Fréttablaðið - 17.06.2007, Qupperneq 66
Laust sæti á Evrópu-
mótinu í Noregi er undir í kvöld.
Sterkt lið Serba er komið hingað
til lands og búast má við rafmagn-
aðri stemningu í Laugardalshöll-
inni. Strákarnir í landsliðinu eru já-
kvæðnir og bjartsýnir fyrir verk-
efninu og þrátt fyrir eins marks tap
í fyrri leiknum ytra eru þeir sam-
mála um að möguleikinn sé mjög
góður.
Íslenska liðið á að vera betra en
það serbneska, Guðjón Valur Sig-
urðsson efast ekki um það. „Ef við
náum að spila okkar leik er ég nokk-
uð viss um að þeir muni brotna. Það
er það sem við þurfum að einblína
á, að vera með brjálaða vörn alveg
frá fyrstu mínútu. Þurfum líka að
ná upp hraðaupphlaupum og keyra
yfir þá strax. Þá er ég viss um að
þeir sjá að þeir hafa ekkert hingað
að sækja,“ sagði Guðjón.
Guðjón var nokkuð sáttur með
leikinn ytra en auglýsti eftir stór-
leik frá Loga Geirssyni í kvöld.
„Það þarf að koma meiri ógn af
vinstri vængnum hjá okkur. Ég er
pottþéttur á því að Logi á eftir að
spila einn sinn besta leik á sunnu-
daginn. Meðan vörnin stendur og
ef Birkir ver eins og hann gerði
úti þá verður kátt í Höllinni og
ég vona að við eigum eftir að eiga
glaðan 17. júní,“ sagði Guðjón
Valur.
Guðjón býst við Serbunum enn
sterkari en í fyrri leiknum. „Ég
geri ráð fyrir því að þeir spili
betri handbolta en þeir gerðu úti.
Þeir voru að reyna að æsa okkur
upp með lúmskum höggum og alls
kyns leiðindum, vildu æsa sína
áhorfendur upp. Hérna geta þeir
það ekkert, það er líka stuttur
þráður í þeim flestum. Ef þeir ein-
beita sér bara að því að spila hand-
bolta eru þeir með frábært lið en
þeir vilja oft gleyma sér í rudda-
skapnum,“ sagði Guðjón.
Þeir sem voru í Laugardalshöll-
inni í fyrra fyrir réttu ári gleyma
því seint þegar Svíagrýlan var
kvödd á brott. „Ég á von á alveg
eins stemningu, ef ekki betri,
núna. Þetta er ekki bara ótrúleg
upplifun fyrir okkur leikmenn
heldur alla sem eru í Höllinni held
ég. Ég held að ég tali fyrir hönd
allra strákanna þegar ég segi að
við hlökkum rosalega til leiks-
ins. Það er einstakt að fá að spila
svona stóran leik á Íslandi fyrir
framan troðfulla Laugardalshöll.
Við ætlum að njóta dagsins,“ sagði
Snorri Steinn Guðjónsson. Guðjón
var á sama máli.
„Áhorfendur á völlinn og þeir
geta drifið okkur áfram. Þetta
byrjar á okkur leikmönnum en ef
við náum þessu öllu upp er ég 100
prósent viss um að við förum með
sigur af hólmi,“ sagði Guðjón.
Strákarnir í handboltalandsliðinu vonast eftir sömu stemningu og ríkti í Laug-
ardalshöllinni fyrir nákvæmlega einu ári þegar Svíagrýlan var jörðuð. Síðari
leikurinn gegn Serbum verður leikinn í kvöld.
TM styður kvennaknattspyrnu
Íslenska karlalandsliðið
tapaði fyrri leiknum í Serbíu með
eins marks mun, 29-30, og þarf
því að gera betur í seinni leiknum
í Laugardalshöllinni í dag. Frétta-
blaðið hefur rýnt í tölurnar úr fyrri
leiknum og það er ljóst af þeim at-
hugunum að íslenska liðið þarf
að fækka verulega töpuðum bolt-
um sínum og fá mun fleiri mörk
úr hraðaupphlaupum en Serbar
skoruðu sjö fleiri slík mörk í fyrri
leiknum.
