Fréttablaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 64
MasterCard korthafar fá miðann á þessa skemmtilegu fjölskyldumynd
á aðeins 600 kr. meðan myndin er sýnd, greiði þeir með kortinu.
Myndin er sýnd í Laugarásbíói og Smárabíói.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
600 kall
meðan myndin er í sýningum!
Komin í bíó!
Komin í bíó!
„Mér líður mjög vel, þetta
var ótrúlegt. Við höfðum reyndar
allan tímann trú á því að við gætum
unnið þetta lið,“ sagði Ásthildur
Helgadóttir, fyrirliði Íslands eftir
sigurinn gegn Frökkum í gær.
„Leikurinn þróaðist nákvæmlega
eins og við vildum og við náðum að
spila agaðan og skipulagðan varn-
arleik. Við vissum að við myndum
fá okkar færi og þrátt fyrir að þau
væru ekki mörg nýttum við eitt og
það dugði,“ sagði Ásthildur, en hún
og Margrét Lára náðu vel saman í
framlínunni.
„Við náum mjög vel saman og
náðum þó að skapa nokkur færi,
það getur verið nóg. Með svona
góðum varnarleik þá erum við með
hættulegt lið. Ég held að þetta séu
ein bestu úrslit sem kvennalands-
liðið hefur náð en þetta var mjög
erfiður leikur. Við hlupum mjög
mikið og lentum í smá eltingaleik,
sérstaklega í seinni hálfleik. Við
náðum að koma okkur aðeins betur
inn í leikinn og skora en nú er mik-
ilvægt að koma okkur niður á jörð-
ina og taka Serbana,“ sagði Ást-
hildur.
Þetta var ótrúlegt
Íslenska kvennalandslið-
ið náði í gær einum bestu úrslit-
um í sögu íslenskrar knattspyrnu
í gær með 1-0 sigri á Frökkum.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði
eina markið gegn sjöundu bestu
þjóð heims samkvæmt styrkleika-
lista FIFA.
Stelpurnar virtust ögn stressað-
ar í upphafi leiks og voru full fljót-
ar að sparka boltanum fram undir
lítilli pressu. Frakkar spiluðu
mjög vel saman en gekk illa að
komast í góð marktækifæri. Þess
í stað freistuðu þær þess að skjóta
af löngum færum sem trufluðu
Þóru B. Helgadóttur lítið í mark-
inu. Stelpurnar okkar seldu sig illa
á tíðum en það kom sem betur fer
ekki að sök.
Stelpurnar voru mjög ákveðnar
í fyrri hálfleik og létu finna fyrir
sér. Þrátt fyrir skotveislu Frakka
var lítil hætta á ferðum og Mar-
grét Lára Viðarsdóttir og Ásthild-
ur Helgadóttir sköpuðu oft usla í
vörn gestanna, án þess þó að skapa
dauðafæri.
Þrátt fyrir að fá pláss til að at-
hafna sig var vörn Íslands svo þétt
og vel skipulögð að ein besta þjóð
heims var ekki líkleg til að skora
fyrr en í síðari hálfleik. Þá varði
Þóra meistaralega í þrígang og
hélt liðinu inn í leiknum. Auk þess
fóru Frakkar illa að ráði sínu í
tveimur dauðafærum.
Margrét og Ásthildur voru allt
í öllu í sóknarleik Íslands. Þær
fundu sig mjög vel saman en eins
og við mátti búast fékk Ísland ekki
mörg færi í leiknum. Í einu af
fáum skoraði Margrét Lára með
skalla sem lak inn af markverði
Frakka eftir sendingu Dóru Maríu
Lárusdóttur.
Þrátt fyrir þunga pressu stóran
hluta leiksins fundu þær frönsku
ekki leið framhjá íslensku stelpun-
um sem börðust eins og grenjandi
ljón allan leikinn. Þær knúðu fram
ótrúleg úrslit og halda svo sann-
arlega uppi heiðri A-landsliða Ís-
lands. Stelpurnar sýndu fádæma
baráttu undir dyggri stjórn Sig-
urðar Ragnars Eyjólfssonar og
eiga hrós skilið.
Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu vann frækinn sigur gegn einni bestu þjóð
heims í undankeppni EM í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eina markið.
Greta Mjöll Samúelsdótt-
ir var brosmild eftir sigurinn gegn
Frakklandi í gær. „Ég er í nettu
sjokki, þetta er eitt besta afrek
sem Ísland hefur unnið og ég held
að við séum að skrá okkur í sögu-
bækurnar,“ sagði Greta Mjöll.
„Við spiluðum rosalega rétt
gegn þessum stelpum. Þær sóttu á
okkur eins og við vildum að þær
gerðu á meðan við fengum nokkr-
ar góðar skyndisóknir. Þetta var
erfitt, þær spiluðu mikið upp kant-
ana og við kantmennirnir hlupum
mjög mikið. Við erum eiginlega
allar búnar en þegar allt liðið legg-
ur sig svona fram er ekki skrýtið
að við náum hagstæðum úrslit-
um,“ sagði Blikastúlkan sem er
bjartsýn á framhaldið.
„Þetta gefur okkur kraft fyrir
framhaldið. Þetta var stórt skref í
rétta átt, þriðja skrefið kemur svo
á fimmtudaginn og við tökum þetta
bara leik fyrir leik,“ sagði Greta.
Margrét Lára Viðarsdóttir á
heiðurinn að íslenska markinu,
hvort sem það er skráð á hana eða
ekki. „Ég vona að ég eigi þetta
mark en mestu máli skiptir að
þetta var gríðarlega flottur sigur
hjá okkur. Það er erfitt að ná sér
niður eftir svona leik en við verð-
um að gera það,“ sagði Margrét
Lára.
„Það gekk nánast allt upp. Þær
fengu nokkur færi en við erum
með frábæran markmann sem
tekur alla þessa bolta. Við hefðum
getað nýtt okkar færi betur en 1-0
er alveg nóg,“ sagði markaskorar-
inn Margrét Lára.
Erum að skrá okkur í sögubækurnar
Ég er ótrúlega stoltur af stelpunum