Fréttablaðið - 17.06.2007, Side 10
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Fyrir hundrað árum var íslenskur fáni
í fyrsta skipti dreginn að húni víðs
vegar um landið. Þessi fáni var blár og
hvítur og var síðar skipt út fyrir þann
fána sem við flöggum nú á 17. júní.
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur
þekkir sögu bláhvíta fánans vel.
„Þann 17. júní 1907 gengust stjórnar-
andstæðingar fyrir miklum hátíðar-
höldum og bláhvítir fánar voru dregnir
að húni víða, að minnsta kosti fimmtíu
flaggstangir voru taldar í Reykjavík,“
segir Guðjón. „Þetta var ekki vel séð
af öllum því dannebro var náttúru-
lega okkar löglegi fáni á þessum tíma,“
bætir hann við.
Hugmyndin að bláhvíta fánanum var
upphaflega komin frá Einari Benedikts-
syni skáldi og hans fjölskyldu að sögn
Guðjóns. „Bláhvíti fáninn sást fyrst í
revíu sem Einar samdi og hét Við höfn-
ina og var sýnd í Fjalakettinum við
Aðalstæti árið 1894. Það var náfrænka
Einars, Ólafía Jóhannsdóttir sem
saumaði þann fána. Síðan var sá fáni
notaður á þjóðhátíð í Reykjavík 1897
en það var aðallega fjölskylda Einars
sem stóð fyrir því og eins við vígslu
Valhallar á Þingvöllum 1898. Eftir það
sást fáninn ekki mikið fyrr en að fána-
málið svokallaða blossaði upp á árun-
um 1906 til 1907.“
Aukinn kraftur hafði færst í sjálf-
stæðisbaráttuna á þessum tíma að
sögn Guðjóns og telur hann það ástæð-
una fyrir því að ákveðið var að halda
upp á afmælisdag Jóns Sigurðsson-
ar með þessum hætti. „Ýmsir er-
lendir atburðir, eins og það að Norð-
menn höfðu slitið sig lausa frá Svíum
árið 1905, ýttu undir það að Íslending-
ar yrðu ákafari í sinni sjálfstæðisbar-
áttu. Þarna var verið að gera Jón Sig-
urðsson að eins konar tákni fyrir sjálf-
stæðisbaráttuna sem hann varð síðan en
hafði kannski ekki verið svo mikið áður.
Bláhvíti fáninn var líka eitt af táknum
sjálfstæðisbaráttunnar og notaður sem
slíkur, sem svona uppreisnarfáni má
segja.“
Guðjón segir að margir Íslendingar
hafi á þessum tíma viljað fá bláhvíta
fánann sem þjóðfána. „Viðbárurnar voru
þær að hann væri of líkur gríska kon-
ungsfánanum og þar sem gríski kóng-
urinn var bróðir Danakonungs þótti það
ómögulegt. Það voru líka stjórnarand-
stæðingar sem héldu þessum fána á lofti
og því voru heimastjórnarmenn kannski
ekki svo hrifnir af honum. Því varð ofan
á þegar við fengum löggiltan fána árið
1915 að það var þessi sem við þekkjum í
dag.“
„Vér mótmælum allir.“
Stofnun íslenska lýðveldisins
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Klementína Margrét
Klemenzdóttir
Hagamel 31, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 19. júní kl. 15.00.
Margrét Björgvinsdóttir Þráinn Viggósson
Magdalena Björgvinsdóttir
Kolbrún Björgvinsdóttir
Dröfn Björgvinsdóttir Þorgeir Jónsson
Mjöll Björgvinsdóttir Ólafur Stefánsson
Drífa Björgvinsdóttir Benedikt Þ. Gröndal
Hrönn Björgvinsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
Skafta Friðfinnssonar
Keflavík, síðast Hörgshlíð 4, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilsstaða fyrir
frábæra umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Svava Runólfsdóttir.
Okkar ástkæri
Hákon Franklín Jóhannsson
Miðleiti 7,
lést þriðjudaginn 12. júní á Landspítala Fossvogi.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 21. júní kl. 13.00.
Katrín Hákonardóttir Arthur Echelberger
Jóhann Hákonarson Dagný Jóhannsdóttir
Erna Hákonardóttir Gernot Pomrenke
Tryggvi Franklín Hákonarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda-
móðir, amma, dóttir systir og frænka,
Jónfríður Valdís
Bjarnadóttir
Mosabarði 15, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 12. júní sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristófer Bjarnason
Róbert Örn Kristjánsson
Elsa Esther Kristófersdóttir Bárður Þór Sveinsson
Alexandra Ýr
Bjarni S. Kristófersson Gunnþóra Rut Bragadóttir
Og aðstandendur.
80 ára afmæli
Alma A.J. Júlíusdóttir Hansen
er áttræð í dag. Hún nýtur dagsins ásamt vini í faðmi sonar,
ömmu-, langömmubarna og fjölskyldna þeirra í Struer á Jót-
landi. Að venju munu snittur og tertur verða boðnar vinum
og vandamönnum hér á Fróni, en kallað verður til þess síðar.
Árnaðaróskir er hægt að senda að Langagerði 9, sjálf kemur
frúin heim næstkomandi miðvikudag.
MOSAIK
50 ára afmæli
Díana Vera
Jónsdóttir
hárskurðarmeistari býður til veislu
vegna 50 ára afmælis síns hinn
15. júní. Veislan verður haldin að
Kristnibraut 9 neðri hæð Grafarholti
hinn 17. júní klukkan 15.00. Allir vinir
og vandamenn eru velkomnir.