Fréttablaðið - 25.06.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 25.06.2007, Síða 16
„Stóri bróðir fylgist með þér.“ Grjótbardagi í Flóa Nýlega kom út geisladiskurinn Good morning mister evening þar sem söngvarinn og lagasmiðurinn Bjarki Sigurðsson, eða B.Sig, lætur til sín taka í fyrsta sinn á því sviði. Með honum á plötunni eru meðal annars frændur hans, Börkur og Daði Birgissynir, sem eitt sinn léku með Jagúar, en það var einmitt á tónleikaferð þeirrar sveit- ar sem hugmyndin að Good morning mister evening kviknaði. „Við frændur sátum í New York, átum pönnukökur og drukkum sjeik þegar einn okkar lagði til að einhvern tíma ættum við að gera saman plötu,“ útskýrir Börkur. „Í kjölfarið sendi Bjarki okkur Daða lög sem hann hafði samið heima hjá sér og þá kom í ljós að maðurinn lá á gulli – og það var ekk- ert lítið heldur voru þetta svona þrjú hundruð hugmyndir sem hann dældi inn í tölvuna mína. Sumar svo góðar að það varð engin spurning að við urðum að gera úr þessu plötu.“ Ingi Björn bassaleikari og Kristinn trommari gengu til liðs við sveitina síðasta vor og síðan þá hafa félagarnir unnið jafnt og þétt að verkinu. Næst- komandi föstudag verða svo fyrstu tónleikarnir haldnir eftir útgáfu disks- ins, en þeir fara fram á nýjum og end- urbættum Gauki á Stöng. Frændurnir Bjarki og Börkur eru ekki alveg vissir um hvernig á að lýsa tónlistinni en Börkur reynir þó og segir hana eins konar retrómódern blúsrokkpopp. Bjarki er hins vegar ekki jafn viss „Ég veit það ekki, þetta er svona blanda af gleði og því að reyna að sannfæra fólk um eitthvað – bara fyrst og fremst skemmtileg tón- list.“ AFMÆLI Fallegir legsteinar á góðu verði Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og mágur, Hilmar J. Hauksson Kóngsbakka 10 og Aflagranda 20, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 14. júní. Útför Hilmars verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, mánudaginn 25. júní kl. 13.00. Monika Blöndal Sara Hilmarsdóttir Haukur Steinn Hilmarsson Svava J. Brand Þórunn Helga Hauksdóttir Guðmundur Sveinsson Björn Torfi Hauksson Laufey Birkisdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Friðfinnur Anno B. Ágústsson lést á LHS í Fossvogi hinn 14. júní síðastliðinn . Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 26. júní kl. 13.00. Helga Hafberg Engilbert Ólafur Friðfinnsson Guðbjörg Gísladóttir. Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson Kolbrún Birna Halldórsdóttir Ari Friðfinnsson Þuríður Kristín Sigurðardóttir og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og kveðjur við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Ingileifar Bryndísar Hallgrímsdóttur Lynghaga 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki B4 Landspítala í Fossvogi og starfsfólki Sóltúns fyrir einstaka alúð og hlýhug í veikindum hennar. Hallgrímur Gunnarsson Steinunn Helga Jónsdóttir Gunnar Snorri Gunnarsson Áslaug Gunnarsdóttir Þór Þorláksson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, Hulda Kristjana Leifsdóttir Giljaseli 11, Reykjavík, er lést 17. júní, verður jarðsungin frá Seljakirkju, þriðjudaginn 26. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vin- samlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð hjúkrunarþjónustu Karitas, í síma 551-5606 á milli kl. 9 og 10. Stefán Jón Sigurðsson Steinunn Bóel Stefánsdóttir Leifur Geir Stefánsson Steinunn Jónína Ólafsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.