekki fyrr en
1892, er Arnbjörn Ólafsson hóf
rekstur brauögeröar.
Tæplega hefur Keflavikur-
myllanstarfaðlengi, þvi hennar
er hvergi getiö I rituðum heim-
ildum, sem þekktar eru, utan
feröabók Dillons. Ef til vill hef-
ur myllan malaö korn fyrir þær
þrjár verslanir sem þá voru i
Keflavik. En trúlegt er, aö myll-
an hafi á endanum veriö lögð
niöur vegna verkefnaskorts, og
má I þvi' sambandi benda á, aö
Reykjavikurmyllan heföi fariö
sömu leiö ef bakariiö heföi ekki
verið reist.
Um starfsliö Keflavikurmyll-
unnar er ekkert vitaö. 1 Reykja-
vik annaöist danskur malari
mylluna.
En athyglisvert er, aö Dillon
talar um mylluna i Keflavlk,
sem eina hina bestu sem hér
var. Og tæplega hefur hún veriö
lakari en Reykjavikurmyllan,
sem var allstór og haföi mikla
spaöa, eins og myllur erlendis.
Dillon staöfestir meö frásögn
sinni, aö örnefniö Myllubakki i
Keflavik á viö rök aö styöjast,
aö arfsögn gamalla Keflvíkinga
er rétt. Ornefniö viröist varla
komiö fram fyrr en á fjóröa tug
19aldar ef miöaö er viö aö myll-
an hafi verið reist um 1830. En
um bygginguna eru engar
heimildir þekktar. Myllan stóö
hins vegar á svæði þvi sem
Knudtzonfeögarráku versluná,
frá þvl skömmu fyrir 1800 til
1896
Náströnd
Hér er kuldalegt nafn, sem
nánast þýöir strönd dauöans.
Náströnd er I framhaldi af
Myllubakkanum, meöfram
Keflavlk til suöurs.
1 Nástrandarfjöru var og er
grýtt mjög og skerjótt meö
landi. Þar var þó bátauppsátur
allt fram á 3. tug þessarar ald-
ar, Nástrandarvör. Þar höföu
báta sina Ibúar á Melnum og á
Hæöinni. Meðal annars þeir
Arinbjörn Ólafsson, bakari og
kaupmaöur, áöur vitavöröur á
Reykjanesi, og Einar Einars-
son, koparsmiöur. En hann
stundaöi mikiö málmsmíöar.
Arinbjöm átti áttæring I byrjun
aldarinnar, en Einar sexmanna
far.