Tíminn - 17.12.1980, Page 6

Tíminn - 17.12.1980, Page 6
6 Miðvikudagur 17. desember 1980 (Jtgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gfslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. — Kitstjórar: Þórar-, inn Þórarinsson, Jón llclgason, Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfuli- trúi: Oddur V. ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson (Alþing) Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (Iþróttir),. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð I lausasölu: kr. 350. Askriftargjald á mánuði: kr. 7.000. — Prentun: Blaðaprent h.f. Hvað veldur? Það er til alltof mikils mælst af dómsmálaráð- herra að hann taki að sér að afla allra upplýsinga um það hvað erlend stjórnarvöld kunna að taka sér fyrir hendur i meðferð einstakra manna, sem hingað rekur að landi en ekki hljóta landvist hér. Og það er beinlinis fráleitt, að islensk stjórnvöld geti ekki tekið ákvarðanir vegna þess að þau þurfi lang- timum saman að ,,biða eftir” vitneskju um ákvarðanir erlendis i málum, er snerta erlenda rikisborgara sem hingað flækjast af einhverjum ástæðum, en eru ekki undir islensk iög seldir að öðru leyti en þvi er snertir þá stund sem þeir dvelj ast hér i landinu. Enginn lætur sér væntanlega detta þá firru i hug að Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra fari að löggilda éinhvers konar vegabréf alheimsborgara, enda munu yfirvöld hvergi taka minnsta mark á sliku. Á meðan landamæri og þegnréttur i einstök- um þjóðrikjum hafa ekki verið máð út verður við það að búa að landslög gildi um þessi efni og yfir- völd hvers lands framfylgi lögum þess, m.a. að þvi er lýtur að dvalarleyfum útlendinga i landinu eða brottvisun þeirra þaðan. Það er skýlaus réttur hvers fullvalda rikis að kveða sjálft á um það hver landvist hlýtur um leið og sérhver eiginlegur þegn á rétt á ævidvöl i land- inu og tækifæri til að bjargast þar. Og sennilega eru þeir næsta fáir sem vilja halda þvi fram, að ísland eigi skilyrðislaust að verða dvalarstaður hvers út- lendings sem vera skal og hvernig svo sem á ferð- um hans stendur. Það er annað mál, — allt annað mál —, að menn telji að f sland eigi að geta verið út- lendum mönnum griðland um stund meðan þeir hugsa ráð sitt og ná andanum á flótta. Slikt hefur mönnum einatt verið veitt hérlendis. Ogþviferað sjálfsögðu viðs fjarri, að einungis sé um að kenna landlægu útlendingahatri, almennum kynþáttafordómum og rótgróinni þjóðernistilfinn- ingu íslendinga, að almenningur kærir sig ekki um að hér verði alíar gáttir opnaðar, langt um fram það sem nokkurs staðar tiðkast. Á sl. sumri rak út hingað rússneskan sjómann og hlaut hann hér griðland um nokkra hrið. Nú er hann farinn af landi brott, eins og honum bar samkvæmt ákvörðun islenskra stjórnvalda. Nokkru siðar, að hausti, bar hingað út franskan hrakningsmann og einnig hann hlaut hér venjulegar móttökur og grið- land meðan hann varpaði öndinni og hugsaði ráð sitt með aðstoð vina sinna, sumra að sögn ekki ráð- hollra að visu. Nú er þessi umþóttunartimi liðinn og ákvörðun islenskra stjórnvalda hefur verið tekin. Al- menningur spyr hvað þvi valdi að sú ákvörðun kemur ekki til framkvæmda á tilsettum tima eða er breytt. Það ér ekki hægt að láta vesalings manninn hanga þannig i lausu lofti öllu lengur. