Fréttablaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 2
Ferðaskrifstofa „Ástandið er bara skelfi- legt. Fólk fer í frí og hirðir ekki um kettina,“ segir Sigríður Heiðberg, forstöðukona Kattholts, en undan- farið hafa rúmlega hundrað óskila- kettir verið í umsjá Kattholts í einu. Sigríður segir sumarleyfi valda því að fólk losi sig við ketti. „Ég hef heyrt frá dýralækni að mikið sé að gera við að lóga köttum og kettling- um um þessar mundir, sumir fara svo í frí án þess að hirða um kettina og þá koma þeir iðulega til okkar,“ segir hún. Sigríður segir furðu sæta að fólki sé ekki meira umhugað um velferð dýra sinna en þetta. Mikið af kettlingum sem enginn kærir sig um verði til þegar læður eru ekki teknar úr sambandi og fress fari á flakk þar sem þau séu ekki vönuð. „Sem betur fer eru margir ábyrg- ir kattaeigendur til. Á Kattahótel- inu eru til að mynda um áttatíu kettir núna frá fólki sem er umhug- að um að dýrin séu í öruggum hönd- um þótt farið sé í sumarfrí,“ segir Sigríður. „Þetta er tímamóta- samþykkt sem tryggir hagsmuni sjómanna um allan heim,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambandsins um samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar sem gekk í gegn á fimmtudaginn á alþjóðlegum fundi stofnunarinnar í Genf. „Við uppfyllum flestar þessar kröfur nú þegar. En það gera flest af svokölluðum hentifánaskipum ekki. Megin- hagsmunir Íslendinga eru fólgnir í því að losna við sam- keppnina við þessa drullu- pramma sem hafa verið að veiða hér við strendur,“ segir Sævar. Alþjóðasamþykktinni er ætlað að bæta aðstæður 30 milljóna sjó- manna um allan heim. Samningur um sama efni var felldur af aðild- arþjóðum stofnunarinnar fyrir tveimur árum en Sævar segir miklar og góðar breytingar hafa verið gerðar á samningnum til að sætta sjónarmið ríkja í Asíu og Vesturheimi en þar greindi helst á. Nýi samningurinn var hins vegar samþykktur með 443 atkvæðum. Ekkert ríki var á móti samningnum en 19 þeirra sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Brögð hafa verið að því að henti- fánaskip stundi ólöglegar og óábyrgar veiðar á fiskveiðistofn- um. Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur bar- ist gegn slíkum veiðum, sem oft eru oft nefndar sjóræningjaveið- ar, við strendur Íslands. Reglur Norðaustur-Atlantshafsfiskiveiði- nefndarinnar hafa þrengt að ólög- legum veiðum hentifánaskipa en þó hefur strandgæsluskipum reynst erfitt um vik að bregðast við þeim þegar þau eru á alþjóð- legu hafsvæði. „Samþykktin er enn sem komið er tilmæli til þjóðanna því viss fjöldi landa þarf að innleiða þau í lög sín til að þau verði að alþjóð- legum lögum,“ bendir Sævar á. Hann segir þó að miðað við þann mikla stuðning sem samþykktin hlaut á þinginu ætti þess ekki að vera langt að bíða þar til það gerð- ist. Samþykktin felur í sér ákvæði sem ætlað er að tryggja að sjó- menn njóti aukins öryggis og hvíldar á sjó. Auk þess eru ákvæði samþykktarinnar sem ætlað er að tryggja að fiskiskip séu smíðuð og haldið við með tilliti til velferðar sjómanna. Talið er að mörg ríki geti ekki komið ákvæðunum strax í framkvæmd. Því kveður sam- þykktin á um úrræði sem gera ríkjum mögulegt að uppfylla skil- yrðin í áföngum. Stórt skref í uppræt- ingu sjóræningjaveiða Alþjóðavinnumálastofnunin hefur samþykkt nýja samning um bættar aðstæður sjómanna. Formaður Sjómannasambands Íslands segir að meginhagsmunir