Fréttablaðið - 25.06.2007, Page 2

Fréttablaðið - 25.06.2007, Page 2
 Einkadans verður bann- aður með öllu og nektardans aðeins leyfilegur að fenginni und- anþágu frá og með 1. júlí. „Þessar nektarbúllur eru gróðr- astía mansals, vændis og kláms og þessi lög eru atlaga gegn því,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. Ný lög, sem meðal annars fjalla um nektardansstaði, voru sam- þykkt frá Alþingi í mars. Flutn- ingsmaður frumvarpsins var þáverandi samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson. „Meginreglan er sú að allir staðir sem gera út á klám og annað slíkt eru bannaðir, nekt- arstaðir og súlu- staðir,“ segir Atli. „Það er nýmæli og geng- ur yfir alla.“ Í lögunum segir að óheimilt sé að bjóða upp á nektarsýningar eða gera með öðrum hætti út á nekt starfs- manna eða gesta. Hins vegar megi veita rekstrarleyfi að fengnum umsögnum frá sveitar- stjórn, heilbrigðisnefnd, slökkvi- liði, vinnueftirliti, byggingarfull- trúa og lögreglu. „Þetta er bara eins og alltaf hefur verið, maður hefur þurft að fá leyfi frá öllum aðilum,“ segir Ásgeir Davíðsson, eigandi Gold- finger í Kópavogi. „Ég er hættur að vera með á nótunum í þessum málum, það er alltaf verið að breyta þessu eitt- hvað og mér sýnist að í hvert ein- asta skipti sem einhver breyting hefur verið hafi hún bara verið til hins verra,“ segir Ásgeir. Með lögunum verður óheimilt fyrir dansara að „fara um meðal áhorfenda“ og einkasýningar verða jafnframt bannaðar. Á Gold- finger er boðið upp á danssýning- ar í klefum, sem lokaðir eru af með tjöldum. Ásgeir segist ekki vera viss um að í þessu sé falið bann við sýning- um fyrir einn viðskiptavin bak við tjald. „Það er talað um áhorfendur í fleirtölu, ekki eintölu. Ég veit það ekki, ég þarf að skoða þetta mál,“ segir Ásgeir. „Ég átta mig bara ekki á því af hverju það er verið að banna einkadans og af hverju er verið að lögleiða vændi. Mér finnst þeir eiginlega ekki hafa hugmynd um í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Mér finnst þetta allt vera komið út í hálfgerðan vitleysisgang,“ segir Ásgeir. „Ég er sjálfsagt alltaf á ein- hverju gráu svæði, en ég hef ekki verið að gera neitt ólöglegt,“ segir Ásgeir. Einkadans bannaður Ný lög um skemmtanahald taka gildi 1. júlí. Nektardanssýningar verða bann- aðar, nema að fenginni undanþágu. Einkadans verður með öllu óheimill. „At- laga gegn mansali, vændi og klámi,“ segir þingmaður Vinstri grænna. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins réð niðurlögum mosa- bruna á Miðdalsheiði á Hengils- svæðinu um klukkan tvö í fyrrinótt. Þá höfðu á áttunda tug slökkviliðsmanna, björgunarsveit- armanna og borgarstarfsmanna barist við eldinn í um hálfan sólarhring. Um fimmtán hektarar lands, þaktir mosa og lyngi, urðu eldinum að bráð. Skoða á svæðið eftir helgi og kanna áhrif brunans á lífríki. Ekki liggur fyrir hvað olli brunan- um, sem er einn sá mesti sem orðið hefur í námunda við höfuðborgar- svæðið, en ekki er talið útilokað að sökudólgurinn sé einnota grill sem skilið var eftir á víðavangi. Gruna kolagrill Rúmlega þrítugur litháskur karlmaður liggur höf- uðkúpubrotinn á gjörgæsludeild eftir að hafa verið barinn í höfuð- ið með barefli á heimili sínu í fyrrinótt. Sex samlandar hans voru handteknir vegna málsins og yfirheyrðir í allan gærdag. Maðurinn gekkst undir aðgerð í gær og er nú haldið sofandi í önd- unarvél. Hann var staddur í sam- kvæmi á heimili sínu í Bökkunum í Breiðholti í fyrrinótt. Þar var ráðist á hann á fjórða tímanum. Þegar lögreglan kom á staðinn voru árásarmennirnir á bak og burt en samkvæmisgestir gátu vísað lögreglu á stað þar sem þá kynni að vera að finna. Þeir voru handteknir skömmu síðar. Einn þeirra hafði verið stung- inn í bakið í átökunum með óþekktu áhaldi, en sárin voru grunn og var hann útskrifaður af slysadeild að lokinni