Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 23
Gönguklúbburinn Krummafæt-
ur fór nýlega í fjögurra daga
ferð um eyðislóðir við nyrsta
haf. Gunnar V. Andrésson ljós-
myndari er einn úr hópnum og
að sjálfsögðu var myndavélin
með í för.
Leiðin sem Krummafótur gekk
að þessu sinni lá úr Köldukinn í
Þingeyjarsýslu út í Náttfarvíkur,
yfir Víknafjöll, um Flateyjardal
og þaðan í Hvalvatnsfjörð. Er þá
ógetið siglingar út í Flatey á
Skjálfanda. En gefum Gunnari
ljósmyndara orðið: „Ferðin hófst
í byggð því lagt var upp frá
Björgum í Köldukinn. Hlöðver
Hlöðversson, bóndi þar, gerðist
leiðsögumaður okkar fyrsta
áfangann, út í Naustavík þar sem
gist var í gömlu húsi. Síðan var
gengið upp Víknafjöllin og yfir í
Flateyjardal. Það er æði stremb-
in ganga þótt loftlínan sé bara níu
kílómetar því farið er upp í tæp-
lega 1.000 metra hæð en þaðan
sést vítt yfir. Í Flateyjardal var
tjaldað. Þriðja daginn var dalur-
inn genginn út í Eyrarvík og þar
stigið um borð í bát sem flutti
okkur út í Flatey í skoðunarferð.
Síðasta dagleiðin var svo yfir
Bjarnarfjall í Hvalvatnsfjörð.
Þetta voru sem sagt fjórar dag-
leiðir og þarna er sagan við hvert
fótmál. Því þótt „fagurt sé í fjörð-
um þá frelsarinn gefur veður
blítt“ verður manni óhjákvæmi-
lega hugsað til þess fólks sem
þarna háði lífsbaráttu sína fyrr á
tíð og tókst á við óblíð náttúru-
öfl.
Við vorum 24 saman og ganga
svona hóps er mikil skemmtun.
Hún felst í því að svitna saman,
ganga saman og tala saman. Þetta
er samkvæmisleikur þar sem
allir eru sigurvegarar að lokum.“
Þetta er samkvæmisleikurLjósmyndabókin Íslendingar – Milli jökla og hrauns var
tilnefnd til árlegra útgef-
endaverðlauna í Lettlandi.
Lettneski ljósmyndarinn Kaspars
Goba og blaðamaðurinn Ieva
Pukite eru höfundar bókarinnar
Íslendingar – Milli jökla og hrauns.
Þeir komu fyrst til landsins árið
1998 og heilluðust við fyrstu sýn.
Síðan þá hafa þeir ferðast vítt
og breitt um landið, farið allan
hringveginn, yfir hálendið og
skoðað landið úr lofti, heimsótt
sjávarþorp og einangraða sveita-
bæi, auk höfuðborgarinnar.
Útgáfan var samstarfsverkefni
bókaforlagsins Valters un Rapa og
Lettlandsskrifstofu Norrænu ráð-
herranefndarinnar. Verkefnið
naut líka stuðnings Nordic
Partners Ltd, sem gerði kleift að
gefa 400 eintök af bókinni í
framhaldsskóla Lettlands um
síðustu jól.
Nánari upplýsingar gefur
Kaspar Goba ljósmyndari á tölvu-
pósti goba@parks.lv.
Íslenskar myndir
á lettneska vísu
Vika á Ítalíu
17.300 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Ford Fiesta eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07