Fréttablaðið - 25.06.2007, Page 32
SMS
LEIKUR
Íslenskir keppendur í
fjölþraut gerðu góða ferð til Vejle
í Danmörku um helgina þar sem
fram fór Norðurlandamót í fjöl-
þraut. Íslensku ungmennin hlutu
þrenn silfurverðlaun.
Helga Margrét Þorsteinsdótt-
ir bætti eigið meyjamet í sjöþraut
er hún náði 5.428 stigum og varð í
öðru sæti í flokki 17 ára og yngri.
Hún varð einnig í öðru sæti á mót-
inu í fyrra, en hlaut fleiri stig í
þetta sinn.
Einar Daði Lárusson varð sömu-
leiðis annar í sama aldursflokki
en hann hlaut 6.965 stig í tug-
þraut. Hann var einungis 21 stigi
frá drengjameti Sveins Elías-
ar Sveinssonar sem hann setti á
þessu sama móti í fyrra. Þá vann
Sveinn Elías en Einar Daði varð
þriðji.
Sjálfur vann Sveinn Elías silfur-
verðlaun í flokki 18-19 ára þar sem
hann er á yngra ári. Hann hlaut
samtals 7.170 stig sem er nýtt Ís-
landsmet í þessum aldursflokki.
Hann náði þar með lágmarki í tug-
þraut fyrir Evrópumeistaramót 19
ára og yngri sem fer fram í næsta
mánuði.
Þorsteinn Ingvarsson varð
fjórði í sama flokki.
„Mér gekk vel alveg fram að
næstsíðustu grein,“ sagði Sveinn
Elías. „Ég var slæmur bæði í
mjöðminni og olnboga í spjótkast-
inu og náði því ekki mínu besta
fram þar.“
Hann vann þó síðustu grein-
ina, 1.500 metra hlaup, og tryggði
sér þar með örugglega silfurverð-
launin. Auk þess bætti hann Ís-
landsmet 17-18 ára í stangarstökki
um einn sentimetra sem og í 400
m hlaupi.
Sigurvegarinn í þessum flokki,
Lars Vikan Rise frá Noregi, náði
besta árangri mótsins er hann
hlaut 7.348 stig. „Ég vann hann í
öllum greinum nema kastgreinun-
um. Ég er slakastur í þeim og mun
nánast eingöngu æfa köstin fram
að EM.“
Auk þess að keppa í tugþraut á
EM hefur Sveinn Elías einnig náð
lágmarki í 400 m hlaupi og 400 m
grindahlaupi. Hann segir að það
fari eftir dagskrá mótsins hvort
hann geti keppt í þeim greinum en
muni annars einbeita sér að tug-
þrautinni.
Norðurlandamót ungmenna í fjölþraut fór fram í Vejle í Danmörku um helgina
og fengu íslenskir keppendur þrenn silfurverðlaun auk þess að bæta ýmis met.
Stabæk er komið á topp
norsku úrvalsdeildarinnar eftir
leiki gærdagsins. Veigar Páll
Gunnarsson lék allan leikinn fyrir
Stabæk sem vann góðan 1-0 úti-
sigur á Tromsö. Þar með er liðið
komið með tveggja stiga forskot á
Brann sem tapaði í gær fyrir Vik-
ing, 3-1. Kristján Örn Sigurðsson
og Ólafur Örn Bjarnason léku allan
leikinn í vörn Brann en þeir Birk-
ir Bjarnason og Hannes Þ. Sig-
urðsson sátu á bekknum hjá Vik-
ing. Hannes kom inn á á lokamín-
útunni. Ármann Smári Björnsson
á við meiðsli að stríða og var ekki
í hópi Brann né heldur Höskuldur
Eiríksson hjá Viking.
Viking er í þriðja sæti deildar-
innar ásamt Lilleström sem vann
1-0 heimasigur á Start. Hvorki
Viktor Bjarki Arnarsson hjá Lill-
eström né Jóhannes Harðarson,
leikmaður Start, komu við sögu.
Garðar Jóhannsson lék allan
leikinn fyrir Fredrikstad sem tap-
aði 2-1 fyrir Strömsgodset.
Tólftu umferðinni lýkur í kvöld
með leik Lyn og Rosenborg.
Marel Baldvinsson kom inn á
sem varamaður hjá Molde sem
vann 3-2 sigur á Bryne í 1. deild-
inni í Noregi í gær. Gamli FH-ing-
urinn Allan Borgvardt var í byrj-
unarliði Bryne en var tekinn af
velli í hálfleik.
Einn Íslendingur var í eldlín-
unni í Svíþjóð í gær. Ari Freyr
Skúlason kom inn á sem varamað-
ur í hálfleik hjá Häcken sem tap-
aði, 2-1, fyrir Åtvidaberg á úti-
velli.
Stabæk á toppinn
Hreiðar Levy Guð-
mundsson, landsliðsmarkvörð-
ur í handbolta, hefur samið við
sænska úrvalsdeildarliðið Säve-
hof til eins árs.
„Þetta bar allt mjög brátt að.
Þeir byrjuðu að ræða við mig um
svipað leyti og landsleikirnir við
Serbíu fóru fram en ég ýtti þessu
frá mér þar til þeim lauk. En svo
ákvað ég bara að skella mér á
þetta,“ sagði Hreiðar við Frétta-
blaðið í gær.
Aðalmarkvörður Sävehof gekk
til liðs við þýska úrvalsdeildar-
liðið Hamborg fyrir skemmstu
og mun því Hreiðar taka hans
stöðu hjá liðinu.
„Það verður afar gott að kom-
ast í þennan sænska skóla hand-
boltamarkvarða. Svíar eiga
marga heimsklassamarkverði,
þeir eru til dæmis margir í þýsku
úrvalsdeildinni,“ sagði Hreiðar.
Aðeins einn annar íslensk-
ur markvörður er atvinnumað-
ur en það er Birkir Ívar Guð-
mundsson, leikmaður Lübbecke
í Þýskalandi.
En Hreiðari líst vel á Säve-
hof enda um sterkt lið að ræða.
Liðið varð í öðru sæti í sænsku
deildinni í vor og urðu meistarar
í fyrra. „Þetta gæti orðið góður
stökkpallur fyrir mig ef ég næ
að standa mig vel. Ég hef svo
sem áður fengið tækifæri til að
komast út en fannst vera rétti
tíminn nú.“
Hreiðar til Sävehof
Farið langt fram úr mínum björtustu vonum
Haraldur Heimisson vann í
gæt mót á Hólmsvelli á Leirunni
sem er hluti af Kaupþingsmóta-
röðinni í golfi. Hann vann eftir
keppni í bráðabana við Davíð Má
Vilhjálmsson.
Í kvennaflokki bar Ragnhildur
Sigurðardóttir nauman sigur úr
býtum í kvennaflokki en hún lék
á 20 höggum yfir pari, einu betur
en Nína Björk Geirsdóttir. Tinna
Jóhansdóttir varð þriðja.
Haraldur vann
í bráðabana