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Menningarbylting átti að útrýma kapitalisma Viötal Magnúsar Kjartanssonar við Líu Sjaosi RÉTTARHÖLDIN i Peking yfir Jiang Qing og félögum hennar, rekja aö mestu leyti rætur til hinnar svokölluöu menningar-byltingar, sem leiö- togar Kommúnistaflokksins efndu til á árunum 1966-1969, en hún er mjög fordæmd af núver- andi stjórnendum i Kina. Vegna þessa tilefnis er ekki ófróölegt aö rifja upp hver átti að vera tilgangur menningar- byltingarinnar. Hún var i undir- búningi 1964, þegar Magnús Kjartansson, þáverandi ritstjóri Þjóðviljans, heimsótti Kina. I bók þeirri, Bak viö bambus- tjaldiö, sem Magnús reit eftir heimkomu sina, segir frá við- tali, sem hann átti við Liu Sja- ósi, þáverandi forseta Kina og annan valdamesta mann lands- ins. 1 viðtali hans og Magnúsar er mjög vikið aö hinni fyrirhug- uðu menningarbyltingu, og fer hér á eftir frásögn Magnúsar af þvi: ,,Ég sagði viö Liu, að ég hefði veitt þvi athygli að mikiö væri nú rætt i landinu um hættuna á þvi að upp risi ný forréttinda- stétt, og væri þar einkum átt við menntamenn og hvers kyns stjórnendur fyrirtækja, jafn- framt væri þvi haldið fram, að i öðrum sósiallstiskum löndum hefðu slikar forréttindastéttir of mikil völd. — Hvernig hafið þið hugsað ykkur að halda á málum til að koma i veg fyrir að hér verði sú þróun sem þiö eruð að vara við? — Þetta er mjög mikilvægt vandamál. Heimsvaldasinnar vita að hér i Kina verður ekki þjóðfélagslegur afturkippur meðan við gömlu byltingar- mennirnir erum uppistandandi, ekki heldur I tið næstu kynslóð- ar, en þeir gera sér vonir um þriðju og fjórðu kynslóðina, það fólk sem þekkir ekki af eigin raun þá baráttu, sem við höfum orðið að heyja og ástandið eins og það var áður i Kina. Við vit- um að það tekur miklu lengri tima að breyta hugarfari manna en efnahagskerfinu, þótt við séum búnir að gera efna- hagslega byltingu i Kina halda menn áfram að reyna að tryggja sér forréttindi, auðgast á vinnu annarra, svikja hinar sósialistisku jafnréttishugsjón- ir. Við höfum oröið að berjast og berjumst enn við bændur, sem þannig hegða sér, við forstjóra fyrirtækja og embættismenn, sem misnota aðstöðu sina. Þess eru mörg dæmi að menn hafi stolið fé, tekið að braska og reynt aö fela athafnir sinar með mútum, þar sem slikt gerist er á vissan hátt búið aö endurvekja kapitalisma, þessir menn hafa verið að arðræna félaga sina og rikisheildina. Við tökum slik fyrirbæri föstum tökum, en framtiðarverkefnið er aö upp- ræta þetta hugarfar. — Og hvernig á að gera það? — Við teljum aö ein mikilvæg- asta aðferðin sé nýskipan á öllu skólakerfinu. Nú sem stendur eru börn og unglingar aðeins i skóla og vinna ekki jafnhliða náminu, nema unglingar að óverulegu leyti. Við hugsum okkur það fyrirkomulag, aö sameina nám og likamlega vinnu, þannig aö menn séu i skóla sem svarar hálfu ári og likamlegri vinnu sem svarar hálfu. Ýmsan hátt er hægt að hafa á skiptingunni, menn geta unniðannanhvern dag eöa aöra- hverja viku eða hálft árið sam- fleytt eftir þvi sem hentast þyk- ir. Og við hugsum okkur að þetta hefjist að einhverju leyti i barnaskólunum. Marx sagði á sinum tima, að niu ára barn hefði gott af þvi að vinna tvo tima á dag og þrettán ára barn til dæmis fjóra, og við teljum að þessi kenning sé rétt. Með þessu móti ætlum við að gera það efnahagslega kleift að öll þjóðin eigi kost á framhaldsskóla- göngu, I miðskólum, tækniskól- um, menntaskólum og allt upp i háskóla. Þegar nemendur vinna fyrir sér með náminu verður slikt allsherjar skólakerfi kleift fyrir rikið og