Fréttablaðið - 08.08.2007, Page 2
Ekki er talið að tjón hafi
orðið þegar rafmagn fór af stórum
hluta landsins síðdegis í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Lands-
neti varð bilun í spennistöð á
Brennimel í Hvalfirði þess vald-
andi að rafmagn fór af Vesturlandi,
Vestfjörðum og Austurlandi í um
klukkustund á milli klukkan tvö
og þrjú í gær.
Líklega sló háspennu í jörð ein-
hvers staðar, en orsök bilunarinn-
ar hefur þó ekki verið rannsökuð
að fullu.
Rafmagnsleysið varði nokkru
lengur hjá stóriðjufyrirtækjum,
en innan við tveimur klukkustund-
um eftir að rafmagnið sló út hafði
því verið komið á alls staðar aftur
og álver fengið heimild fyrir fullri
rafmagnsnotkun.
Í álveri Alcoa á Reyðarfirði þarf
rafmagnsleysi að vara í fjórar
klukkustundir til þess að ál fari að
storkna í kerum og tjón hljótist af.
Rafmagnsleysisins gætti einnig
á höfuðborgarsvæðinu. Rafmagn
sló út víða í borginni um klukkan
tvö, meðal annars á lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu þar sem
þurfti að endurræsa tölvukerfi.
Þá slökknaði á umferðarljósum
víða og olli það nokkrum óþægind-
um þótt engin slys hafi orðið. Álag
á Neyðarlínuna jókst þó umtals-
vert.
Felix, eru strákarnir enn á
Borginni?
Hreinar rekstrartekjur
viðskiptabankanna þriggja fóru á
síðasta ársfjórðungi í fyrsta sinn
yfir 100 milljarða króna er þær
námu alls 104 milljörðum. Á fyrri
hluta ársins voru rekstrartekjur
bankanna um 196 milljarðar
króna.
Fjörutíu prósent af tekjum
bankanna á fyrri árshelmingi voru
hreinar vaxtatekjur, um 32 prósent
voru hreinar þóknanatekjur og 28
prósent aðrar tekjur, svo sem
gengishagnaður af verðbréfum.
„Hálfsársuppgjör bankanna
sýna að rekstur þeirra er almennt
í góðu horfi og tekjugrunnur
verður sífellt dreifðari,“ segir
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME.
Hann hvetur bankana til að gæta
að kostnaðarhlutföllum, sem fari
hækkandi, og sýna áframhaldandi
árvekni í gæði eignasafns.
Yfir 100 milljarð-
ar í fyrsta skipti
Jean-Marie Le
Pen, hinn aldni leiðtogi
franskra þjóðernissinna, segist
býsna ánægð-
ur með
frammistöðu
Nicolas
Sarkozy á
forsetastóli
síðustu tvo
mánuði.
„Jafnvel
þótt ég telji
hann hálf-
gerðan skýja-
glóp, þá er
hann afar
hæfileikarík-
ur skýjaglóp-
ur,“ sagði Le
Pen um
þennan
fyrrverandi
keppinaut
sinn um forsetaembættið.
Le Pen hafði áður gagnrýnt
Sarkozy fyrir að „stela atkvæð-
um“ frá þjóðernissinnum með
því að lofa því að hafa betri
stjórn á aðstreymi innflytjenda
og vernda „þjóðareinkenni“
Frakka.
Le Pen ánægð-
ur með Sarkozy
Rannsókn stendur
enn yfir á máli mannsins sem
fannst liggjandi í blóði sínu
alvarlega slasaður í Breiðholti
aðfaranótt laugardags. Að sögn
Margeirs Sveinssonar, lögreglu-
fulltrúa hjá rannsóknardeild
umferðarmála, voru fjórir menn
yfirheyrðir í gær, en þeir voru
farþegar í bíl sem grunur lék á
að hefði kannski ekið manninn
niður.
Við það vildu mennirnir ekki
kannast og var þeim sleppt að
loknum yfirheyrslum. Bíllinn er
enn í vörslu lögreglu og mun
hann rannsakaður frekar. Ekki
liggur fyrir hvort ekið var á
manninn, ráðist á hann eða hann
dottið. Bremsuför voru þó á
vettvangi. Maðurinn er á
batavegi.
Fjórmenningar
segjast saklausir
Mahmoud Abbas, forseti
Palestínustjórnar, fullyrðir að lífs-
kjör Palestínumanna muni batna á
næstunni. Hann hafi fengið fyrir
því loforð frá Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, en þeir hitt-
ust í Jeríkó á Vesturbakkanum á
mánudaginn.
Olmert varð þar með fyrstur ísra-
elskra forsætisráðherra til þess
að heimsækja heimastjórnar-
svæði Palestínumanna í sjö ár, eða
frá því seinni uppreisn Palestínu-
manna gegn hernámi Ísraela hófst
haustið 2000.
