Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.06.2007, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 25.06.2007, Qupperneq 18
Dreamliner frá Boeing-fyrir- tækinu er búin öllum helstu þægindum. Boeing Business Jets afhjúpaði á dögunum myndir af og innan úr nýju Boeing 787 VIP flugvélinni, Dreamliner, sem tekur 223 far- þega í sæti og talið er að verði tekin í almenna notkun á næstu árum. Myndirnar sýna hvernig nýja flugvélin verður útbúin alls kyns þægindum og nýjungum, þar á meðal fullkomnum flatskjám, afþreyingar- og viðskiptamið- stöðvum. Marga langar sjálfsagt að vita hvort farþegar muni geta hringt úr farsímum sínum meðan á flugi stendur, en því miður fylgdi það ekki sögunni og verður bara að koma í ljós. Eins og áður sagði voru mynd- irnar nýlega hafðar til sýnis og vöktu þá mikla lukku viðstaddra á viðskiptaráðstefnu og sýningu Mið-Austurlanda, sem haldin var í Dubai. Boeing-fyrirtækið ætti því ekki að eiga í nokkrum vandræð- um með að fá til sín farþega þegar vélin verður tekin til almennrar notkunar. Í skýjunum með Dreamliner Alnet sendir frá sér nýtt þýð- ingarforrit á næsta ári. Forritið þýðir texta úr íslensku yfir á ensku. „Þetta er ekki dæmigert þýðingar- forrit, sem þýðir einstaka orð yfir á ensku, heldur heilu setningarnar, greinarnar og jafnvel bækurnar setningafræðilega rétt,“ segir Matthías Sigurður Magnússon, starfsmaður Alnets, sem hefur, allt frá árinu 2003, unnið hörðum höndum að hönnun nýstárlegs þýð- ingarforrits. Að sögn Matthíasar getur forrit- ið aðeins þýtt úr íslensku yfir á ensku enn sem komið er, en ekki öfugt. „Við töldum það bæði ein- faldast og hafa meira notagildi. Til dæmis fyrir ferðaþjónustu- og framleiðslufyrirtæki, sem kynna sig á íslensku og síðan ensku úti í heimi. Maður rekst alltof oft á vef- síður þar sem fyrirtæki eru kynnt í löngu máli á íslensku og enskur útdráttur fylgir með. Auðvitað ætti textinn að vera jafn ítarlegur. Þannig næst betur til markaðar- ins.“ Reiknað er með að fyrsta útgáfa af þýðingarforritinu verði tilbúin á næsta ári og verði þá aðgengileg á netinu, þar sem hún fæst keypt. Líkt og forritið www.ordabok.is sem Alnet hefur einnig umsjón með. „Hugsanlega verður þetta líka viðbót við tölvupóstforrit, eins og Outlook,“ bendir Matthías á. „Þá er hægt að skrifa póst á íslensku og láta forritið síðan snara textanum yfir á ensku.“ Þar sem um fyrstu útgáfu er að ræða, segir Matthías að alltaf megi búast við lítils háttar skekkju- mörkum í þýðingunni. „Forritið á kannski eftir að birta nokkra val- möguleika á þýðingu á tilteknu íslensku orði. Í flestum tilvikum hefur það þekkingu til að takast á við slík vafamál, en í sumum til- vikum verður notandinn að taka þann valmöguleika, sem hann telur henta best. Þetta er náttúrulega bara byrjunin og útgáfan því skammlaus, en kannski ekki alveg fullkomin. Þýðir texta yfir á ensku PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR … • ENGIN MÁLNINGAVINNA • HVORKI FÚI NÉ RYÐ • FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN • FALLEGT ÚTLIT • MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR • ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING Fr um Skipholt 15, 105 Reykjavík Sími 590 9500 www.thingholt.is Traust fasteignasala í 30 ár Kjartan Kópsson sölufulltrúi kok@thingholt.is Ingvi Rúnar sölufulltrúi ingvi@thingholt.is Þórarinn Egill sölufulltrúi toti@thingholt.is Þórarinn Kópsson lögg. fast.sali kopsson@thingholt.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.