Tíminn - 17.12.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.12.1980, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 17. des. 1980, 282. tbl. 64. árgangur Eflum Tímann vSíðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins um Helguvíkurmáliö: ÞBRFDM EKKI Á AUKNU GEYMSLURÝMI AD HALDA” 99 AB — „Fram hefur kom- ið að það er um 200 þús. rúmmetra geymslurými sem ætlunin er að byggt verði í Heiguvík. Það þýðir um fjórföldun frá núverandi geymslurými. Maður hlýtur að spyrja: Hvers vegna? Það er ekki þörf fyrir svona mikið geymarými fyrir þá starfsemi sem nú er á Kef lavíkurf lugvelli"sagði Vilhjálmur Jónsson, for- stjóri Olíufélagsins hf. í samtali við Timann í gær, þegar rætt var við hann um svokallað Helgu- víkurmál. Hann sagði ennfremur: „Þvi hlýtur þetta aukna geymslu- rými að vera hugsað sem ein- hvers konar varabirgðastöð fyrir Norður-Atlantshafið. NATO og Bandarikjastjórn byggðu á sinum tima birgða- geymslu i Hvalfirði. Það hélt ég að væri varabirgöastöð fyrir þetta svæði. Þvi vaknar sú spurning: A að byggja þarna aðra varabirgðastöð? Eiris er mér til efs að þarna sé um rétta staðsetningu að ræða. Slik stöð yrði að minu mati of nálægt þéttbýlinu ef hún risi i Helgu- vik”. Vilhjálmur Jónsson, for- stjóri Oliufélagsins, ræðir um fleiri þætti Helguvík- urmálsins í viðtali sem birtist við hann á bls. 2 í blaðinu í dag. Fyrsta skóflustunga að 3. áfanga Verkamannabústaða í Reykjavík: 176 íbúðir í 17 — „Félagslegar íbúöir styrkja almenning í baráttunni til betri iífskjara og í baráttunni gegn verðbólgunni” Kás — í gær tók Svavar Gestsson, félagsmála- ráðherra, fyrstu skóflu- stunguna að þriðja byggingaráfanga Verkamannabústaða i Reykjavik á Eiðis- granda og verða það fyrstu verkamannabú- staðirnir, sem byggðir verða samkv. nýsettum lögum um félagslegar byggingar. Þarna verða Framhald á bls. 19. Svavar Gestsson, tekur fyrstu skóflustunguna að þriðja byggingaráfanga Verkamannabústaða i Reykjavik á Eiðiseranda. Tlmamynd: Róbert. Fjárfestingar og lánsfjáráætlun lögð fram: Fjárfesting minnkar 6% í landinu 1981 JSG — í skýrslu ,,um fjárfesting- ar og lánsfjáráætlun 1981 fyrir opinberar framkvæmdir, erlenda lánsfjáröflun og fjárfestingu” sem lögð var fram á Alþingi I gær, kemur m.a. fram, að heild- arútgjöid til fjárfestinga á næsta ári eru talin munu dragast saman um 6%, ef miðað er við þjóðar- framleiðslu ársins. Áætlaðer, að i ár muni fjárfestingin nema 27,7% þjóðarframieiðsiunnar, en muni á árinu 1981 nema 26% þjóðarfram- leiðsiunnar. 1 þessum tölum v.eldur mestu, að fjárfestingar atvinnuveganna Framhald á bls. 19. Súrál hækkar í hafi að meðaltali um 54.1% — segir Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra Sjá bls. 3 „Þetta er greinilega pólitísk árás á ÍSAL” — segir Ragnar Halldðrsson, forstjóri ÍSAL Litla-Hraun: Ný einangrunar- álma tekin í notkun FRI — Á næstunni verður tekin I notkun á vinnuhælinu á Litla Ilrauni ný einangrunaráima en hún hefur verið i smiðum und- anfarin 2 ár. Að sögn Helga Gunnarssonar forstöðumanns á Litla Hrauni þá er pláss fyrir 10 menn i' nýju álmunni og hún mun standast allar þær kröfur sem gerðar eru til slikrar álmu. — Við höfum haft mjög slæma aðstöðu til að geyma menn sem gerðust brotlegir á okkar reglum, sagði Helgi. — Húsnæðið sem til staðar var, var orðið 60 ára gamalt en við urðum að notast við það af illri nauðsyn þar sem við höfðum ekkertannað. Með þessari álmu er þetta vandamál úr sögunni, og aðstaöan sem nú er að kom- ast Igagnið er ein sú fullkomn asta sem ég hef séð á Norður- löndunum. Aðspurður um hvort mikil þörf væri fyrir þessa álmu á Litla Hrauni, sagði Helgi, aö þvi miður væri það svo. Það kæmu alltaf upp vandamál annað slagið i sambandi viö hegðun fanganna sem ekki yrðu leyst á annan hátt. Helgi reiknaði með að um þessi jól mundu um 40 fangar dvelja á Litla Hrauni. Varnarliðið: Takmörkunum á mannaráðningum aflétt FRI —Frá og með 4. des. sl. var takmörkunum þeim, sem gilt hafa frá 1. mars sl. á manna- ráöningum varnarliðsins á Keflavikurflugvelli afiétt. Takmarkanir þessar voru lið- ur i sparnaðarráðstöfunum Bandarikiastiórnar i ODÍnber- um rekstri og var aðeins heimilt að ráða einn starfsmann fyrir hverja tvo sem létu af störfum. Ólafur Jóhannesson utan- rikisráðherra ræddi þetta mál við bandarisk stjórnvöld fyrir nokkru, þar eð ráðstöfun þessi hefur valdið miklu álagi hjá is- lensku starfsliði varnarliösins, Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.