Fréttablaðið - 17.06.2007, Side 21
Actavis Group hf. Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði s 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa um 11 þúsund einstaklingar í 40 löndum,
sem eru reiðbúnir að taka áskorunum með það að markmiði að "koma Actavis" í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
• sýnir metnað í hverju því sem það innir af hendi
• sýnir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustulund
• leggur áherslu á samvinnu, því í sameiningu
komumst við lengra en við getum ein
• ber virðingu fyrir auðlindum sínum og sýnir
hagkvæmni í daglegum störfum
• hefur nægjan sveigjanleika til að geta gripið
tækifærin sem því gefast
• sýnir framsækni og lætur hlutina gerast
…eða með öðrum orðum hefur þú áhuga á að starfa
á alþjóðlegum vettvangi?
Nánari upplýsingar veitir Erla Hrönn Diðriksdóttir, edidriksdottir@actavis.com.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 24. júní n.k.
Sérfræðingur í skráningadeild
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér ráðgjöf í
tengslum við þróunarverkefni, samantekt skráningargagna fyrir ný
lyf þróuð á Íslandi til markaðssetningar á markaði
Evrópusambandsins og víðar, uppfærslur á skráningargögnum,
ásamt því að svara athugasemdum og annmarkabréfum yfirvalda.
Einnig er um að ræða samskipti við viðskiptavini og
skráningaryfirvöld um tæknileg atriði er snerta skráningarmál og
upplýsingagjöf um skráningargögn til annarra deilda fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði raunvísinda, s.s.
lyfjafræði, matvælafræði eða sambærilegri menntun. Gerð er krafa
um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Sérfræðingur í lyfjaþróun
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér að
annast verkþætti og verkstjórn er tengjast
lyfjaþróunarverkefnum fyrirtækisins með sérstaka áherslu á
efnafræðileg úrlausnarefni. Jafnframt annast viðkomandi
skipulagningu og framkvæmd tilrauna, úrvinnslu á gögnum,
skýrslugerð og ritun skjala í gæðakerfi fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í efnafræði og reynslu
af rannsóknum. Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af lyfjaiðnaði
og þekkingu á gæðastjórnun. Gerð er krafa um nákvæm, öguð
og sjálfstæð vinnubrögð. Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
Krefjandi störf hjá
framsæknu fyrirtæki
í alþjóðlegu umhverfi
Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis Group og annast sölu á
lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja sem
selja lyf undir eigin vörumerkjum. Á meðal viðskiptavina Medis eru
öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu. Hjá Medis er stefnt að því
að vera fyrst á markað með ný samheitalyf um leið og einkaleyfi falla
úr gildi.
Sérfræðingur - Business Development
Starfið felur í sér sölu og samningagerð á lyfjatengdu hugviti og
lyfjum til viðskiptavina Medis erlendis, samskipti við umboðsmenn
og dótturfélög erlendis, tilboðsgerð og samskipti við viðskiptavini
og leit að nýjum viðskiptatækifærum.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði lyfjavísinda
eða hliðstæða menntun, starfsreynsla á sviði samningagerða og
krefjandi samskipta er kostur.
Sérfræðingur - Customer Service
Starfið felur í sér samskipti við erlenda viðskiptavini vegna vöru-
sölu, þ.e. móttaka og afgreiðsla pantana, ásamt tilheyrandi eftir-
fylgni og stuðningi við viðskiptavini og framleiðslueiningar Actavis.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun, mjög góða
enskukunnáttu bæði í töluðu og rituðu máli, þekking á fleiri
tungumálum er kostur. Gerð er krafa um nákvæm, öguð og
sjálfstæð vinnubrögð.
Verkefnastjóri - Launch Coordination
Starfið felst í að tryggja að innleiðing vara á markað sé á réttum
tíma og leggja áherslu á innleiðingu eldri vara á nýja markaði.
Starfið felst aðallega í skipulagningu á innleiðingu nýrra vara, að
hafa yfirsýn yfir stöðu mála, eftirfylgni verkefna og samskipti við
erlenda viðskiptavini, framleiðslueiningar Actavis og aðrar deildir
innan fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun sem er
skipulagður og góður að vinna í hóp. Gerð er krafa um nákvæm,
öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Sérfræðingur í breytingaumsóknum
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér
skipulagningu breytingaumsókna er varða flutning á framleiðslu
lyfja á milli framleiðslustaða, gæðalýsingu á lokaafurð ásamt fleiri
breytingum og uppfæra skráningagögn í samræmi við
breytingaumsóknir. Um er að ræða upplýsinga- og ráðgjöf er
varða breytingaumsóknir sem og mikil samskipti við erlenda
viðskiptavini, lyfjayfirvöld og aðrar deildir/dótturfyrirtæki Actavis.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði raunvísinda.
Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð. Auk
þess er gerð krafa um mjög góða ensku- og tölvukunnáttu.
Sérfræðingur á markaðssviði
Starfið tilheyrir markaðssviði Actavis Group. Markaðsfulltrúi er
meðlimur í teymi sem ber ábyrgð á markaðssetningu lyfja hjá
Actavis á Íslandi. Starfið felur í sér kynningar á lyfjum og
samskipti við heilbrigðisstarfsfólk. Viðkomandi ber ábyrgð á
markaðsáætlunum og kynningum fyrir ákveðin lyfseðilsskyld lyf.
Starfið felur einnig í sér gerð kynningar- og fræðsluefnis ásamt
öðrum verkefnum á sviði markaðsmála.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun í lyfjafræði
og/eða reynslu af lyfjakynningum. Gerð er krafa um góða
íslensku- og enskukunnátta sem og góða almenna
tölvukunnáttu.
Verkefnastjóri í skráningadeild
fyrir eigin vörumerki
Starfið tilheyrir skráningarsviði Actavis Group og felur í sér
undirbúning við innsendingu skráningarumsókna í nafni Actavis
innan og utan Evrópusambandsins. Í því felst m.a. að útvega
skráningargögn, vottorð og fleiri stuðningsgögn sem fylgja þurfa
umsóknum. Verkefnastjóri er í miklum samskiptum við
skráningarfólk Actavis víðs vegar um heiminn, safnar saman
upplýsingum um skráningastöðu verkefna og styður við
skipulagningu á markaðssetningu nýrra vara.
Við leitum að einstaklingi með háskólanám á sviði raunvísinda.
Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Reynsla af skráningavinnu er kostur.
Verkefnastjóri í skráningaferladeild
Starfið tilheyrir skráningarsviði Actavis Group og felur í sér
undirbúning og innsendingu skráningarumsókna innan
Evrópusambandsins. Verkefnastjóri tekur þátt í mótun
skráningarstefnu og ber ábyrgð á sínum verkefnum þar til
markaðsleyfi fæst. Um er að ræða mikil samskipti við evrópskar
lyfjastofnanir, ráðgjafa og viðskiptavini
Við leitum að einstaklingi með háskólanám á sviði raunvísinda.
Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð. Reynsla
af verkefnastjórnun er kostur.
Sérfræðingur í þróunardeild mæliaðferða
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér þróun og
gildingar á mæliaðferðum sem nota á við losun á framleiðsluvörum
á markað. Þessar aðferðir eru einnig notaðar við þróun á nýjum
lyfjaformum hjá fyrirtækinu til að meta hvort tilraunalotur í nýjum
verkefnum séu sambærilegar að gæðum eins og frumlyf sem þegar
eru á markaði. Starfið er sambland af verklegri vinnu inni á
rannsóknarstofu, úrvinnslu á gögnum og skýrslugerð.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði raunvísinda,
nauðsynlegt að hafa góðan grunn í efnafræði og efnagreiningu.
Starfsreynsla af rannsóknavinnu þar sem krafist er nákvæmni og
staðlaðra vinnubragða við öflunar og úrvinnslu gagna kostur.
Starfsmaður í geymsluþolsdeild
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér gerð
geymsluþolsáætlana og geymsluþolsforskrifta fyrir lyf sem
framleidd eru á Íslandi. Starfið felur jafnframt í sér að hefja
geymsluþols-
prófanir, senda sýni í rannsókn á tilskyldum tíma, útbúa
fylgiskjöl og senda sýni til starfsstöðva Actavis í öðrum löndum
vegna geymsluþolsmælinga sem fram fara þar.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf eða sambærilega
menntun. Gerð er krafa um nákvæm, skipulögð og sjálfstæð
vinnubrögð.
ВЫ ЗАИНТЕРЕСОВАНЫ РАБОТАТЬ
В МЕЖДУНАРОДНОЙ КОМПАНИИ?