Abbas segir að Olmert hafi
meðal annars sagt að strax í næstu
viku myndu Ísraelar byrja að taka
niður eitthvað af þeim hundruðum
vegatálma og eftirlitsstöðva sem
hindrað hafa ferðir Palestínu-
manna milli staða á Vesturbakk-
anum.
Á fundi sínum samþykktu þeir
að auka samskiptin milli Ísraels-
stjórnar og Palestínustjórnar með
það í huga að samningaviðræður
um stofnun Palestínuríkis gætu
hafist „fljótlega“.
Í gær fullyrti ísraelska dagblað-
ið Haaretz að Olmert væri að
skoða hugmyndir um að Ísrael
afhendi Palestínumönnum ísra-
elskt land í skiptum fyrir land-
svæði á Vesturbakkanum, en
skrifstofa Olmerts bar þær fréttir
strax til baka.
Palestínumenn sem búsettir eru
í Ísrael hafa jafnan harðlega
mótmælt öllum hugmyndum um
að landið sem þeir búa á verði
hluti af Palestínuríki.
Segir að lífskjörin muni batna
Ekki er hægt að
hindra að ökumenn sem teknir eru
fyrir akstur undir áhrifum fíkni-
efna endurtaki leikinn daginn
eftir, enn í vímu eftir sama lyfja-
skammt. Lögregla getur ekki svipt
fólk ökuleyfi á staðnum við slík
brot. Fíkniefni geta mælst í blóði í
daga og allt upp í vikur eftir
neyslu.
Ökumaður þarf að skrifa undir
sektargerð eða ljúka máli fyrir
dómi, komi í ljós að hann hafi ekið
undir áhrifum fíkniefna. Það sama
gildir um ölvunarakstur. Hins
vegar má svipta ökumenn öku-
leyfi á vettvangi fyrir hraðakstur.
Til að heimilt sé að gera öku-
tæki upptækt þarf að hljótast af
líkamlegur skaði eða mannslát, að
sögn Laufeyjar Kristjánsdóttur
hjá ákærudeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Slíkt gildi
því ekki um fíkniefnaakstur.
Eina leiðin, að sögn Laufeyjar,
væri að gera kröfu um gæsluvarð-
hald vegna síbrota. Ef aðili gerist
sekur um síendurtekið brot má
stöðva hann á þann hátt.
216 mál í brotaflokknum „akst-
ur undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna“ voru skráð hjá lögreglu
fyrstu sex mánuði ársins, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Rík-
islögreglustjóra.
Einungis níu slík brot voru
skráð á sama tímabili í fyrra.
Ástæðan fyrir því gæti verið sú
að auðveldara er að skera úr um
brotin í ár með tilkomu svokall-
aðra forprófa. Áður þurfti að
kalla til lækni til að meta ástand
grunaða.
Forpróf fara þannig fram að
munnvatn eða sviti er tekinn af
ökumanni og kemur þá í ljós hvort
hann er undir áhrifum. Sé prófið
jákvætt er hann færður á lög-
reglustöð til skýrslu, blóð- og
þvagsýnatöku. Þá má skera um
hvaða efni grunaði hefur í líkam-
anum og hve mikið magn.
Að sögn Þórarins Tyrfingssonar,
yfirlæknis á Vogi, getur tekið daga
og jafnvel vikur fyrir líkamann að
losna við merki um fíkniefni.
Kannabisefni geta greinst í allt að
mánuð í þvagi, hafi neytandinn
neytt þeirra að staðaldri. Neyt-
andi getur gengist undir rannsókn
á lögreglustöð og komist að því
hvort finna megi leifar lyfja í lík-
ama hans.
„Skimunarprófin eru mjög
næm,“ segir Þórarinn. „Í lögum er
skilgreint hversu mikið magn af
áfengi má vera í blóði ökumanns,
en það eru ekki til slíkar skilgrein-
ingar þegar kemur að lyfjum.“
Ekki hægt að kyrrsetja
bílstjóra á eiturlyfjum
Lögregla getur ekki hindrað að fólk sem ekur undir áhrifum fíkniefna endur-
taki leikinn á meðan efnið er enn í líkamanum. 216 fíkniefnaakstursmál komu
upp fyrstu sex mánuði ársins. Fíkniefni geta greinst í líkama í daga eða vikur.
Kynferðisbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu rannsakar mál fimm ára
gamallar stúlku sem hefur sakað
fullorðinn karlmann um að hafa
áreitt sig kynferðislega. Frá
þessu er greint á Vísir.is.
Engin tengsl eru á milli þolanda
og meints geranda en atvikið mun
hafa átt sér stað í Laugarnes-
hverfinu 30. júní. Búist er við að
málið verði sent ríkissaksóknara
síðar í vikunni.
Skýrsla hefur verið tekin af
barninu og meintum geranda.
Rannsaka
brot gegn fimm
ára stúlku