Alfreð Gíslason, þjálfari íslenska
liðsins, þarf einnig að bregðast við
því að Serbar spila á mun fleiri
mönnum og íslensku strákarnir
gáfu mikið eftir síðustu tíu mín-
útur fyrri leiksins sem töpuðust 7-
4. Ísland var þremur mörkum yfir,
26-23, þegar tíu mínútur voru eftir
en misnotaði þá 5 sóknir í röð. Ser-
bar skoruðu síðan tvö síðustu mörk
sín manni færri og unnu leikinn.
Þegar tölfræði leiksins er skoð-
uð nánar kemur í ljós að tveir töl-
fræðiþættir sem eru vanalega Ís-
landi í hag og óhag snerust við í
þessum leik. Í stað þess að skora
fleiri mörk úr hraðaupphlaupum
og verða undir í baráttu skyttn-
anna þá skoruðu Serbar sjö fleiri
mörk úr hraðaupphlaupum en ís-
lensku skytturnar skoruðu hins
vegar sjö fleiri mörk með lang-
skotum. Íslensku markverðirnir
vörðu einnig fleiri skot (19-14) og
við fengum fleiri mörk úr hornun-
um (9-5) en Serbar skoruðu aftur á
móti fleiri mörk af línunni (6-3) og
tóku 5 sóknarfráköst gegn aðeins
einu hjá íslenska liðinu.
Ólafur Stefánsson skoraði flest
mörk íslenska liðsins en hann skor-
aði úr 9 fyrstu skotum sínum þar
af komu átta þeirra með glæsileg-
um langskotum. Ólafur (11 skot/9
mörk), Guðjón Valur Sigurðsson
(6/6) og Alexander Petersson (8/6)
voru saman með frábæra nýtingu
en 84% skota þeirra (25/21) end-
uðu í netinu fyrir aftan serbneska
markvörðinn. Ólafur átti einnig
flestar stoðsendingar (6) en tvær
þeirra fóru inn á línu.
Töpuðu boltarnir voru alltof
margir hjá íslenska liðinu eða
alls 18. Ólafur Stefánsson tapaði
flestum eða sex en Róbert Gunn-
arsson var með 4 tapaða bolta.
Birkir Ívar Guðmundsson
varði vel í íslenska markinu, alls
18 skot og bæði hann og Hreið-
ar Levý Guðmundsson náðu að
verja víti. Serbneski markvörð-
urinn varði hinsvegar fleiri skot
í seinni hálfleik (8-7) en Birkir
varði 12 skot fyrir hlé. Íslenska
vörnin var reyndar dugleg og
varði öll sín sex skot í seinni
hálfleik en bæði Sigfús Sigurðs-
son og Sverre Jakobsson stopp-
uðu þrjá bolta hvor.
Töpuðum hraðaupphlaupunum
Íslenska karlalands-
liðið í handbolta hefur unnið öll
sex umspilin fyrir stórmót síðan
að núverandi fyrirkomulag var
tekið upp fyrir HM í Frakklandi
2001.
Íslenska liðið er aftur á móti í
sérstakri stöðu nú þar sem að í
fyrsta sinn þarf liðið að vinna upp
mun í seinni leiknum. Í hin sex
skiptin hefur íslenska liðið unnið
fyrri leikinn og hefur meira að
segja í tvígang komist upp með
að tapa seinni leiknum í Laugar-
dalshöllinni þökk sé frábærum
úrslitum í fyrri leiknum. Kom-
ist íslenska landsliðið inn á EM
í Noregi 2008 þá hafa strákarnir
okkar tryggt sig inn á níu stórmót
í röð.
Alltaf komist áfram