Fréttablaðið - 25.06.2007, Page 26
sérfróður um viðskipti
eða einn af þeim sem
finnst viðskiptafréttir
yfirleitt of flóknar og
háfleygar, getur þú
fylgst með öllu því
sem er að gerast í
viðskiptalífinu
í gegnum Markaðinn.
Við færum þér
fréttirnar skýrt
og skorinort.
Með Fréttablaðinu
alla miðvikudaga
Í hádeginu kl 12:12 á Stöð 2
Markaðurinn á Vísi alla daga
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
9
0
2
Það er eitthvað í gen-
unum á Íslendingum.
Við erum kaupóð upp
til hópa og þjáumst af
tilboðsfíkn. Ég kann
ekki líffræðilegar út-
skýringar á sjúkdómn-
um en í hvert sinn sem
erlendir menn koma hingað til
landsins og auglýsa vörur á til-
boði verður allt vitlaust. Ástandið
er verst þegar raftæki eiga í hlut.
Það þarf ekki annað en skrifa aug-
lýsingu þar sem segir: „Raftæki á
verði sem ekki hefur sést áður,“
og hálf þjóðin hleypur af stað. Þá
skiptir engu hvort það er í raun
satt að verðið hafi ekki sést áður
og það er algjört aukaatriði hvort
varan er í alvörunni á tilboði – svo
lengi sem hún er sögð vera það
birgja Íslendingarnir sig upp.
Í síðustu viku barst mér aug-
lýsing í pósti þess efnis að erlend-
ir sölumenn ætluðu að halda ofur-
útsölu á saumavélum í Kringlunni.
Þótt ég sé hreinræktaður Íslend-
ingur var ekkert við þessa auglýs-
ingu sem fékk hjarta mitt til að slá
örar. Að því leytinu er ég ólík meg-
inþorra Íslendinga sem las auglýs-
inguna og missti vitið.
Vinnu minnar vegna var ég
stödd í Kringlunni þegar ósköp-
in hófust og þótt ég hafi reynt
ýmislegt um ævina hef ég aldrei
lent í öðru eins. Fólk tróðst niður
milli saumavélastaflanna og æstir
kaupendur með tryllingsglampa í
augunum reiddu fram Visa-kort-
in til þess að tryggja sér sauma-
vél. Af æsingnum og mannfjöld-
anum mátti ráða að ekki hefðu
fengist saumavélar á klakan-
um frá því fyrir stríð og annar
hver maður sem lagði leið sína í
Kringluna þessa daga kom þaðan
út með saumavél. Ekki vegna þess
að áhugi á saumaskap hafi auk-
ist heldur vegna þess að vélarnar
voru á tilboði.
Ég hef lagt höfuðið í bleyti og
ákveðið að hefja innflutning á ein-
hverjum vörum til að selja óðum
Íslendingum. Saumavélar rokselj-
ast þótt enginn kunni að sauma og
því hlýt ég að geta stórgrætt sama
hvaða vöru ég kýs að selja, svo
lengi sem hún gengur fyrir raf-
magni og er með tilboðsmiða.