sam- þykktarinnar hér landi séu fólgnir í því að hún þrengir enn að hentifánaskipum. Sigurður, ert þú ekkert hrædd- ur um að verða tekinn? Sú staðreynd að ákveðnir hópar fólks eru svo að segja þurrkaðir út kann að leiða til minna umburðarlyndis á þeim sem eru frábrugðnir stærstum hluta fólks samfélagsins. Þetta segir Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent við Háskóla Íslands sem beint hefur sjónum að sambandi siðfræði og vísindaþróunar síðari ára, um fjölda fóstureyðinga vegna gruns um fósturgalla. Fréttablaðið greindi frá því í gær að undanfarin sjö ár hefur fjörutíu konum verið boðið að ljúka meðgöngu þegar skimun á fóstri hefur leitt í ljós að það er með Downs-heilkenni. Einungis tvær þeirra völdu að halda með- göngunni áfram. „Það þarf ekki að vera til marks um ábyrgðar- leysi að vilja ekki fæða barn sem ekki verður talið heil- brigt,“ segir Sigríður. Hún segir ástæður fyrir því að fólk velji fóstureyðingu í slíkum aðstæðum margvíslegar. Hugsanlega hræð- ist það að axla ábyrgð á barni sem þarfnist stöðugrar ummönn- unar og vilji oft ekki leggja á barn að fæðast mikið fatlað. Það sé þó ekki nóg að taka einungis tillit til sjónarhorns foreldra sem standa frammi fyrir vali um að halda eða eyða fóstri með galla. Valið geti verið slæmt og sær- andi fyrir viðkomandi hópa fólks auk þess sem dregið geti úr umburðarlyndi meirihlutans. Vönduð, þverfagleg ráðgjöf fyrir og eftir greiningu á fósturgöll- um, sé foreldrum nauðsynleg, af því að val þeirra verði að vera eins upplýst og kostur er á. Bandarísk stjórn- völd aflétta banni á fjárhagsað- stoð við palestínsk stjórnvöld sem staðið hefur í 15 mánuði þegar ný neyðarstjórn Abbas forseta tekur við völdum. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði í gær að ekkert stæði í vegi fyrir því að Bandaríkin tækju á ný upp stjórnmálasamtök við palestínsk stjórnvöld ef Hamas ætti ekki lengur aðild að ríkisstjórninni. Átök milli Fatah-samtaka Abbas og Hamas-liða héldu áfram í gær, og náðu vopnaðir liðsmenn Fatah meðal annars þinghúsinu í Ramallah og ráðhúsinu í Nablus á sitt vald. Bandaríkin lofa Abbas aðstoð Fangi á Litla-Hrauni hefur í Héraðsdómi Suðurlands verið dæmdur í 45 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir árás á samfanga sinn. Maðurinn sló annan fanga í höfuðið með súpudunki úr harðplasti í janúar. Atvikið átti sér stað inni í fangaklefa. Dunkurinn var nærri fullur af súpu og vó tæp fimm kíló. Fórnarlambið fékk kúlu á hnakka, væg eymsli í aftanverðan háls og höfuðverk. Þá slóst dunkurinn í fartölvu fórnarlambsins. Eftir að árásarmaðurinn neitaði að hafa skemmt tölvuna af ásetningi féll sækjandi frá þeirri ákæru. Sló samfangann með súpudunki Stöðva á frekari vega- gerð á hálendinu. Þetta kemur fram í hálendisvegaskýrslu Landverndar sem kom út í gær. Skýrsluhöfundar leggja til að gert verði heildstætt kerfi um flokkun vega á hálendinu til að auka öryggi vegfarenda og til að draga úr hættu á landspjöllum. Einnig er talið nauðsynlegt að greint sé á milli ferðamannavega og almennra vega. Vegir á miðhálendi Íslands eiga fyrst og fremst að vera ferðamannavegir og mikilvægt er að þar verði víðáttumikil svæði án vega. Þá er lagt til að heildstætt kerfi um flokkun vega verði gert sem auka á öryggi vegfarenda og draga úr landspjöllum. Segja að stöðva eigi vegagerð á hálendinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.