Tíminn - 17.12.1980, Page 11

Tíminn - 17.12.1980, Page 11
Miðvikudagur 17. desember 1980 n Með á nótunum Iljálmtýr E. Hjálmtýsson, tenor Út er komin breiðskifa með söng Hjálmtýs E. Hjálmtýs- sonar. Gisli Magnússon leikur með á pianó, en Margrét Matthiasdóttir syngur með i þremur tvisöngslögum. Á ann- arri hlið plötunnar eru 6 islenzk sönglög og eitt sænskt en á hinni 7 óperuariur. „Hið islenzka Útgáfufjelag” gaf út með aðstoð Fálkans. Það er skemmst frá þvi að segja, að þetta er frábærlega falleg plata. Hjálmtýr hefur fágæta rödd, sem minnir vist á rödd Stefáns Islandi þá hann var ungur, björt og tær. Mér finnst ég sjaldan hafa heyrt hin islenzku lög fegur sungin. Lærðir menn i söng viður- kenna, að Hjálmtýr syngi fagurlega — Jón Ásgeirsson sagði einu sinni i Morgunblað- inu, að hann syngi „óþægilega fallega”, hvað sem það þýðir — en telja jafnframt, að meiri skólun hefði gert honum gott. Þetta kann að vera rétt, Hjálm- týr hefur notið tilsagnar Sigurðar Birkis, Sigurðar Demetz Franssonar og Maríu Markan — en þó verð ég að viðurkenna, að mér finnst radd- beiting Hjálmtýs stórum taka fram raddbeitingu ýmissa okkar lærðustu tenórsöngvara. Ég hef nefnilega heyrt þvi haldið fram, að vond kennsla sé verri en engin. Margrét Matthiasdóttir, kona Hjálmtýs, hefur útsett tvisöngs- lögin fyrir kvenrödd, og syngur þá rödd jafnframt. Hún læröi hjá Sigurði Birkis og Snæbjörgu Snæbjarnardóttur. Það mætti e.t.v. finna það að tvisöngnum, einkum Vögguljóði Sigurðar Þórðarsonar, að hjáröddin væri of áberandi, en svo er i rauninni ekki: raddirnar eiga dæmalaust vel saman, þannig að tvisöngs- lögin eru siður hrifandi en hin. Og svo spilar Gisli Magnússon með, af alkunnu listfengi. Nú tala allir um Pavarotti, sem hann þekkja, og vist er hann sagður mestur. Sjálfur heyrði ég hann ekki, og dæmandi frá þvi, sem ég hefi heyrt sjálfur hér á landi, þá tel ég að varla geti fallegri tenór- söng en á þessari plötu. 14.12 Sigurður Steinþórsson Ný ljóöabók eftir Sigurð Pálsson: Ljóð vega menn Hjá MALI OG MENNINGU er komin út ný ljóðabók eftir Sigurð Pálsson og nefnist hún Ljóð vega men n. Þetta er önnur ljóðabók Sigurð- ar, en fyrsta bók hans Ljóð vega saltkom út fyrir fimm árum, og vakti þá mikla eftirtekt. Ljóð vega menn skiptist I nokkra hluta: Á hringvegi ljóðs- ins I-XII. Enn skin sólin þrjósk, Undir suðvesturhimni, Ljóð úr Hlaupvidd Sex, Nocturnes handa sólkerfinu, Ungæði, Það eitt til sex og Gamla Hofsgatan eða Sú gamla frá Hofi (rue Vielle-du- Temple) I.-Vii. Alls eru um fimmtíu ljóð i bók- inni, en hún er 100 bls. að stærð, prentuð i Prentsmiðjunni Hólum, en bundin i Bókfelli hf. og er hún gefin út bæði i kilju og innbundin. Kápuna hannaði Hilmar Þ. Helgason. Sigurður Pálsson Ljóóvegamenn Máiogmenréig Greifinn og enska frænkan „Hverjum hefði dottið það i hug, að ég, korung kennslukona i friðsælu héraði á Englandi, ætti eftir að lenda í hringiðufrönsku stjórnarbyltingarinnar og sleppa þaðan naumlega...? Eftir dauða föður míns stofnaði móðir min einkaskóla fyrir heldri manna dætur... og það nægði okk- ur mæðgunum til framfæris, meðan hennar naut við... Skólinn stóð á lendum aðalsetursins Derringham og dæturnar frá Derringham Manor sóttu skólann okkar og einnig dætur ýmissa fyrirmanna, sem dvöldu þar lengri eða skemmri tima. Þegar ég var 18 ára kynntist ég einkasyninum þar, Joel Derring- ham og við urðum mjög góðir vin- ir ... og móðir mina tók aö dreyma stóra framtiðardrauma fyrir mig...” Nyjar bækur Fína hverfið Bókaútgáfan Ljóðhús hefur gefið út bókina Fina hverfiðeftir Þorstein Antonsson. 