fjölskyldurnar, en eins og nú standa sakir er menntakerfið ákaflega dýrt fyr- ir rikið og erfitt fyrir f jölskyldu með fjögur eða fimm börn að tryggja öllum skólamenntun. — Hvenær er ætlunin að taka . þetta nýja skólakerfi upp? — Það er þegar farið að gera tilraunir með það. t einni verk- smiðju hefur slikur tæknihá- skóli nú starfað i fimm eða sex ár. Þar hafa útskrifazt nokkur þúsund nemenda sem hafa unn- ið likamlega vinnu allan tim- ann, og að námi loknu halda þeir ýmist áfram sem verka- menn eða starfa sem stjórnend- ur, tæknifræðingar eða verk- fræðingar. Ég álit að þarna sé að spretta upp ný manngerð, ólik okkur, nýir sósialistiskir einstaklingar bæði frábrugðnir menntamönnum og verka- mönnum eins og þeir eru i dag. Tilraunum af þessu tagi munum við halda áfram i.nokkur ár, og þær eru ekki erfiðar i fram- kvæmd, aðeins þarf að starf- rækja verksmiðju við hlið skól- anna, og i sveitaþorpunum verða skólarnir reknir i sam- bandi við búskapinn. Eftir sex til átta ár hefjum við siðan skipulegar framkvæmdir, fækkum skólum með gamla lag- inu og fjölgum þeim nýju þar til þeir verða einir eftir I landinu. Hugmynd okkar er siðan sú, að eftir 50 til 100 ár verði um 80% af verkamönnum okkar og meira en helmingur bænda útskrifaðir úr slikum framhaldsskólum, sérskólum, tækniskólum, menntaskólum og háskólum. Ef við komum þessu i framkvæmd á 50-100 árum hafa ibúar Kina tekið algerum stakkaskiptum og verða i senn andlegir og likamlegir starfsmenn, geta hvort heldur er verið verka- menn eða verksmiðjustjórar, bændur eða bændaleiðtogar, flokksforustumenn, borgar- stjórar eða ráðherrar. Með þessu móti verður brúað bilið milli andlegrar og likamlegrar vinnu. — Hugsið þið ykkur þá að þessi sameining andlegrar og likamlegrar vinnu haldi áfram eftir skólanámið? — Já, vissulega. Þeir sem veljast til forustustarfa eiga engu að siöur að vinna likam- lega vinnu sem svarar hálfu ár- inu. Þá verður enginn maður einvörðungu forseti rikisins, ráðherra, blaðamaður, borgar- stjóri, kennari, listamaður — heldur og að hálfu likamlegur erfiðisvinnumaður. Þá getur enginn sem valinn er til forustu sett sig á háan hest i skjóli sér- menntunar sinnar eða for- réttindastöðu, þvi undirmenn hans langflestir hafa hliðstæða menntun og hann og geta tekið við af honum umsvifalaust. Enda mun þetta menntakerfi breyta þannig hugarfari manna að forréttindasjónarmiðið hverfur.” Viðtalinu lauk Liu með þess- um orðum: „Kapitalisk viðhorf geta Iifað i hugum manna margar kyn- slóðir eftir að þjóðfélaginu hefur verið breytt, ef jarðvegur er lát- inn þróast fyrir þau i forréttind- um. En ef við gerum okkar ráð- stafanir i uppeldismálum og menntamálum nú, verður hér komið raunverulegt sósialist- iskt jafnréttisþjóðfélag eftir 50- 100 ár, og þvi fær enginn mann- legur máttur haggað. Það er sá arfur sem við gömlu byltingar- mennirnir viljum skilja eftir okkur þegar við föllum frá, til þess höfum við barizt.” Það kemur glöggt fram i þessum svörum LIu Sjaosi, hver átti að vera tilgangur menn- ingarby ltingarinnar. Hún reyndist hins vegar hugsjón, sem ekki var hægt að fram- kvæma. Ágreiningur reis lika um framkvæmdina og leiddi hann m.a. tilfalls Liu. Eftir þrjú ár var menningarbyltingunni hætt eftir að hafa kostað þjóðina miklar hörmungar. Margt. bendir til, að i Kina séu kapital- isk viðhorf að eflast á ný. Magnús Kjartansson að ræða við Liu Sjaosi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.