Fréttablaðið - 25.06.2007, Side 13
Hundaræktarfélag Íslands hefur
hafið sölu á minningarkortum til
styrktar minningarsjóði Emilíu
og fer salan fram á skrifstofu
félagsins í síma 588 5255.
Minningarsjóðurinn var stofnað-
ur eftir að Emilía Sigursteinsdótt-
ir, heiðursfélagi Hundaræktarfé-
lags Íslands, lést eftir erfið
veikindi 2004.
Markmið sjóðsins er að
styrkja þá einstaklinga sem
þurfa á sérþjálfuðum hundi að
halda vegna fötlunar. Umsóknar-
frestur um styrkveitingar er til
8. júlí ár hvert. Nánari upplýs-
ingar um sjóðinn má finna á
heimasíðu Hundaræktarfélags
Íslands, hrfi.is.
Styrkir fatlaða
sem þurfa hund
Skrifað hefur verið undir samning
milli Reykjanesbæjar og Hjalla-
stefnunnar ehf. um rekstur leik-
skólans Akurs í Reykjanesbæ.
Leikskólinn sem enn er í byggingu
tekur til starfa í haust.
Á leikskólanum verða 140 börn
á sex deildum. Margrét Pála Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri Hjalla-
stefnunnar, segir að gjaldskrá
leikskólans verði sú sama og í
öðrum leikskólum sveitarfélags-
ins enda tryggi sveitarfélagið leik-
skólanum sama fjármagn.
Leikskólinn er sjöundi leikskól-
inn á landinu sem Hjallastefnan
rekur.
Starfa eftir Hjallastefnunni
Háskólinn á Akureyri og endur-
hæfingarmiðstöð SÍBS, Reykja-
lundur, undirrituðu samkomulag
20. júní síðastliðinn um að efla
kennslu og rannsóknir í endur-
hæfingu.
Reykjalundur mun koma að
kennslu og leiðsögn nemenda
Heilbrigðisdeildar HA í klínísku
námi í iðjuþjálfun og hjúkrunar-
fræði. Samningsaðilar vilja einnig
stuðla að framgangi endurhæfing-
ar með því að efla rannsóknir í
faginu.
Lilja Ingvarsson yfiriðjuþjálfi
og Lára M. Sigurðardóttir hjúkr-
unarforstjóri munu hafa umsjón
með náminu á Reykjalundi.
Efla rannsóknir
á endurhæfingu