1 fréttatil- kynningu um bókina segir: „I þessari frásögn Þorsteins Antonssonar er lýst uppvaxtarár- um manns sem lifir bernskuárin i einu af hinum „fi'nu” hverfum Reykjavikur á áratugnum eftir striðið. Hann man fyrst eftir sér um það leyti sem sjálf stri'ðs- gróðaaldan er að fjara út, en alls- staðar verður vart, og ekki sist i fyrsta þriðjungi bókarinnar þeirrar siðabreytingar, þess „nútimalega” hugsunarháttar sem atburðarás striðsáranna færði oss tslendingum. I siðari hlutum bókarinnar er sagt frá félagsskap nokkurra ungra manna úr „fina hverfinu” og af jöðrum þess — all-fjö lbreytilegri reynslu þeirra innanlands og ut- an, og ólikum leiðum þeirra til fullorðinsaldurs. Frásagnarefni höfundar er sérstætt i islenskum bókmenntum þessar ára, frá- sagnaraðferð hans i þessari bók Ný Ijóðabók: mjög athyglisverð, i sumum köfl- um hennar að minnsta kosti nær hann góðum árangri i þeirri erfiðu list að skrifa umsvifa- lausan, þéttan og hraðan stíl.” Gálgafrestur eftir Aðalstein Ásberg Gálgafrestur heitir ný ljóðabók eftir Aðalstein Asberg Sigurðs- son. Eins og heitið ber með sér, er bókin bölsýn, enda túlkar hún hina siðustu og verstu tima, þar sem menn mæta lokuðum hliðum. I ávarpsorðum spyr skáldið: — Er lif okkar þrotlaust þrælafár? Ogi'umsögná bókarspjaldi segir: „Við lifum i ótta við tortimingu. Er maðurinn i óðaönn að leggja snöruna um eigin háls? Hvar endar þessi leikur? Þetta er þriðja ljóðabók Aðal- steins Ásbergs. Hann byrjaði kornungur að yrkja og náði strax samstæðum ljóðrænum tón i fyrstu ljóðabókum sinum, Ósánar lendur og Förunótt, sem voru þrungnar af spurn ungs manns um tilveruna. í nýju ljóðabókinni hefur skáld- ið tekið miklum þroska. Hún skiptist i þrjá kafla, sem mynda stigandi heild. Á bókarkápu segir, að still Aðalsteins Ásbergs verði fágaðri og undiraldan máttugri. Aðalsteinn Asberg Bókin er myndskreytt af ungri listakonu, Onnu Gunnlaugsdótt- ur. Gálgafrestur er 80 bls. Útgef- andi er Fjölva-útgáfan. Setningu og prentun annaðist Prentstofan G. Benediktssonar. Ný bók eftir Astrid Lindgren: Ég vil líka fara í skóla Hjá MALI OG MENNINGU er komin út bók handa yngstu lesendunum eftir hinn kunna barnabókahöfund Astrid Lind- gren. Þessi bók heitir Ég vil lika fara i sköla og segir frá Lenu sem er fimm ára og fær að fara með bróður sinum i skólann einn dag. Fallegar litmyndir eru á hverri siðu i bókinni og þær hefur Ilon Wikland gert, en hann ’er kunnur fyrir myndskreytingar sinar á bókum, m.a. eftir Astrid Lind- gren. Bókin Vist kann Lotta næst- um alltsem kom út fyrir ári siðan hjá MALI OG MENNINGU er einnig gerð i sameiningu af þeim Astrid Lindgren og Ilon Wikland. Ásthildur Egilson þýddi báðar bækurnar. Ég vil líka fara i skólaer um 30 bls. Prentstofa G. Benediktssonar annaðist setningu o£ filmuvinnu, en bókin er prentuð i' Bretlandi. Auglýsið 1 Tímanum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.