aðhlynn- ingu. Hann var síðan sendur aftur á slysadeild síðar um daginn eftir að meiðsl á handlegg hans upp- götvuðust. Sexmenningarnir voru yfir- heyrðir í allan gærdag og fram eftir kvöldi með aðstoð túlks. Einnig voru teknar skýrslur af fjölda vitna. Aðdragandi og ástæður árásarinnar eru ókunn en ekki er útilokað að fleiri hafi átt hlut að máli en Litháarnir sjö. Í öndunarvél eftir vopnuð átök Magnús, hvað er næst? Sjö dauðir fuglar greindust með fuglaflensuveiruna H5N1 í Bæjaralandi um helgina og hafa þýsk yfirvöld varað fólk við því að hleypa hundunum sínum lausum. Þetta er í fyrsta skipti á þessu ári sem veiran greinist í landinu. Í fyrra greindist fuglaf- lensa í þrettán Evrópulöndum og fyrr í þessum mánuði greindist hún á bóndabæ í Tékklandi og var sex þúsund kalkúnum slátrað þar. H5N1-veiran hefur drepið um 190 manns um allan heim en flestir hinna látnu smituðust af fuglum í Asíu. Sérfræðingar óttast að veiran gæti stökkbreyst þannig að hún smitaðist auðveldlega á milli manna. Veiran fannst í dauðum fuglum Öldruð kona í Bandaríkjunum á yfir höfði sér refsingu fyrir að skrá hundinn sinn til að kjósa og fylla út utankjörfundaratkvæði fyrir hann. Konan vildi sýna fram á að ný lög væru þess valdandi að of auðvelt væri að skrá sig til að kjósa. Hún hringdi því og pantaði kjörseðil á nafni Duncan M. MacDonald, hundsins síns. Hundurinn kaus í raun ekki, því konan skrifaði „ógilt“ á atkvæðið hans og merkti það svo með loppufari hundsins. Loppufarið vakti athygli kjörstjórnar sem komst að hinu sanna. Lét hundinn sinn kjósa Fimm spænskir friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum fórust í sprengingu í gær í suðurhluta Líbanon. Þrír aðrir særðust. Bráðabirgðaherlið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, UNIFIL, staðfesti að sprengingin hefði verið af mannavöldum. Jarð- sprengja eða hryðjuverk eru talin líklegustu orsakirnar. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er á sveitir UNIFIL síðan þær voru styrktar í kjölfar innrásar Ísraelshers í landið síðasta sumar. Alls 13 þúsund hermenn frá 30 þjóðum SÞ og 15 þúsund líbanskir hermenn verja svæðið við landamæri ríkjanna. Fimm friðar- gæsluliðar létust Á hverju ári skila 15 til 20 prósent eintaka af seldum drykkjarumbúðum sér ekki á móttökustöðv- ar. Í kringum 87 milljónir drykkjareintaka skiluðu sér í Endurvinnsluna á síðasta ári. Það þýðir að um 20 milljónir eintaka verða eftir. Flest af því endar lík- lega á sorphaugunum eða eyðingarstöðvunum en þónokkur hluti fer samt út í náttúruna. Skilagjaldið er 10 krónur og því missa neytendur af 200 milljón- um króna í vasann. Eiríkur Jónsson, skrifstofustjóri hjá Endurvinnsl- unni, telur að þegar efnahagsástandið sé gott verði minna um skil en þau aukist þegar harðnar í ári. Mik- ilvægt sé að drykkjarumbúðunum sé skilað til baka. „Þetta tekur mikið landrými, plastið er sérstaklega rúmmálsfrekt og glerið er þungt. Hugsanlega gæti sorphirðugjaldið lækkað með betri skilum.“ Endurvinnslan er eina fyrirtækið hérlendis sem tekur við einnota drykkjarumbúðum til að endur- vinna þær. Öllum drykkjarumbúðum sem skilað er til móttökustöðva, svo sem Sorpu, er skilað þangað. Móttökustöðvar eru víða á landinu og á heimasíðu Endurvinnslunnar, endurvinnslan.is, sést hvar þær er að finna. Norska ríkisstjórnin kynnti fyrir helgi áform um að draga svo mikið úr losun gróður- húsalofttegunda í landinu á næstu áratugum, að fyrir árið 2050 yrði fullum „kolefnisjöfnuði“ náð. Meðal aðgerða sem stjórnin boðar í þessum tilgangi er að auka fjárfestingar í orkusparnað- arlausnum og endurnýjanlegum orkugjöfum um sem nemur allt að 100 milljörðum íslenskra króna fram til ársins 2012. Helmingi niðurskurðarins hyggjast stjórnvöld ná með kaupum á losunarkvóta. Kolefnisjöfnuði náð fyrir 2050

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.